Skinfaxi - 01.02.2021, Qupperneq 39
S K I N FA X I 39
Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður fékk á þessu ári styrk úr fræðslu-
og verkefnasjóði til þess að láta semja afmælisrit í tilefni af því að öld
er nú liðin frá stofnun félagsins. Einar Hafliðason, gjaldkeri Umf. Þor-
steins Svarfaðar, segir verkefnið komið vel af stað. Því stýri sagnfræð-
ingarnir Þórarinn Hjartarson og Margrét Guðmundsdóttir.
„Það hefur gengið vel að finna töluvert af þeim heimildum sem við
höfum notað þar sem margar þeirra voru á Héraðskjalasafni Svarfdæla
á Dalvík. Það er búið að skanna inn handskrifaðar fundargerðabækur
sem var að finna á Héraðskjalasafninu, síðustu vikur og mánuði. Stjórnin
átti svo til fundargerðabók frá 1962 sem geymdi miklar heimildir.
Félagið gaf út handskrifað tímarit á upphafsárum sínum og í því er
töluvert af efnum og heimildum að finna,“ segir Einar.
Í afmælisritinu verður saga félagsins rakin og verður mikil áhersla
lögð á félags- og menningarmál.
„Umf. Þorsteinn Svörfuður var ekki stofnað á sínum tíma utan um
íþróttir heldur var það vettvangur fyrir unga fólkið til að koma saman,
halda málfundi og spjalla. Ungmennafélag Svarfdæla á Dalvík hélt þá
utan um íþróttirnar. Félagið kom til að mynda að gerð sundskála Svarf-
dæla árið 1929 sem er talin vera ein fyrsta yfirbyggða sundlaug lands-
ins og byggingu Þinghússins á Grund sem var um árabil þingstaður
og félagsheimili Svarfdælinga,“ segir Einar og tekur fram að með
þetta í huga megi segja að afmælisritið verði því ekki aðeins gert til
að halda upp á 100 ára afmæli félagsins heldur líka til að varpa ljósi á
Dalvík og sögu bæjarfélagsins.
Í júlí 2020 óskaði félagið eftir ljósmyndum tengdum störfum félags-
ins í gegnum tíðina, sem kunna að leynast í fórum fólks, til þess að
setja í afmælisritið. Lítið hefur gerst í þeim efnum. Eitthvað er til af
myndum en ekki mikið úr íþróttastarfinu frá því að félagið var í blóma.
Sú leit er því enn í fullum gangi.
Styrkurinn úr fræðslu- og verkefnasjóði hjálpaði mikið við gerð
afmælisritsins, að sögn Einars.
„Við erum nú búin að safna nægum fjármunum til þess að ritun geti
farið í fullan gang og svo er bara að sjá til með útgáfu á ritinu og hvernig
henni verður háttað,“ segir Einar hjá Umf. Svörfuði að lokum.
Fræðslu- og verkefnasjóður fyrir félögin
Úthlutanir úr fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ hafa aukist ár frá ári og
náðu methæðum árið 2020. Allt stefnir í að árið í ár verði eins. Verk-
efnin, sem hljóta styrk, eru af ýmsum toga en til þess ætluð að víkka
sjóndeildarhring fólks í íþrótta- og ungmennafélagshreyfingunni.
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ veitir styrki til félags- og íþrótta-
starfs ungmennafélagshreyfingarinnar, m.a. með því að auka menntun
og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun,
í félagsmálum og félagsstarfi. Úthlutun fer fram tvisvar á ári, 1. maí og
1. nóvember, og umsóknarfrestur er 1. apríl fyrir maí-úthlutun og 1.
október fyrir nóvember-úthlutun.
Í síðustu úthlutun voru 83 verkefni styrkt og á meðal þeirra voru fyrir-
lesturinn Út fyrir kassann og verkefnið 100 ára afmælisrit Umf. Svarfaðar.
Ungmennafélagið Þróttur í Vogum (UMFÞ) fékk vorið 2021 styrk úr
fræðslu- og verkefnasjóði til þess að láta halda fyrirlesturinn Út fyrir
kassann. Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri UMFÞ, segir félagið
hafa síðastliðin fimm ár haldið uppi fræðslu fyrir foreldra, iðkendur,
stjórnarfólk og sjálfboðaliða á hverju ári. Í ár var Bjarni Fritzson feng-
inn til að koma og vera hjá þeim í einn dag og vera með fræðslu fyrir
5. og 6. flokk karla með áherslu á það að vera góður liðsfélagi. Sama
dag var fræðsla fyrir foreldra allra iðkenda hjá félaginu um hvernig
væri best að styðja við barnið sitt í íþróttum.
„Fræðsludagurinn heppnaðist frábærlega og góð þátttaka foreldra
gerði gæfumuninn. Í vetur er stefnt að því að endurtaka leikinn með
áherslu á stelpurnar í sömu flokkum,“ sagði Marteinn Ægisson, fram-
kvæmdastjóri UMFÞ.
„Styrkurinn úr fræðslu- og verkefnasjóði kom að góðum notum þar
sem erfitt er fyrir félag eins og okkar að fá fjármagn fyrir fræðslu. Þróttur
hefur á hverju ári sótt um í sjóðinn og við nýtum við hann eingöngu til
fræðslu félagsmanna og annarra Þróttara,“ sagði Marteinn að lokum.
Út fyrir kassann í Vogunum
Fengu styrk til að færa sögu ungmennafélagsins í letur
Marteinn Ægisson (t.h.), kampakátur, með Hermanni Hreiðarsyni,
þjálfara knattspyrnuliðs Þróttar í Vogum.
Framtíðarknattspyrnumenn hjá Ungmennafélaginu Þorsteini Svörfuði.