Skinfaxi - 01.01.2023, Blaðsíða 4
4 S K I N FA X I
Sjálfboðaliðar eru ekki sjálfsagðir, þeir
eru fágæt og dýrmæt auðlind sem mikil-
vægt er að passa upp á. Sjálfboðaliðar
eru forsenda þess að íþrótta- og félagsstarf
gangi upp. Umræðan í félagsstarfi hefur lengi
verið að sjálfboðaliðum sé að fækka. Sífellt
sé erfiðara að fá fólk til að taka þátt í starfinu.
Samt er það svo undarlegt að þótt tími fólks
sé dýrmætur virðist alltaf einhver vera til í að
taka þátt, leggja sitt af mörkum, vera til staðar.
Dr. Ágúst Einarsson bendir á það í bók sinni
Íþróttir hérlendis í erlendu samhengi að hlut-
fall sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni er hærra
á Íslandi en í hinum Norðurlandaríkjunum.
Fyrir það erum við sem störfum í íþróttahreyf-
ingunni þakklát og stolt. Það væri líka virkilega
erfitt að halda íþróttamót fyrir börnin okkar ef
ekki væri fyrir manneskjurnar sem sinna sjálf-
boðaliðastörfunum. Þá væri enginn til að
dæma leikinn, enginn að skrá niður árangur-
inn í stökki, engin tímataka, enginn sem gistir
með liðinu, enginn að sinna sjoppuvaktinni.
Öll þessi verkefni sem sjálfboðaliðar sinna og
gera okkur öllum kleift að æfa íþróttir, keppa
og leyfa börnunum okkar að finna sitt áhuga-
mál.
Starf sjálfboðaliða getur verið mjög van-
þakklátt. Oft þurfa sjálfboðaliðar að taka við
kvörtunum, þrífa og taka til hendinni á einn
eða annan hátt svo að allir viðburðir geti farið
vel fram. Samt er sjálfboðaliðastarfið gef-
andi. Fólk sem sinnir sjálfboðaliðastörf-
um kynnist öðrum sem deila sama
áhugamáli eða sömu hugsjón. Fólki
sem það hefði annars ekki kynnst og
getur orðið stór hluti af lífi þess.
En hvað gerist þegar sjálfboða-
liða vantar? Líklega myndi allt
íþrótta- og félagsstarf landsins
lognast út af eða nauðsynlegt
yrði að borga fólki fyrir þessa
vinnu. Þá myndu félags-
gjöldin hækka. Að öllum
líkindum myndu margar
fjölskyldur ekki hafa efni
á að taka þátt í íþrótta-
starfinu. Fjáraflanir fyrir félögin eru bornar
uppi af iðkendum og sjálfboðaliðum. Kvenna-
kvöld, karlakvöld, þorrablót, ekkert af þessu
væri mögulegt ef ekki væru sjálfboðaliðar.
Þess vegna vil ég nýta þetta tækifæri til að
segja takk. Takk, öll þið sem leggið ykkur
fram við að gera íþróttalíf landsins mögulegt.
Takk, þú sem situr í stjórn deildarinn-
ar. Takk, þú sem mættir að mæla
á frjálsíþróttamótinu. Takk, þú
sem ert alltaf til í að skúra gólfið
eftir þorrablótið. Takk, þú sem
reddaðir búningunum sem
vantaði í leikritið. Takk, þú sem
stóðst í miðasölunni. Takk,
þú sem situr á ritaraborðinu.
Takk fyrir að gefa
dýrmæta tímann þinn.
Hallbera Eiríksdóttir er
sjálfboðaliði og á sæti
í varastjórn UMFÍ.
Efnisyfirlit
16 Viðtal við Hjörleif hjá HSH:
Sprenging í starfinu í Stykkishólmi
24 Embla Líf: Starf sjálfboðaliða er gott
fyrir ferilsskrána
32 Viktoría hjá Íþróttafélaginu Ívari:
Ljúft og skylt að gefa til samfélagsins
Leiðari Takk sjálfboðaliðar
18 Áskoranir tengdar sjálfboðaliðum
6 „Þar sem ég er hvort eða er að drepast...”
8 Íþróttahreyfingin undir sama þaki
10 Sara í Ungmennaráði UMFÍ
12 Ylva er nýr formaður NordUng
14 Allir geta verið með í ringó
20 Sjálfboðaliðar í íþróttahreyfingunni
21 Sjálfboðaliðar og forvarnir
22 Sjálfboðaliðar hjá UMFÍ
25 Jón Sverrir hjá HSÞ: Þurfum að snúa upp
á handlegginn á fólki
26 Hvernig fáum við sjálfboðaliða til starfa?
28 Sjálfboðaliðar og gullna vafflan
29 Norðmenn fræðast um íþróttafélög og
íþróttastyrki
30 Gunnar Helgason: Huga þarf að ábyrgð
sjálfboðaliða
31 Sjálfboðaliðar Rauða krossins funduðu á
Reykjum
34 Styrkir úr Fræðslu- og verkefnasjóði gefa
enn af sér
35 Félagar í USVS eru óendanlega stolt af
Fyrirmyndarbikarnum
36 Samstarf UMFÍ og ISCA: Flóttafólk og
íþróttir
38 Hvernig á að halda þessa fundi?
40 Gamla myndin: Konungsglíman 1907
41 Jóhann Steinar: Hjálpumst að svo allir
geti tekið þátt í íþróttastarfi
42 Ungmennafélagið Trausti: Spila pílu
undir Fjöllunum