Skinfaxi - 01.01.2023, Síða 6
6 S K I N FA X I
Skinfaxi 1. tbl. 2023
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags
Íslands, hefur komið út samfleytt síðan
1909. Tímaritið dregur nafn sitt af hest-
inum fljúgandi sem dró vagn goðsagna-
verunnar Dags er ók um himinhvolfið í
norrænum sagnaheimi.
R I TST J Ó R I
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.
Á BY R GÐA R M A Ð U R
Jóhann Steinar Ingimundarson.
R I T N E F N D
Gunnar Gunnarsson, Elísabet Ásdís
Kristjánsdóttir, Sigurður Óskar Jónsson,
Kristján Guðmundsson, Jóhanna Íris
Ingólfsdóttir og Embla Líf Hallsdóttir.
UM BR OT O G H Ö N N U N
Indígó.
P R E N T U N
Litróf.
AU GLÝS I N GA R
Hringjum.
FO R S Í Ð UMY N D
Myndina tók Jón Aðalsteinn Bergsveins-
son af sjálfboðaliða í Drulluhlaupi Krón-
unnar þegar það fór fram í Mosfellsbæ í
fyrsta sinn sumarið 2022.
L J ÓS MY N D I R
Margrét Hulda Óladóttir, Hafsteinn
Snær Þorsteinsson, Tjörvi Týr Gíslason,
Sabina Szkarłat, Jón Aðalsteinn
Bergsveinsson o.fl.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ, Engjavegi 6,
104 Reykjavík, s. 568 2929
umfi@umfi.is - www.umfi.is
UM F Í
Ungmennafélag Íslands, landssamband
ungmennafélaga á Íslandi, var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambands-
aðilar UMFÍ eru 27 talsins og skiptast í
22 íþróttahéruð og 5 ungmennafélög
með beina aðild. Alls eru um 480 félög
innan UMFÍ um land allt.
ST J Ó R N UM F Í
Jóhann Steinar Ingimundarson formaður,
Gunnar Þór Gestsson varaformaður,
Ragnheiður Högnadóttir meðstjórnandi
og formaður framkvæmdastjórnar, Guð-
mundur G. Sigurbergsson gjaldkeri,
Sigurður Óskar Jónsson ritari, Málfríður
Sigurhansdóttir meðstjórnandi og
Gunnar Gunnarsson meðstjórnandi.
VA R AST J Ó R N UM F Í
Hallbera Eiríksdóttir, Lárus B. Lárusson,
Gissur Jónsson og Guðmunda Ólafsdóttir.
STA R FS FÓ L K UM F Í
Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmda-
stjóri, Einar Þorvaldur Eyjólfsson fjármála-
stjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson kynn-
ingarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa, Ómar
Bragi Stefánsson landsfulltrúi og fram-
kvæmdastjóri Landsmóta (með aðsetur
á Sauðárkróki), Ragnheiður Sigurðar-
dóttir landsfulltrúi og verkefnastjóri og
Guðbirna Kristín Þórðardóttir ritari.
S KÓ L A BÚ Ð I R Á R E Y K J UM
Sigurður Guðmundsson forstöðumaður,
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, Andrea
Ólafsdóttir og Luis Augusto Aquino,
leiðbeinendur. Gísli Kristján Kjartansson
kokkur og Oddný Bergsveina Ásmunds-
dóttir aðstoðarkona í eldhúsi. Róbert
Júlíusson húsvörður og Elmar Davíð
Hauksson sér um þrif.
„Ég er hætt að vinna, var að
ganga frá dóti og gramsa í göml-
um skjölum. Þá rakst ég á bréfið
og hugsaði: Guð minn góður! Ég
þarf að koma bréfinu á sinn stað
áður en ég hrekk upp af,“ segir
Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir,
fyrrverandi formaður Héraðssam-
bands Austur-Húnvetninga. Hún
sat jafnframt í stjórn UMFÍ árin
1991 til 1997.
Á dögunum kom í pósti til
UMFÍ bréf sem innihélt vélritað
og upplýsandi bréf frá október
árið 1940 með fréttum af starfi
sambandsins og fyrirætlunum.
Fram koma í bréfinu ýmis mál sem varða ungmennafélagshreyfing-
una, Aðalsteinn Sigmundsson er kynntur til sögunnar sem nýr ritstjóri
Skinfaxa, rætt er um fjármögnun blaðsins og því velt upp hvort
UMFÍ eigi að greiða sérstakan umferðarkennara fyrir félagsfólk,
komið er inn á jarðrækt, bindindismál og margt fleira.
Bréfið er stílað á Ungmennafélagið Morgunroðann, sem
var eitt af athafnasömum aðildarfélögum Ungmennasambands
Austur-Húnvetninga. Heimilisfangið er Mánaskál í Laxárdal, en þar
bjó Torfi Sigurðsson. Umf. Morgunroðinn varð til upp úr sameiningu
Framsóknarfélagsins Laxdals og Heimilisiðnaðarfélagsins Hvatar á
þriðja áratug 20. aldar. Þegar bréfið barst til Mánaskálar árið 1940
hafði ungmennafélagið breytt um nafn.
Gefur góða mynd af ungmennafélaginu
Sigurlaug segir Torfa hafa ævinlega fundist mikið til bréfsins koma,
enda sé það afskaplega fallegt á allan hátt. Hann hafi því passað afar
vel upp á það í hálfa öld.
„Þegar ég var formaður Ungmennasambandsins kom Torfi til mín
og dró bréfið upp úr pússi sínu. Síðan sagði hann: „Þar sem ég er
hvort eð er að fara að drepast þá vil ég láta þig hafa þetta bréf af því
að mér finnst það svo merkilegt.“ Hann taldi það best geymt hjá mér.
En þetta er langt síðan, líklega nálægt þrjátíu árum, og Torfi löngu
dáinn. Þegar ég fann bréfið svo í tiltektinni hjá mér varð ég að koma
því til UMFÍ því ég vildi ekki eiga það ofan í skúffu heima hjá mér ef ég
hrykki upp af. Bréfið á heima hjá UMFÍ. Þar er það í góðum höndum.
Bréfið gefur svo góða og skýra mynd af því hvernig lífið í ungmenna-
félaginu var í kringum 1940,“ segir Sigurlaug.
„Þar sem ég er hvort eð
er að drepast …“
Gamall bóndi í Austur-Húnavatnssýslu fór með gamalt fréttabréf UMFÍ eins og dýrgrip. Hann
lést fyrir mörgum árum en vildi að bréfið færi í góða geymslu. UMFÍ fékk bréfið á dögunum.
Bréfið er upp á fjórar
þéttskrifaðar vélritað-
ar blaðsíður þar sem
greint er frá ýmsu í
starfi UMFÍ og er stór
örk sem þurfti að
brjóta vel saman til að
komast í umslagið.
Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir.