Skinfaxi - 01.01.2023, Side 8
8 S K I N FA X I
Þ
jónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík hefur verið á nokkrum
stöðum í gegnum tíðina. Hún var í Sigtúni 42 frá 2010 og
deildi þar húsnæði með Öryrkjabandalagi Íslands (ÖBÍ) og
Brú lífeyrissjóði. Í febrúar 2022 var svo greint frá því að ÖBÍ
hefði keypt hlut UMFÍ í húsinu. Nær samstundis var hafist handa við
að leita að nýju húsnæði fyrir þjónustumiðstöðina.
ÖBÍ keypti húsnæðið til að koma aðildarfélögum sínum undir eitt
þak. Nokkuð umfangsmiklar framkvæmdir voru fyrirhugaðar í Sigtún-
inu og eftir sambandsráðsfund UMFÍ flutti þjónustumiðstöðin úr húsinu.
Starfsfólkið í Reykjavík var til skamms tíma á leiguskrifstofu í Hafnartorgi
en flutti nær áramótum á skrifstofu Ungmennasambands Kjalarnes-
þings (UMSK) í Íþróttamiðstöðinni.
Lendingin varð síðan sú að stjórnir ÍSÍ og UMFÍ sömdu um að þjón-
ustumiðstöðin yrði á þriðju hæð Íþróttamiðstöðvarinnar, þar sem
kunnuglegir ráðstefnusalir höfðu verið um árabil. Ráðast þurfti í tals-
verðar breytingar á hæðinni og var helmingur hennar hugsaður sem
þjónustumiðstöð UMFÍ. Farið var í stórtækar framkvæmdir við að
breyta öðru rými á hæðinni í ráðstefnusali.
Íþróttahreyfingin
undir sama þaki
Ákveðin tímamót urðu í sögu UMFÍ á árinu þegar þjónustumiðstöðin flutti í
Íþróttamiðstöðina við Engjaveg í Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn sem ÍSÍ og
UMFÍ eru undir sama þaki.
Margar hendur komu að gerð þjónustumiðstöðvar UMFÍ. Leifur
Welding hannaði útlit þjónustumiðstöðvarinnar, en áhrifa hans gætir
víða. Meðal hönnunarverka hans eru margir af vinsælustu og feg-
urstu veitingastöðum landsins, svo sem mathöllin í Pósthúsinu við
Pósthússtræti, Grillmarkaðurinn, Fiskfélagið, Steikhúsið og Hótel
Geysir. Svo mikla athygli vekja verk Leifs að erlend hönnunartímarit
hafa skrifað greinar um þau.
Þjónustumiðstöð UMFÍ hefur einmitt vakið mikla athygli í Íþrótta-
miðstöðinni. Hún er ekki aðeins glæsileg, heldur hefur hún þróast út
í að verða viðkomustaður margra tengdra íþróttum, enda er stór hluti
íþróttahreyfingarinnar nú undir sama þaki. Í Íþróttamiðstöðinni eru
bæði Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) og Ungmennasamband Kjalar-
nesþings (UMSK), mikill fjöldi sérsambanda og Íþrótta- og Ólympíu-
samband Íslands (ÍSÍ).
Mikill gestagangur hefur verið í þjónustumiðstöð UMFÍ síðan hún
var opnuð í mars sl. og hefur það leitt af sér mun betri tengingar og
miklu meiri kraft innan íþróttahreyfingarinnar en áður hefur þekkst.
Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ tekur við blómvendi frá Lárusi Blöndal forseta ÍSÍ.