Skinfaxi - 01.01.2023, Blaðsíða 9
S K I N FA X I 9
„Til hamingju með glæsilega aðstöðu,“ segir Flemming Jessen, íþrótta-
kennarinn fyrrverandi, við hóp fólks úr stjórn Félags áhugafólks um
íþróttir aldraðra (FÁÍA) sem kom í heimsókn í nýja þjónustumiðstöð
UMFÍ í lok mars. Hópurinn hóf heimsóknina á hádegisverði á fyrstu
hæð hússins áður en kíkt var í þjónustumiðstöð UMFÍ.
„Heimsóknin var höfðingleg og dagurinn skemmtilegur, sem ég
vona að við endurtökum í haust,“ segir Flemming, en með í för voru
þau Hjörtur Þórarinsson, Kolfinna Sigurvinsdóttir, Þórey S. Guðmunds-
dóttir og Eygló Alexandersdóttir. Með á myndinni er hluti af hópi
starfsfólks UMFÍ í þjónustumiðstöðinni í Reykjavík.
FÁÍA hóf störf árið 1985 og vann að því að kynna ýmsar íþrótta-
greinar og leiki fyrir eldri borgara. Á meðal nýju greinanna sem félagið
tók upp á sína arma og kynnti hér á landi í fyrsta sinn voru ringó, botsía
og fleiri greinar sem UMFÍ tók síðar upp á Landsmóti UMFÍ 50+. Slag-
orð félagsins hefur ævinlega verið: Það er aldrei of seint að hreyfa sig!
Frá vinstri: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Guðfinna Birna Þórðardóttir,
Kolfinna Sigurvinsdóttir, Þórey S. Guðmundsdóttir, Flemming Jessen,
Eygló Alexandersdóttir, Auður Inga Þorsteinsdóttir, Hjörtur Þórarinsson
og Ragnheiður Sigurðardóttir.
Heimsóttu nýju þjónustumiðstöðina