Skinfaxi - 01.01.2023, Síða 10
10 S K I N FA X I
„Mér finnst ótrúlega gaman í Ungmennaráðinu, er búin að kynnast þar
frábæru fólki og fá fullt af geggjuðum tækifærum,“ segir Sara J. Geirs-
dóttir. Hún á sæti í Ungmennaráði UMFÍ, sem fundaði í fyrsta sinn í
mars í nýrri þjónustumiðstöð UMFÍ. Þetta var fimmtándi fundur ráðsins
á starfstímabilinu. Fundað hefur verið á ýmsum stöðum, í Grafarvogi
með ungmennaráði þar, með fjarfundarbúnaði og með ýmsum öðrum
hætti. Fundurinn í Grafarvogi var fyrsti fundur ráðsins með ungmenna-
ráði Grafarvogs, en fundað var á skrifstofu ungmennafélagsins Fjölnis
í Egilshöll. Félagið var með beina aðild að UMFÍ þar til Íþróttabanda-
lag Reykjavíkur (ÍBR) gerðist sambandsaðili.
Fundurinn í þjónustumiðstöðinni var fyrsti staðfundur ráðsins á
nýjum stað og mættu allir úr ráðinu á fundinn, meira að segja tveir
meðlimir sem eru í meistaranámi í Kaupmannahöfn.
Í ungmennaráði UMFÍ sitja ungmenni 16 ára og eldri af landinu öllu.
Sara, sem er fremst á myndinni vinstra megin, er einmitt með þeim
yngri. Hún er 16 ára.
Hún segir nóg um að vera í Ungmennaráðinu. Það sé á fullu að undir-
búa nokkur verkefni, þar á meðal skemmtisólarhring, sem er tækifæri
fyrir ungt fólk til að koma saman og kynnast nýju fólki. Auk þess undir-
býr ráðið viðburðinn Samtal ungmennaráða, þar sem fulltrúum allra
ungmennaráða á Íslandi er boðið að deila reynslu sinni. Stærsti við-
burður Ungmennaráðs UMFÍ er ungmennaráðstefnan Ungt fólk og
lýðræði, sem verður haldin í Skólabúðum UMFÍ að Reykjum í Hrúta-
firði dagana 22.–24. september. Yfirskrift ráðstefnunnar verður Að
jörðu skaltu aftur verða og verður áherslan á umhverfismál.
Sara segir fróðlegt að vera í Ungmennaráði UMFÍ.
„Ég er alltaf að læra nýja hluti. Þetta er mjög eflandi og ég mæli með
því fyrir alla!“ segir hún.
Ungmennaráð UMFÍ er skipað níu ungmennum á aldrinum
16–25 ára. Við skipun í ráðið er horft til þess að þau sem í því
sitja séu á öllum aldri, af öllum kynjum og séu á einhvern hátt
þverskurður af ungu fólki. Helsta hlutverk ráðsins er að vera
stjórn UMFÍ til ráðgjafar um málefni ungs fólks og skipuleggja
og standa fyrir viðburðum fyrir ungt fólk. Fundir ráðsins eru
alla jafna haldnir á 4–6 vikna fresti ýmist með fjarfundarbúnaði
og/eða sem staðfundir.
Nýr meðlimur kom inn í Ungmennaráð UMFÍ á vordögum.
Sá heitir Ernir Daði Arnbergz og er frá Hvanneyri. Hann er á
16. ári og æfir knattspyrnu með ÍA, er fulltrúi í Ungmennaráði
Borgarbyggðar og í nemendafélagi grunnskólans. Ernir hefur
tekið þátt á Unglingalandsmótum UMFÍ frá 10 ára aldri og komið
sem gestur á ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði.
Sara í Ungmennaráði UMFÍ:
Fullt af geggjuðum tækifærum
Ungmennaráð UMFÍ samanstendur af ungu fólki frá 16 ára aldri. Yngsti meðlimur ráðsins
er orkubolti frá Suðurlandi sem flutti í borgina til að fara í framhaldsskóla í Ármúla.
Hrefna Dís Pálsdóttir, Halla Margrét Jónsdóttir og Sara J. Geirsdóttir.