Skinfaxi - 01.01.2023, Síða 12
12 S K I N FA X I
Ylva Sóley Jóhanna Þórsdóttir Planman var nýlega kjörin formaður
norrænu ungmennasamtakanna Nordisk Ungdomsorganisation
(NordUng). Ylva Sóley sem á foreldra frá Svíþjóð og Íslandi, flutti sex
ára til Svíþjóðar en hefur frá árinu 2019 verið búsett í Mosfellsbæ.
Ylva tekur við formannsembættinu af Rene Lauritsen, sem verið hefur
formaður NordUng frá árinu 2017.
Ylva er fyrsta konan til að setjast í formannsstól NordUng síðan Anna
Ragnheiður Möller var formaður þeirra árin 2002 til 2012. Ylva situr
í stjórn ungmennasamtakanna fyrir hönd sænska félagsins FNUF –
Föreningarna Nordens Ungdomsförbund.
Samtök fyrir ungt fólk
NordUng var áður stytt sem NSU og hefur UMFÍ lengi verið samstarfs-
aðili samtakanna. NordUng eru samtök æskulýðsfélaga á Norðurlönd-
unum og í Eystrasaltsríkjunum. Á þeim vettvangi hafa samtökin unnið
mörg sameiginleg verkefni sem tengja Norðurlöndin og Eystrasalts-
ríkin saman.
Ylva er nýr
formaður
NordUng
Norrænu ungmennasamtökin NordUng
héldu aðalfund sinn í mars nýrri
þjónustumiðstöð UMFÍ. Nýr formaður
samtakanna býr í Mosfellsbæ.
Lee Jenner, nýr framkvæmdastjóri NordUng, kveður Piu Winsten með
gjöf. Pia lætur af störfum í júní. Lee er frá Eistlandi en Pia frá Finnlandi.
Mörg námskeið NordUng í öðrum löndum
NordUng stendur fyrir ýmsum viðburðum á árinu, þar á meðal
í Cluj í Rúmeníu, Vilníus í Litháen og Tromsö í Noregi.
Allar ítarlegri upplýsingar má finna á www.nordung.org
Sara J. Geirsdóttir, sem á sæti í Ungmennaráði UMFÍ, tók þátt í vinnu-
stofu NordUng, sem fór fram í gamla Héraðsskólanum á Laugarvatni
um miðjan mars á undan aðalfundinum. Hún og fleiri íslenskir þátttak-
endur komu á þriðjudag og gistu þar fram á föstudag.
Vinnustofurnar voru með þeim hætti að þátttakendum var skipt í
þrjá hópa og unnu þeir verkefni sem ýmist fjölluðu um samfélagsmál,
fullorðinsfræðslu eða ýmis önnur mál tengd því hvað gott er að kunna
áður en maður kemst á fullorðinsár.
„Ég var aðallega í hópi sem ræddi um það hvernig það er að full-
orðnast. Við unnum verkefni í tengslum við það og bjuggum til kynn-
Halla, Ylva og Rene, fráfarandi formaður NordUng.
Stjórnir og starfsfólk UMFÍ og NordUng þegar þær hittust. Fremst á
myndinni má sjá Jóhann Steinar Ingimundarson, formann UMFÍ, við
hlið Rene, fráfarandi formanns NordUng.
Á meðal verkefnanna eru ungmennaskipti, ungmennavikur, mark-
miðaráðstefnur og margt fleira sem meðlimir Ungmennaráðs UMFÍ
hafa meðal annars skipulagt og sótt. Eitt af verkefnum NordUng á
næstunni er skipulagning ungmennaviku á Grænlandi.
Ungmennasamtökin hafa í gegnum tíðina fundað víða á Norður-
löndunum, þar á meðal nokkrum sinnum hér á landi og þá í þjónustu-
miðstöð UMFÍ í Reykjavík. Samtökin héldu aðalfund sinn í mars og
fór hann fram í nýrri þjónustumiðstöð UMFÍ í Íþróttamiðstöðinni við
Engjaveg.
Stjórn NordUng hitti stjórn og starfsfólk UMFÍ daginn áður, þar sem
snæddur var kvöldverð saman og rætt um ýmis mál tengd ungu fólki.
Aðalfundinn sátu fulltrúar NordUng frá Norðurlöndunum, Eystra-
saltsríkjunum og Þýskalandi. Ylva tók þar við af Rene auk þess sem nýr
framkvæmdastjóri, Lee Jenner, tók við keflinu.
Fulltrúi UMFÍ og Ungmennaráðs UMFÍ í stjórn UngNord nú er Halla
Margrét Jónsdóttir.
ingarmyndband sem verður sýnt á leiðtoganámskeiði í Danmörku í
maí. En síðan fórum við að skoða Gullfoss, Geysi og Þingvelli, fórum í
Fontana, spiluðum og gerðum margt annað skemmtilegt,“ segir Sara.
Hvað þarf að kunna áður en maður fullorðnast?