Skinfaxi - 01.01.2023, Blaðsíða 17
S K I N FA X I 17
Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson hefur um ára-
bil starfað í þágu UMFÍ. Í dag gegnir hann formanns-
hlutverki í Héraðssambandi Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu, en undir sambandinu starfa íþróttafélög í
Snæfellsbæ og Stykkishólmi.
E ins og margir lesendur Skinfaxa hafa þegar frétt verður Lands-
mót UMFÍ 50+ haldið í Stykkishólmi um Jónsmessuna á þessu
ári og hefur Hjörleifur tekið að sér að vera formaður
framkvæmdanefndar mótsins. Óhætt er að fullyrða að þar
fari maður með reynslu, því á næsta ári eru liðin þrjátíu ár frá því að
Hjörleifur kom fyrst við sögu í starfi UMFÍ.
„Ég er búinn að vera sjálfboðaliði frá 1994. Byrjaði á því að fylgja
börnum í íþróttastarf og fór í stjórnina þetta sama ár. Krakkarnir mínir
voru þá að æfa frjálsar, körfu og fótbolta. Sá yngsti er enn að spila körfu-
bolta og miðbarnið er komið í stjórnina með yngri flokka stjórn körfu-
boltans,“ segir Hjörleifur og bætir við að það sé nóg um að vera því
iðkendur núna séu á bilinu 180 til 200 og á öllum aldri.
Hægara að fara í en úr að komast
Spurður að því hvernig hann hafi tollað svona lengi í starfinu segir
Hjörleifur að það sé hægara að fara í en úr að komast.
„Það er ekki fólk á hverju strái til að taka við og mig langar heldur
ekkert endilega úr þessu strax. Ég er alltaf að telja sjálfum mér trú um
að ég hafi eitthvað fram að færa,“ segir hann og hefur rétt fyrir sér í
því, þar sem hann hefur lagt ótal lóð á vogarskálarnar sem hafa eflt
íþróttastarf í Snæfellsbæ og Stykkishólmi.
„Það gefur mér helling að láta gott af mér leiða. Ég tek þátt í alls
konar verkefnum og hef séð um marga þætti. Á köflum hefur þetta
verið töluvert mikið en álagið minnkar þegar manni tekst vel að virkja
fólk með sér. Þegar það tekst er lítið mál að vera formaður. Árið 2021
var gerður útikörfuboltavöllur í sjálfboðavinnu. Það tók nokkra daga
og það var fínasta mæting. Ég kallaði bara fólk til eftir því sem þurfti
og það var hellingur sem mætti. Við byrjuðum á þessu í ágúst og það
var klárað í október. Þá sendum við út boð á Facebook að það vantaði
fólk sem gæti lagt okkur lið eftir vinnu og það voru alltaf einhverjir sem
mættu,“ segir Hjörleifur, sem hefur leitt margs konar sjálfboðavinnu í
gegnum árin sem jafnframt hefur leitt til fjáröflunar fyrir félagið.
„Við máluðum til dæmis grindverkið í kringum körfuboltavöllinn
síðasta sumar. Bærinn borgaði okkur fyrir þá vinnu og sá peningur fór
í fjáröflun fyrir deildir félagsins. Það var gaman að koma að svona dæmi,“
segir hann og bætir við að margt breytist í samfélaginu um leið og
starfið eflist. „Núna erum við með meistaraflokka í körfubolta karla og
kvenna. Fólk mætir á leiki og það gengur vel. Góð samstaða myndast
og þar af leiðandi góð stemning. Það er gott að sjá þetta vaxa og daf-
na. Við þurfum bara að fá stærra íþróttahús. Það gengur illa að koma
öllum fyrir svo að vel sé. Þegar það verður svona sprenging í þessu
góða og uppbyggilega starfi verður að vera pláss fyrir alla.“
Hundrað prósenta þátttaka hjá þeim
yngstu
Síðustu árin hefur iðkendum fjölgað mjög hratt hjá aðildarfélögum HSH.
Vöxturinn hefur verið sérstaklega hraður síðastliðinn vetur. Hjörleifur
segir þetta mögulega skýrast af vakningu hjá foreldrum og börnum
um að börnin byrji snemma að stunda íþróttir.
„Fólk er líka eflaust glatt að losna úr Covid-leiðindunum og langar
að vera í félagsskap við aðra. Ég hef heyrt að sums staðar á landinu hafi
þátttaka dregist saman en svo er ekki hér í Stykkishólmi, því hér færist
allt í aukana,“ segir hann, en í Stykkishólmi er boðið upp á þjálfun í
körfubolta, fótbolta og badminton.
„Ég held að ég geti fullyrt að það sé hundrað prósenta þátttaka í
starfinu hjá þessum yngstu,“ segir Hjörleifur.
Engum þarf að leiðast á Landsmóti 50+
En hvernig skyldi ganga að undirbúa landsmótið fyrir 50+?
„Það hafa þegar verið haldnir nokkrir fundir og þetta er allt á góðri
leið,“ segir formaðurinn.
„Það verður keppti í botsía, pútti og golfi sem golfklúbburinn sér
um, frjálsum, sundi, hestaíþróttum, borðtennis, badminton, pílu og
ríngó sem er einhvers konar afbrigði af blaki,“ segir hann og útskýrir
að í ríngó séu tveir í liði sem kasti hringjum yfir net og að tveir hringir
þurfi alltaf að vera í loftinu í einu.
„Svo er keppt í frisbígolfi, en við erum með fínan völl í það sem var
settur upp fyrir tveimur árum,“ segir hann.
Spurður hversu mörgum gestum hann eigi von á segir hann svolítið
erfitt að ráða í það en bætir við að engum þurfi að leiðast. „Mótið verð-
ur haldið með Dönskum dögum á Jónsmessu, þannig að það verður
nóg um að vera. Ball með Stjórninni á laugardagskvöldinu og alls konar
uppákomur. Svo háttar svo skemmtilega til að þetta verður allt á sama
blettinum; íþróttavöllurinn, sundlaugin, golfvöllurinn og tjaldstæðið
þar mitt á milli,“ segir hann og þá er líklegast ráð að bóka gistipláss
með góðum fyrirvara því mótið lofar sannarlega góðu.
Ungar íþróttakempur úr Snæfelli.