Skinfaxi - 01.01.2023, Síða 19
S K I N FA X I 19
Sjálfboðaliðar
gegna lykilhlutverki
Fjöldi fólks flutti ávarp á ráðstefnunni. Þar ber fyrstan að nefna Ásmund
Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sem setti ráðstefnuna.
Ásmundur sagði meðal annars að með öflugu íþrótta- og æskulýðs-
starfi væru byggðir upp sterkir einstaklingar.
„Þar gegna sjálfboðaliðar lykilhlutverki, án þeirra væri starfið ekki
mögulegt. Öll viljum við búa í góðu samfélagi. Samfélag þar sem ein-
staklingar eru tilbúnir að ráðstafa tíma sínum og orku í þágu heildar-
innar er gott samfélag. Sjálfboðaliðastarf tengt íþrótta- og æskulýðs-
félögum er ómetanlegt og mikilvægt að ræða hvernig hægt er að
viðhalda og efla slíkt starf í nútímasamfélagi,“ sagði hann.
Á meðal annarra frummælenda voru:
• Viðar Halldórsson, prófessor á félagsvísindasviði Háskóla Íslands
• Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir, Íþróttabandalagi Reykjavíkur
• Jóhann Þór Jónsson, formaður unglingaráðs
knattspyrnudeildar Breiðabliks
• Sigurbjörg Birgisdóttir, sérfræðingur í sjálfboðaliðastjórnun
hjá Rauða krossi Íslands
• Guðbrandur Örn Arnarson, verkefnastjóri hjá Landsbjörg
• Guðmundur Ari Sigurjónsson, sérfræðingur
hjá Rannís
• Katrín Kemp Stefánsdóttir, skátahöfðingi
Erindi allra er hægt að sjá og heyra hér:
Af hverju?
Ýmsar mögulegar skýringar geta verið á breytingar sem hafa
orðið á sjálfboðaliðastarfi á Norðurlöndunum í gegnum árin.
• Fólk sem býður sig fram sem sjálfboðaliða er síður en áður
skráð félagar í samtökunum sem unnið er fyrir.
• Fólk vinnur skemur en áður sem sjálfboðaliðar.
• Fólk bindur sig síður einum samtökum en áður og
kýs frekar að fara á milli félaga.
• Algengara er nú en áður að frjáls félagasamtök ráði
starfsfólk til að sinna verkefnum í stað sjálfboðaliða.
Fagmennska verður þá meiri en áður. Þegar félög
fagvæðast er minni þörf fyrir sjálfboðaliða.
• Tækniþróun kann að skýra að færri fara á opna fundi
en áður til að tjá sig. Það er hægt að gera á samfélags-
miðlum eða með fjarfundarbúnaði.
Bakgrunnur sjálfboðaliða
• 30–49 ára
• Gift(ur)
• Háskólamenntun
• Atvinnustaða
• Börn á heimili
• Búseta
• Ekki munur á milli kynja
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, flytur ávarp á ráðstefnunni Alveg sjálfsagt – sjálfboðaliðar í íþrótta- og æskulýðsstarfi, á
alþjóðlegum degi sjálfboðaliðans.