Skinfaxi - 01.01.2023, Page 21
S K I N FA X I 21
Dr. Ágúst Einarsson hagfræðingur fjallar ítarlega um störf sjálfboðaliða
og hagræn áhrif af vinnu þeirra fyrir íþróttahreyfinguna í bók sinni
Íþróttir hérlendis í alþjóðlegu samhengi sem kom út árið 2021. Ágúst
segir mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því hversu margir starfi innan
íþróttageirans hér á landi í launuðu og ólaunuðu starfi. Þeir sem eru í
launaðri vinnu eru ekki alltaf í fullri vinnu heldur í hlutastörfum, sem er
algengt form innan íþróttahreyfingarinnar.
Á meðal fjölmargra sjálfboðaliða innan íþróttahreyfingarinnar eru
foreldrar barna sem æfa íþróttir. Þeir hjálpa oft við ýmislegt sem tengist
æfingum og keppnum barna sinna. Stjórnarmenn í íþrótta- og ung-
mennafélögum vinna líka oft ótrúlega mikið starf af hendi fyrir sitt félag.
Ágúst segir ljóst að rekstur íþróttafélaga á Íslandi myndi aldrei ganga
án sjálfboðaliða og að umfang og verðmæti starfa þeirra sé ákaflega
vanmetið í allri umræðu. Verðmætasköpunin sé mikils virði fyrir íþrótta-
hreyfinguna, ekki aðeins í peningum talið heldur einnig í þeim ávinn-
ingi sem skapist af starfi sjálfboðaliða. Þar á meðal eru jákvæðu áhrifin
á börn og unglinga og fyrirbyggjandi atriði sem varða lífsstíl og heilsu.
Ágúst segir enn fremur að verðmætin felist ekki síst í þeim fyrir-
byggjandi áhrifum sem sjálfboðaliðastarf og íþróttir hafi í för með sér.
Þau séu gríðarleg, bæði fyrir börn og ungt fólk ekki síður en eldri
borgara, því hreyfing og annað sem fylgi íþróttum dragi úr heilbrigðis-
kostnaði framtíðarinnar.
Áskoranir í starfi sjálfboðaliða
Ágúst telur hugsanlegt að fjarað geti undan vinnu sjálfboðaliða í tengsl-
um við unglingastarfið á næstunni. Ástæðurnar geta verið af ýmsum
toga sem geti veikt starfið, svo sem kröfur um meiri afreksáherslur og
sigur í keppnum, sem hann flokkar til skammtímaárangurs.
Sjálfboðaliðar og forvarnir