Skinfaxi - 01.01.2023, Side 24
24 S K I N FA X I
Embla Líf Hallsdóttir er formaður Ungmenna-
ráðs UMFÍ. Ráðið vinnur að undirbúningi ung-
mennaráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði og við-
burðinum Samtal ungmennaráða, sem er vett-
vangur fyrir ungmennaráð af öllu landinu.
„Við þurfum svolítið að útskýra fyrir fólki að við fáum ekkert greitt fyrir
vinnuna okkar, jafnvel þótt við hvetjum aðra í öðrum ungmennaráðum
til að fá greitt fyrir störf sín,“ segir Embla Líf Hallsdóttir, formaður Ung-
mennaráðs UMFÍ.
Vinna í ungmennaráðinu er sjálfboðaliðastarf með sama hætti og
seta í stjórn UMFÍ. Þetta er þó mikil vinna, sérstaklega við undirbúning
viðburða ráðsins. Ungmennaráðið er að undirbúa viðburði eins og
samtal ungmennaráða, skemmtisólarhring og fundi með öðrum ráðum
auk stóru ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði, sem verður í september.
„Þetta er heilmikil vinna, enda erum við að vinna að mörgu sem hef-
ur sjaldan verið gert, þar á meðal samtali ungmennaráða, þar sem öll-
um ungmennaráðum á landinu er boðið í samtal. Okkur fannst vanta
vettvang fyrir ungmennaráðin, stað þar sem þau gætu hist og rætt
saman um starfið. Við þurfum ekki að finna upp hjólið í hverju horni
heldur getum við gert það saman. Nú stefnum við á einn fund í Reykja-
vík og annan á Akureyri. Við erum búin að funda fimmtán sinnum um
þessi verkefni og hver fundur er allavega ein og hálf klukkustund. Þetta
er dágóður tími þegar allt er tekið saman,“ segir Embla.
Gaman fyrir ungt fólk að taka þátt
Í ungmennaráði UMFÍ sitja átta einstaklingar af öllu landinu á aldrinum
16–25 ára. Venjulega er ráðið endurnýjað með sambærilegum hætti
og aðrar nefndir UMFÍ, á sambandsþingum sem haldið er á tveggja ára
fresti. Nýverið samþykkti þó stjórn UMFÍ ósk ungmennaráðsins um að
seta í ráðinu yrði opnari svo að ungmennaráðið gæti endurnýjað sig
hraðar. Mikið er líka um að vera hjá meðlimum ráðsins, sem flestir eru í
fullu námi og virkir í fleiri ráðum á borð við ungmennaráð sveitarfélaga.
Sara J. Geirsdóttir, sem situr í ungmennaráði UMFÍ, á einmitt sæti í
ungmennaráði UNICEF.
Embla byrjaði sömuleiðis snemma að vinna í ungmennaráðum. Það
fyrsta var Ungmennaráð Mosfellsbæjar, sem hún tók sæti í þegar hún
var í tíunda bekk í grunnskóla. Tilurð þessa segir hún þá að deildar-
stjóri í skólanum hafi komið að máli við sig og spurt hvort hún væri til
í að prófa að sitja í ráðinu. Það gerði hún og fannst gaman, enda tók
ráðið virkan þátt í starfi sveitarfélagsins.
Sjálfboðastarf er gott fyrir ferilskrána
Embla situr enn í fjölda annarra ráða og nefnda, meðal annars sem
forseti nemendafélagsins á Bifröst. Hún segir þetta gott fyrir framtíðina
og hvetur því ungt fólk til að setjast í ráð og nefndir og sinna starfi
sjálfboðaliða.
„Ég er með skjal þar sem ég held utan um alla sjálfboðaliðavinnuna
mína og nefndirnar sem ég sit í. Þar færi ég inn tilvísanir á greinar og
viðtöl. Þetta er gott fyrir ferilskrána og bætir hana,“ segir Embla en
leggur jafnframt áherslu á að halda verði vel utan um alla sjálfboðaliða,
hvaða starfi sem þeir sinna, því ef mikið verði á þá lagt sé hætt við að
þeir bugist, brenni út og hætti.
„Fólk þarf að vilja halda áfram og taka þátt á öllum aldri. Starf sjálf-
boðaliða á líka að vera gaman því við tökum svo margt að okkur. Þess
vegna skiptir máli að lyfta starfinu upp og sýna hvað það er skemmti-
legt. En maður þarf að vera skipulagður til að sinna þessu starfi,“ segir
hún og mælir með því að viðurkenna verðmæti starfa sjálfboðaliða
með einhverjum hætti til að sýna betur ávinning þess, bæði afrakstur
vinnunnar og áhrifin á sjálfboðaliðann sjálfan.
„Störf sjálfboðaliða eru mikilvæg samfélagsleg verkefni, hluti af
félagsfærni og leiðtogaþjálfun. Þetta er svo mikil reynsla. Margir þættir
spila inn í og fólk þarf að fá eitthvað fyrir vinnu sína. Þess vegna gæti
það hjálpað ungu fólki að meta störf þess til eininga í skólum. Sjálf
held ég áfram að sitja í ráðum af því að ég finn að vinna mín skilar sér
til annarra, ég er að gera gagn,“ segir Embla Líf.
Starf sjálfboðaliða er gott
fyrir ferilskrána