Skinfaxi - 01.01.2023, Síða 28
28 S K I N FA X I
„Sú tilfinning að sjálfboðaliðastarf sé að deyja
út er alltaf til staðar. Hluti vandamálsins er að
sjálfboðaliðasamtök ætla sér að breyta heimin-
um á stuttum tíma, sem er ekki raunhæft. Við
verðum að beina sjónum okkar frá því ómögu-
lega yfir á það sem við getum raunverulega
gert,“ segir Johan Conradson, yfirráðgjafi hjá
íþróttahéraðinu Viken í Noregi.
Johan var aðalgestgjafi fulltrúa íþróttahreyf-
ingarinnar þegar um 40 fulltrúar frá UMFÍ og
aðildarfélögum heimsóttu íþróttahéraðið um
miðjan mars árið 2022. Viken er fylkið sem nær
utan um Oslóarborg. Þar búa um 1,2 milljónir
manna í 51 sveitarfélagi. Hjá íþróttahéraðinu
starfa 18 starfsmenn á sex sviðum.
Í Noregi er eitt íþróttasamband en undir því
eru 11 íþróttahéruð, jafn mörg og fylkin, en
Norðmenn hafa einu stjórnsýslustigi meira en
við. Fylkjunum er samt að fjölga, ákveðið hef-
ur verið að skipta Viken, sem áður voru þrjú
Sjálfboðaliðar fá gullnu vöffluna
Fulltrúar íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar
lærðu margt í ferð sinni til Noregs fyrir ári.
Gullna vafflan
Hagsmunasamtök sjálfboðaliða í Noregi
(Frivillighet Noreg) í samvinnu við norska
ríkið standa fyrir ári sjálfboðaliðans þar í
landi. Hjá norska íþróttasambandinu er
mánaðarlega afhent verðlaunin gullna
vafflan og haldið úti samnefndu hlaðvarpi
(Gullvaffel-podden). Nafnið er tilkomið af
því að „þegar þú vinnur sem sjálfboðaliði
fyrir íþróttafélag þá bakarðu ógrynni af
vöfflum!“ sögðu gestgjafarnir í Viken.
Íþróttahéröðin í Viken í Noregi.
fylki, aftur upp í tvö. Ekki stendur þó til að
skipta upp héraðssambandinu. Til hliðar við
þau eru 54 sérsambönd. Í flestum sveitar-
félögum starfar síðan íþróttaráð, sem heldur
meðal annars utan um mannvirkjagerð. Sér-
samböndin síðan líka upp í svæðisbundin ráð.
Íþróttafélögin sjálf eru síðan tæplega 7600
talsins, voru um 12.000 fyrir nokkrum árum.
Þótt þeim hafi fækkað hefur fjöldi iðkenda
haldist. Innan Viken eru tæplega 1500 félög
með rúmlega 400.000 félaga.
Johan benti á að norsku sjáfboðaliðasam-
tökin (Frivillighet Norge) fá alltaf fleiri sjálfboða-
liða. Þar er fullt af fólki, sem vill leggja lið.
Ekkert veiti fólki í raun jafn mikla ánægju og
að hjálpa öðrum.
„En ef þú spyrð bara þá sem eru þegar
virkir í félaginu færðu nei því þeir eru þegar
uppteknir,“ benti Johan samt á.