Skinfaxi - 01.01.2023, Page 29
S K I N FA X I 29
T
æpur 30 manna hópur Norð-
manna sem öll vinna við íþróttir í
ólíkum sveitarfélögum Rogaland
fylkis heimsótti Ísland um miðjan
apríl til að fræðast um íþrótta-
starfið á Íslandi, um frístundastyrki, skipulag
og fjármögnun íþróttafélaga , tengsl skóla og
frístundastarfs og margt fleira.
Rogaland er í suðvesturhluta Noregs og
eitt af ellefu fylkjum landsins. Íbúar Rogalands
eru meira en hálf milljón.
Uppbygging og sérkenni
Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri fræðslu- og
almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, og Auður Inga
Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, voru
með fyrirlestra fyrir hópinn um uppbyggingu
íþróttahreyfingarinnar á Íslandi og um sér-
kenni barna- og unglingastarfs hér á landi.
Að auki voru þær hópnum innan handar þá
tvo daga sem heimsókn þeirra stóð yfir.
Íþróttamannvirki skoðuð
Hópurinn fór í heimsókn í Laugardalshöllina
þar sem Birgir Bárðarson framkvæmdastjóri
hallarinnar tók á móti hópnum. Þaðan var ferð-
inni heitið til Ármanns þar sem Jón Þór Ólason
framkvæmdastjóri tók á móti hópnum, sagði
frá félaginu og sýndi mannvirkin. Næsti við-
komustaður var Laugardalsvöllur, þar sem
Kristinn V. Jóhannsson tók á móti hópnum og
gekk með þau um mannvirkið og að lokum
skoðaði hópurinn Laugardalslaug þar sem
Árni Jónsson hélt góða kynningu.
Jóhanna Garðarsdóttir hjá Reykjavíkurborg
fór yfir frístundakort borgarinnar, nýtingu
þeirra, áskoranir og tækifæri.
Hópurinn fór líka í skoðunarferð um ný og
glæsileg íþróttamannvirki Fram í Úlfarsárdal
og fékk upplýsingar um þá miklu uppbyggingu
sem þar hefur farið fram, en þar tók íþrótta-
stjórinn Þór Björnsson á móti hópnum.
Haldið austur fyrir fjall
Að því loknu lá leiðin austur fyrir fjall að skoða
Hellisheiðarvirkjun og áfram til Selfoss þar
sem Engilbert Olgeirsson framkvæmda-
stjóri HSK, Helgi S. Haraldsson, formaður
Umf. Selfoss, og Bragi Bjarnason, formaður
bæjarráðs Sveitarfélagsins Árborgar, tóku á
móti hópnum og sögðu frá starfseminni og
sýndu þeim íþróttamannvirkin á vallarsvæðinu.
Frá Selfossi lá leiðin til Þingvalla þar sem
Almannagjá var gengin. Ferðin endaði svo í
böðunum í Hvammsvík. Norðmennirnir voru
þakklátir fyrir mjög góðar móttökur alls staðar
sem þeir komu.
Norðmenn fræðast um
íþróttafélög og íþróttastyrki
Hópur Norðmanna sem vinnur við íþróttir í sveitarfélögum í Rogalandfylki
heimsótti Ísland og fræddist um íþróttastarfið á suðvesturhorninu.