Skinfaxi - 01.01.2023, Side 30
30 S K I N FA X I
„Þetta gerði ég með trega. En ég er að fara úr
stjórn félags sem er í góðum málum og með
bjarta framtíð,” segir Gunnar J. Helgason.
Hann mætti á síðasta stjórnarfund sinn hjá
Þrótti Vogum í gærkvöldi og fékk af því tilefni
kók og prins í boði félagsins.
Gunnar mætti á fyrsta aðalfund sinn hjá
Þrótti tólf ára gamall árið 1985. Á fundinum
þá fékk hann kók og prins eins og í gær. Hann
fékk sæti í íþróttanefnd félagsins.
Gunnar segist hafa gengið í ungmenna-
félagið Þrótt Vogum um leið og hann hafði
aldur til og ákveðið strax þá að leggja sitt af
mörkum til þess.
„Við máttum ekki ganga í ungmennafélagið
fyrr en við urðum tólf ára. Samfélagið var auð-
vitað lítið þá með um 600 íbúa og voru þess
vegna allir teknir inn og virkjaðir. Ég fékk sæti
í íþróttanefnd sem þá var til í félaginu og tók
við sem formaður í henni þremur árum síðar,“
segir hann.
Fram kemur í skýrslu stjórnar Þróttar að sjálf-
boðaliðum sem starfa fyrir Þrótt hafi fækkað
eftir covid-faraldurinn. Á sama tíma setji sam-
félagið auknar kröfur á félagið. Tekið er fram
að til þess að félagið nái að halda áfram á veg-
ferð sinni sé það eitt af mikilvægari málum
ársins 2023 að fjölga í hópi sjálfboðaliða.
Gunnar segir fólk verða að leggja sitt af
mörkum til íþróttafélaga sem sjálfboðaliðar,
jafnvel þótt aðstæður séu orðnar aðrar en
þegar hann gekk til liðs við Þrótt fyrir 35 árum.
„Það er mikilvægt að virkja sem flesta, sér-
staklega í þetta litlu samfélagi,“ segir hann,
en auk þess sem hann hætti í stjórninni eftir
öll þessi ár gengu tveir út í skiptum fyrir tvo
aðra sem komu inn.
Skýra þarf ábyrgð sjálf-
boðaliða
Gunnar tekur undir með fleirum sem rætt hefur
verið við um störf sjálfboðaliða um að erfiðara
sé nú að leggja sitt af mörkum fyrir frjáls félaga-
samtök, þar á meðal íþróttafélög, en þegar
hann var tólf ára. Þáttaskilin telur hann vera
hoppukastalaslysið á Akureyri sumarið 2021,
þegar sextán hundruð fermetra kastali tókst á
loft í vindhviðu með hræðilegum afleiðingum.
Þrjú börn beinbrotnuðu þegar hluti hoppu-
kastalans tókst á loft og það fjórða hlaut alvar-
lega höfuðáverka auk beinbrots. Það mun
hugsanlega aldrei ná sér að fullu.
Fimm einstaklingar voru ákærðir í málinu,
þar á meðal tveir sjálfboðaliðar sem voru þar
Huga þarf
að ábyrgð
sjálfboðaliða
að vinna fyrir Knattspyrnufélag Akureyrar (KA),
en handknattleiksdeild félagsins tók að sér að
útvega starfsmennina. Þeir áttu að sinna miða-
sölu og umsjón svæðisins fyrir eiganda og
ábyrgðaraðila leiktækisins en var eftir slysið
gefið að sök að hafa sýnt stórfellt aðgæslu-
leysi og vanrækslu við að tryggja öryggi í
leiktækinu þrátt fyrir að skýrt sé tekið fram í
samningum við eiganda hoppukastalans að
hann skuli setja hann niður og festa við jörð.
Er einstaklingum gefið að sök að jarðfestingar
hafi verið of fáar til að halda svo stórum kasta
og hann aðeins festur á útjöðrum, engar jarð-
festingar inni í honum og einingar aðeins
festar með frönskum rennilás og spottum.
Málið var þingfest í Héraðsdómi Norður-
lands eystra snemma í febrúar. Á meðal sjálf-
boðaliðanna sem ákærðir eru í málinu er
forseti bæjarstjórnar á Akureyri.
Gunnar segir hætt við að þetta mál geti haft
neikvæð áhrif á störf sjálfboðaliða og vinnu
þeirra fyrir íþróttafélög í nánustu framtíð.
„Ef við ætlum að fá sjálfboðaliða þarf að
tryggja hvar ábyrgðin liggur, því ef illa fer eins
og þarna er hætt við að sjálfboðaliðar fáist ekki
til starfa.“
Gunnar Helgason hefur verið sjálfboðaliði í stjórn Þróttar Vogum frá tólf ára aldri. Hann mætti á
síðasta aðalfund sinn í mars síðastliðnum þegar hann hætti störfum fyrir félagið. Gunnar hvetur fólk
til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Hann óttast hins vegar að hoppukastalamálið á Akureyri
geti haft neikvæð áhrif á störf sjálfboðaliða og hvetur til að hugað verði betur að ábyrgð þeirra.