Skinfaxi - 01.01.2023, Side 31
S K I N FA X I 31
„Við vorum alsæl, öll aðstaðan frábær og maturinn ljúffengur. Þetta
var rosalega fínt,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðar-
varna hjá Rauða krossinum, sem stóð fyrir Neyðarvarnarþingi Rauða
krossins í húsnæði Skólabúða UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði síðustu
helgina í mars.
Um áttatíu manns frá öllum landshornum sátu þingið, sem fram fór í
Bjarnaborg á Reykjum laugardaginn 25. mars. Hluti hópsins kom síð-
degis á föstudag til að undirbúa þingið og gistu aðrir næstu nótt líka,
enda þurftu sumir um langan veg að fara til að sitja þingið. Aðalheiður
segir gistinguna hafa verið til fyrirmyndar og alla matseld í toppstandi,
gómsætt lambalæri í kvöldmat og kaka í desert.
„Það er ekki amalegt,“ segir hún, en þeir sem gistu á Reykjum voru
jafnframt í morgunmat þar.
Þetta var þriðja neyðarvarnaþing Rauða krossins. Það fyrsta fór fram
árið 2018 og annað árið eftir en sökum heimsfaraldurs féll það niður
eftir það.
Samhæfa aðgerðir á landsvísu
Á neyðarvarnaþingi Rauða krossins samhæfa sjálfboðaliðar aðgerðir
félagsins á landsvísu ásamt því að viðhalda og auka þekkingu sína
á neyðarvörnum. Á þinginu nú komu einmitt saman sjálfboðaliðar,
sem eru fulltrúar allra deilda Rauða krossins, og mátu getu innviða,
styrkleika og veikleika, bæði Rauða krossins og samfélagsins í heild,
til að vera betur í stakk búin til að mæta alls kyns áföllum og hamför-
um sem geta dunið yfir. Samhliða því er forgangsraðað verkefnum
sem þarf að ráðast í og samstarf deilda bætt og eflt.
Þinginu var rétt svo lokið þegar snjóflóð skall á í Neskaupstað
mánudaginn 27. mars og þurftu margir sem sátu þingið og höfðu
farið aftur heim norður fyrir að fara á vettvang.
Aðalheiður og fleiri héldu erindi tengd málefnum Rauða krossins.
Auk erindanna fór fram hópavinna í Bjarnaborg þar sem fulltrúar ólíkra
landsvæða greindu aðstæður á sínu heimasvæði, helstu hættur og
þann viðbúnað sem er til staðar. Kom þar m.a. fram að ýmsar deildir
hafa þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða til að geta brugðist betur við ef
neyðarástand skapast.
Aðalheiður ítrekar að þingfulltrúar hafi verið afar ánægðir með
þingið. Það hafi líka markað upphaf að vinnu við áfallaþolsgreiningu,
sem muni halda áfram um allt land.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins
funduðu á Reykjum
Neyðarvarnaþing Rauða krossins fór fram í húsnæði Skólabúða UMFÍ síðustu helgina
í mars. Teymisstjóri lofar aðstöðuna í hástert og langar að halda fleiri viðburði þar.
Ef þú eða félagið þitt vill fræðast meiraum húsnæði Skólabúða
UMFÍ er hægt að hafa samband við þjónustumiðstöð UMFÍ í
síma 568 2929.
UMFÍ tók við rekstri Skólabúða á Reykjum í Hrútafirði sumarið 2022
og réðst samstundis í gríðarlega umfangsmiklar endurbætur á öllu hús-
næðinu í nánu og góðu samstarfi við sveitarstjórn Húnaþings vestra.
Í Skólabúðirnar koma nemendur 7. bekkjar af öllu landinu og dvelja
þar á virkum dögum. Gríðarlegur fjöldi nemenda kemur í Skólabúðir-
nar á hverju misseri.
Húsnæði Skólabúðanna hefur tekið stakkaskiptum eftir að UMFÍ og
starfsfólk sveitarfélagsins sneri bökum saman um að laga það. Stöðugt
er verið að breyta, laga og bæta í búðunum og eru þær orðnar hinar
glæsilegustu. Búið er að skipta um húsgögn í öllum herbergjum og
hlaða inn afar skemmtilegum leiktækjum í Bjarnaborg, eitt af húsunum
sem mynda Reykjaskóla.
Sambandsaðilar, sérsambönd, íþróttafélög og margir fleiri hafa leigt
aðstöðu í Skólabúðunum utan skólatíma, þ.e.a.s. á sumrin og um helg-
ar þegar nemendur dvelja ekki í búðunum. Á Reykjum er gríðarlegt
magn rúmgóðra bygginga, gisting fyrir 120 manns, matsalur, kennslu-
húsnæði með stórum sal og stofum, íþróttasalur og sundlaug. Húsnæð-
ið hefur verið nokkuð vinsælt til leigu fyrir ættarmót og ýmsa hópa.
Hægt að leigja aðstöðu utan skólatíma