Skinfaxi - 01.01.2023, Síða 33
S K I N FA X I 33
íþróttastarfinu gangandi. Hún segist heyra
svipaða sögu af fleiri félagasamtökum þar sem
fólk er tregt til að bjóða sig fram til starfa.
„Mér er það ljúft og skylt að gefa af mér til
samfélagsins. Í svona litlum byggðarkjarna
eins og Bolungarvík er stjórnarseta eða vinna
fyrir íþróttafélag kjörið tækifæri til að kynnast
öðru fólki og finna þar leið til að komast inn í
samfélagið. Fáir gefa kost á sér í þessi störf,
sem er víðtækt vandamál. Mér sýnist fólk líka
orðið skuldbindingafælið,” segir hún og leggur
áherslu á að hún sé hissa á því að fólk skuli
leyfa sér að neita því að leggja sitt af mörkum
til samfélagsins.
Þurfum að axla
samfélagslega ábyrgð
Viktoría er ekki með lausnina á þessum vanda
á reiðum höndum. Hægt sé að grípa til ýmissa
ráða, verðlauna sjálfboðaliða með einhverjum
hætti, lyfta þeim upp og hampa eins og gert
er á Degi sjálfboðaliðans.
Í sumum tilvikum megi skoða að lækka iðk-
endagjöld fyrir börn sjálfboðaliða. Lækkun
gjalda kæmi sér illa fyrir íþróttafélag á borð
við Ívar, sem hefur fáa iðkendur.
Viktoría segir þetta ömurlega stöðu, enda
ljóst að sumt fólk láti sig samfélagið ekki varða.
Samfélagslega ábyrgðin sé orðin svo lítil.
„Við erum sífellt að þrýsta á fyrirtæki og
stofnanir um að sýna samfélagslega ábyrgð.
En þegar kastljósinu er beint að okkur og við
þurfum að leggja okkar af mörkum lokum við
augunum fyrir því,“ segir hún.
Ef þig vantar óumdeildari skoðun
ge
rðu fengið eina hjá okkur
Komdu með bílinn og fáðu skoðun
sem gildir í ár eða lengur
Maður segir
pylsa ekki pulsa
Skoðun dagsins:
Sími 570 9090 • www.frumherji.is
Keppendur frá Íþróttafélaginu Ívari á badmintonmóti í Danmörku.