Skinfaxi - 01.01.2023, Blaðsíða 35
S K I N FA X I 35
Þátttakendur Ungmennasambands Vestur-Skafta-
fellssýslu (USVS) hlutu Fyrirmyndarbikarinn á Ungl-
ingalandsmóti UMFÍ á Selfossi 2022. Formaðurinn
segir liðsheildina hafa verið einkar góða.
„Við erum óendanlega stolt af þessari viðkurkenningu. Ég vil nota tæki-
færið til að koma á framfæri innilegu þakklæti til keppenda, þjálfara,
fararstjóra, foreldra og allra annarra sem lögðu sitt af mörkum til að
stuðla að þessum árangri,“ skrifar Fanney Ásgeirsdóttir, formaður Ung-
mennasambands Vestur-Skaftafellssýslu (USVS), í ávarpi sínu í ársskýrslu
sambandsins.
Stolt formannsins er Fyrirmyndarbikarinn, sem þátttakendur USVS
fengu á Unglingalandsmóti UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina
í fyrra. Fyrirmyndarbikarinn er afhentur þeim gestum mótsins úr röðum
sambandsaðila UMFÍ sem sýna prúðmennsku, jákvætt viðmót, heiðar-
leika og samstöðu og njóta styrkrar og jákvæðrar fararstjórnar og
umsjónar.
Tóku þátt í mörgum greinum
Fanney segir í ávarpi sínu þátttakendur USVS hafa átt glæsilega inn-
komu og látið til sín taka við hvert tækifæri. USVS hafi átt þrjú lið í knatt-
spyrnu, tvö í körfubolta og tvö í strandhandbolta, keppendur í frjáls-
um íþróttum, kökuskreytingum, pílukasti, frisbígolfi, bogfimi og upp-
lestri.
„En hópurinn okkar var ekki aðeins virkur og duglegur að taka þátt,
þau voru einfaldlega til fyrirmyndar í hvívetna. Svo við skulum muna
að það voru ekki eingöngu keppendur sem unnu til þessarar glæsi-
legu viðurkenningar, hún er afrakstur vináttu, liðsheildar og heiðar-
legrar framkomu alls þess hóps sem mætti á mótið og fylkti sér undir
merkjum USVS,“ skrifar Fanney stolt og glöð með árangurinn.
Erum óendanlega stolt
af Fyrirmyndarbikarnum
Um Fyrirmyndarbikarinn
Fyrirmyndabikar Unglingalandsmóts UMFÍ er afhentur á mótsslitum
til þess héraðssambands eða íþróttabandalags sem hefur sýnt fyrir-
myndarframkomu innan sem utan keppni. Mótshaldari skipar þriggja
manna dómnefnd sem velur þann sem hlýtur bikarinn. Dóm-
nefndin horfir m.a. til eftirfarandi þátta við val á fyrirmyndarfélagi:
• Samstæð og glæsileg skrúðganga keppnisliðs og
stuðningsfólks.
• Framkoma liðsfélaga, stuðningsmanna og fylgdarliðs sé
prúð og háttvís og öll til fyrirmyndar innan og utan vallar.
• Samstaða keppnisliða, innan vallar og utan sem og við
leik og á tjaldsvæðum.
• Jákvæð hvatning eigin liðs, heiðarleg framkoma og
hrós til mótherja.
• Jákvætt viðmót keppenda og fylgdarliðs, laus við hroka
og yfirgang.
• Jákvæð fjölskyldustemming á tjaldsvæðum.
• Undirbúningur þátttöku, skráning og samskipti við
mótshaldara.
• Styrk og jákvæð fararstjórn og umsjón með keppendum
og fjölskyldum þeirra.
Hluti þátttakenda USVS tekur við Fyrirmyndarbikarnum við slit Unglinga-
landsmóts UMFÍ á Selfossi.
Eitt af því sem félagar í USVS telja að efli liðsandann er að þátttakend-
ur séu klæddir eins peysum. Sambandið gefur peysurnar sem merktar
eru USVS. Samþykkt var á þingi USVS á dögunum að gefa sömuleiðis
yngri þátttakendum peysur, svo þátttakendur veðri áberandi á mótinu.
Kökuskreytingar voru ein þeirra fjölmörgu greina sem þátttakendur
USVS tóku þátt í.