Skinfaxi - 01.01.2023, Síða 36
36 S K I N FA X I
UMFÍ hefur frá því snemma árs 2022 verið samstarfsaðili í
samnorrænu verkefni sem felur í sér samþættingu
og lærdóm flóttabarna frá Úkraínu á Norðurlöndunum í gegnum íþróttir
(verkefnið heitir upp á ensku: Integration and Learning Through Sport
and Play for Ukrainian Children in the Nordics). Markmið verkefnisins
er að veita börnum frá Úkraínu og fjölskyldum þeirra tækifæri til náms
og betri aðlögun í nýju landi eftir flótta frá heimalandi þeirra í kjölfar
innrás Rússa.
Í samvinnunni með félagasamtökum annars staðar á Norðurlöndun-
um er markmiðið að deila þekkingu, fá hugmyndir að verkefnum sem
auðvelt er að laga að mismunandi hópum og prófa gagnsemi verkefn-
anna. Með UMFÍ og hinum félagasamtökunum á Norðurlöndunum
vinna íþróttafélög í löndunum, sveitarfélög og stofnanir.
Þetta er langt í frá eina sambærilega samstarfsverkefni UMFÍ og ISCA
af þessum toga. UMFÍ var með í verkefni árin 2019–2020 sem hét
Integration of Refugees Through Sport (skammstafað IRTS).
Hjá UMFÍ kannast fleiri við verkefnið undir heitinu Vertu með, en
markmið þess er að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum
uppruna í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Nýja samstarfsverk-
efnið hófst 1. nóvember 2022 og á að standa til 30. apríl 2024.
Þau Ragnheiður Sigurðardóttir, verkefnastjóri UMFÍ, og Jón Aðal-
steinn Bergsveinsson, kynningarfulltrúi UMFÍ og ritstjóri Skinfaxa, fóru
á tveggja daga vinnufund í höfuðstöðvum ISCA í Kaupmannahöfn í
febrúar ásamt fulltrúum hinna samstarfsaðilanna. Á fundinum var farið
dýpra ofan í verkefnið og markmið þess. Niðurstaðan var að kanna
nánar stöðuna í hverju landi, safna leikjum frá Norðurlöndunum sem
gagnast og þar fram eftir götunum. Jafnframt verður unnið með sam-
tökum og hópum flóttafólks frá Úkraínu á Norðurlöndunum.
Áherslur og birtingarmyndir verkefnisins voru mismunandi eftir lönd-
um. Þau Ragnheiður og Jón Aðalsteinn lögðu áherslu á að nýta verk-
efnið til að auka þekkingu þjálfara – koma með efni sem styður þá við
móttöku barna af erlendum uppruna, ekki aðeins flóttabarna frá Úkra-
ínu. Þá mun verkefnið nýtast enn betur verkefninu Allir með. Þegar er
búið að þýða bæklinginn á úkraínsku með hjálp Irynu Nerubaievu,
sem flúði Úkraínu á síðasta ári og kom hingað til lands með móður sinni.
Samstarfsaðilarnir og fulltrúar UMFÍ hafa fundað nokkrum sinnum
með fjarfundarbúnaði um málið en næstu staðfundur verður á þingi
ISCA í nóvember.
Ljóst er að verkefnið eykur víðsýni og þekkingu starfsfólks UMFÍ, sem
mun miðla henni áfram og gera UMFÍ kleift að þjónusta sambandsaðila
í þessum málaflokki enn betur.
Þetta er ISCA
ISCA (International Sport and Cultural Assocation) eru alþjóð-
leg samtök ýmissa grasrótarsamtaka á sviði íþrótta, almennings-
íþrótta og menningar. Samtökin teygja anga sína um allan heim
og hafa í gegnum tíðina reynst UMFÍ verðmætur tengiliður.
UMFÍ hefur unnið með samtökunum að ýmsum verkefnum
um árabil. Þekktasta verkefnið hér á landi er án nokkurs vafa
Hreyfivika UMFÍ, sem haldin var
hér á landi frá árinu 2012 til 2020.
Samstarfsaðilar
að verkefninu
• ISCA – verkefnastjórn og framkvæmd
• Monaliiku frá Finnlandi
• Íþróttahéraðið Viken Idrettskrets frá Noregi
• Dansk Skoleidrætt frá Danmörku.
Flóttafólk og íþróttir
UMFÍ vinnur með félagasamtökum á Norðurlöndunum við að hjálpa
flóttabörnum frá Úkraínu og foreldrum þeirra að aðlagast nýju samfélagi.
Eftir tveggja daga fundi var mikilvægt að teygja sig.
Fulltrúar félaga frá Danmörku, Finnlandi og Noregi lýsa sumri með
Lego-kubbum.
Norræni hópurinn ásamt starfsfólki og sjálfboðaliðum ISCA á góðri
stundu.