Skinfaxi - 01.01.2023, Side 38
38 S K I N FA X I
UMFÍ hefur uppfært hagnýtar upplýsingar um fundi, hlut-
verk og ábyrgð stjórnarfólks, framkomu og ræðu-
mennsku. Þetta er haldgóður leiðarvísir þegar boða á til aðalfundar,
fundar í deildinni, viðburðar hjá félaginu þínu, þegar fólk fer að pæla í
því hvert sé hlutverk stjórnar, hvernig á að byggja upp og móta ræðu,
bera fram tillögur á fámennum þingum og fjölmennum og þar fram
eftir götunum.
Ef eitthvað er óljóst getur fólk haft samband við þjónustumiðstöð
UMFÍ í Laugardal í Reykjavík.
Hvernig
á að halda
þessa fundi?
Út eru komnar hagnýtar upplýsingar um fundi,
hlutverk og ábyrgð stjórnarfólks, framkomu og
ræðumennsku.
Þú getur nálgast ritið á heimasíðu UMFÍ (www.umfi.is)
undir flipanum Verkfærakista. Þú getur líka farið með
símann þinn yfir QR-kóðann hér til hliðar.
Dæmi úr ritinu: Dagskrá fundar
Við undirbúning fundar þarf að semja dagskrá. Ekki skiptir hvort
fundurinn er fyrir fáa eða marga, lítill eða stór, ráðstefna, stjórnar-
fundur eða nefndarfundur. Dagskrá sem lögð er fram í upphafi
fundar er tillaga að dagskrá fundarins.
Dagskráin telst samþykkt ef ekki koma fram athugasemdir við
hana.
Fundurinn sjálfur ræður dagskrá, þó í samræmi við ákvæði
félagslaga, og getur hann gert á henni breytingar.
Fundarstjóri getur gert breytingar á fyrirliggjandi dagskrá,
svo sem til þess að flýta fyrir störfum fundarins. Fundarstjóri þarf
þó alltaf að leita eftir samþykki fundargesta við öllum slíkum
breytingum.
Á fjölmennum fundum og ráðstefnum er heppilegt að dagskrá
sé til útprentuð og dagskrárliðir tímasettir eftir því sem unnt er.
Dæmi um dagskrá aðalfundar hjá félagi
1. Fundur settur
2. Kjör starfsmanna fundarins
• Fundarstjóri • Fundarritari
3. Fundargerð síðasta aðalfundar lesin upp
4. Skýrsla stjórnar um síðastliðið starfsár
• Skýrsla formanns/stjórnar • Skýrsla gjaldkera
5. Lagabreytingar
6. Kosningar
• Formaður • Fjórir meðstjórnendur • Þrír í varastjórn
• Tveir endurskoðendur/skoðunarmenn
7. Starfsemi félagsins á næsta starfsári
8. Önnur mál
9. Fundarslit