Úrval - 01.02.1958, Side 18

Úrval - 01.02.1958, Side 18
APINN I GERVITUNGLINU ÚRVAL maðurinn aukið svo öfugugga- háttinn að við getum ekki einu sinni stytt okkur stundir. Við nutum þess að leika okkur að þyngdaraflinu: hér er ekki leng- ur neinn þungi. Við vöktum að- dáun múgsins með því að hanga á fótunum eða á halanum, með höfuðið niður: hér er ekki leng- ur neitt ,,niður“, ekki lengur neitt ,,upp“. Það er enginn þungi. Líkamir okkar, með hinum lipru útlim- um sem orðnir er'u gagnslausir og hlægilegir, fljóta í andrúms- lofti gervitunglsins líkt og tveir krabbar síldir við ósýnilegan hólma í himingeimnum. Við get- um ekki hreyfst úr stað, nema þegar örvæntingarfullar handa- tiltektir okkar rekast á eitthvað. Þá skjótumst við í öfuga átt, og nemum ekki staðar fyrr en við vegg tunglsins, sem hrindir okk- ur frá sér aftur og aftur og ei- líflega. Það er enginn þungi. Hver snerting líkama við annan lík- ama fær undireins ákveðna mót- verkan sem skilur þá að, og sendir þá í gagnstæðar áttir, líkt og tvo bolta. Við getum ekki notið ástar hvors annars. Allar hinar heiftúðlegu tilraun- ir okkar síðastliðinn mánuð hafa endað í villimannlegum og siðlausum leik, sem minnir á knattspyrnu eða ,,gríptu þar sem gripið verður“. Og við erum engar nöðrur. Hvað þá? Við höngum daga og nætur í króki á þeim vegg tunglsins sern snýr að jörðinni. Við þrýstum andlitum okkar að rúðunni. Við horfum á úthöf og meginlönd líða hjá. Við ímynd- um okkur að það fari líklega illa fyrir okkur, öpunum. Á jörðinni gefa mennirnir okkur gætur, gegnum öfluga sjónauka fylgj- ast þeir með svipbreytingum okkar. Og það vekur undrun sumra þeirra að við skulum gretta okkur. Gild ástæða. Skipshöfn á amerískum tundurspilli fékk tilkynningu um, að ákveðið hefði verið, að tundurspillirinn færi í langa ferð til ann- arra heimsálfa. Brá þá svo við, sem ekki mun fátítt á herskip- um á friðartímum, að ýmsir skipverja fóru þess á leit, að þeir yrðu fluttir á annað skip. Rökin fyrir þessum beiðnum voru margvísleg: óhöpp af ýmsu tagi. fjölskylduástæður og margs- konar persófiulegar ástæður. Skipherranum þótti nóg um allar þessar beiðnir og undraðist þá uppfinningasemi, sem skipverjar sýndu þegar tilfæra skyldi ástæðu fyrir beiðnunum. Síðastur kom yfirtrésmiðurinn á tund- urspillinum. „Hverjar eru ástæður yðar?" spurði skipherrann. „Ég get ekki farið frá konunni rninni", sagði yfirtrésmiður- inn. „Hún er ekki ófrísk, og ég get ekki skilið hana eftir þannig á sig komna". — Reader’s Digest. 16
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.