Úrval - 01.02.1958, Page 93

Úrval - 01.02.1958, Page 93
I LEYNDUM HJARTANS ÚRVAL Hann var gagnkunnugur kenn- ingum þeirra Freuds og Jungs. Þær fullnægðu honum ekki; undirniðri fannst honum fræði þeirra vera innantómt orða- gjálfur, en samt sem áður var árangur af þessum kenningum ótvíræður, hvernig svo sem á því stóð. Hann hafði kynnzt mörgum hliðum mannlegs eðlis þau fimmtán ár, sem sjúklingar höfðu leitað til hans í dimma bakherbergið í Wimpolestræti. Hann var fyrir löngu hættur að furða sig á því, sem bar fyrir augu hans og eyru. Honum kom ekkert lengur á óvart. Hann vissi nú orðið, að menn voru lygarar, og honum var kunnugt um, hve hégómagimd þeirra gat verið taumlaus; hann vissi um margt miklu verra í fari þeirra, en hann vissi líka, að það var ekki hans hlutverk að dæma. En hinar hræðilegu játningar, sem hann heyrði af vömm sjúklinga sinna, urðu smámsaman þess valdandi, að andlit hans varð guggnara, drættimir dýpri og augun þreytulegri. Hann hló sjaldan, en stundum las hann skáldsögur sér til afþreyingar, og þá kom fyrir að hann brosti. Gat það verið, að höfundamir væm þeirrar skoðunar, að fólk- ið, sem þeir vora að lýsa, væri svona í raun og vera? Höfðu þeir enga hugmynd um átökin og flækjumar í sálarlífi þess, hvílíkar ógnir og skelfingar á- sóttu það? Klukkuna vantaði kortér í sex. Dr. Audlin hafði fengið mörg kynleg sjúkdómstilfelli til meðferðar, en hann mundi ekki eftir neinu sem komst í sam- jöfnuð við tilfelli Mountdragos lávarðar. í fyrsta lagi var það sjúklingurinn sjálfur. Moimt- drago lávarður var frægur mað- ur. Hann hafði verið skipaður utanríkisráðherra áður en hann náði fertugsaldri, og nú, þegar hann hafði gegnt embættmu í þrjú ár, hafði stefna hans sigr- að. Það var almennt viðurkennt, að hann væri slyngasti stjóm- málamaður íhaldsflokksins, og einungis sú staðreynd, að faðir hans var aðalsmaður, kom í veg fyrir að hann keppti eftir for- sætisráðherratigninni, því að við dauða föðurins yrði honum ekki leyft að sitja í Neðri deild þingsins. En þó að forsætisráð- herra Englands megi ekki eiga sæti í Lávarðadeildinni á þess- um lýðræðistímum, þá var ekk- ert því til hindrunar, að Mount- drago lávarður héldi áfram að vera utanríkisráðherra í ríkis- stjómum Ihaldsflokksins um ó- komin ár og gæti þannig mótað utanríkisstefnu lands síns. Mountdrago var búinn mörg- um góðum kostum. Hann var gáfaður og dugmikill. Hann hafði ferðast víða og talaði mörg útlend tungumál reiprenn- andi. Hann hafði frá æskuáram lagt sérstaka stund á að kynna sér utanríkismál og hafði fylgzt vel með pólitískum og f járhags- legum aðstæðum í öðrum lönd- 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.