Verzlunartíðindi - 01.12.1979, Page 30

Verzlunartíðindi - 01.12.1979, Page 30
Frá vinstri: Ásgeir Bjarnason varamaður í stjórn Kaupgarðs, Ólafur Torfason framkvœmdastjóri, Torfi Torfason stjórnarformaður, Ingi Jónsson meðstjórnandi. Á myndina vantar Gústaf Sófusson meðstjórnanda. NÝJAR VERZLANIR Kaupgarður hf. Föstudaginn 16. nóvember tók verzlunin Kaup- garður hf. til starfa í nýju húsnæði við Engihjalla í Kópavogi, en verzlunin hafði áður verið til húsa að Smiðjuvegi 9, í sama bæ. Við nýju verzlunina starfa 15 — 20 manns, en fram- kvæmdastjóri og verzlunarstjóri hennar er Ólafur Torfason. Kaupgarður hf. var stofnaður 5. september 1973, og var tilgangur félagsins að reka vörumarkað með matvörur, hreinlætisvörur og fleiri algengar neyzluvörur. Þann 4. desember sama ár, var verzlun félagsins opnuð í leiguhúsnæði að Smiðjuvegi 9 í Kópavogi. í ágústmánuði 1977 hófust byggingarframkvæmdir við nýtt verzlunarhúsnæði fyrir Kaupgarð hf. að Engihjalla 4 í Kópavogi. Grunnur var grafinn um sumarið og sökklar steyptir um haustið. Fram- kvæmdir lágu svo niðri yfir veturinn, en um vorið 1978 hófust þær að nýju og hafa staðið óslitið síðan. Búið er að steypa upp fyrsta áfanga hússins, ásamt kjallara annars áfanga. Verzlunarhæðin er nú 1.035 m2. Kjallari undir báðum áföngum, auk bifreiða- geymslu, er um það bil 1.464 m2. Annar áfangi hússins er um 488 m2, og á hann að vera tvær hæðir og að auki kjallari. I þeim hluta hússins eru fyrirhugaðar sérverzlanir, auk aðstöðu fyrir ýmsar þjónustugreinar. Eigendur verzlunarinnar hugsa sér hana fyrst og fremst sem hverfisverzlun, sem veiti góða þjónustu með daglegar neyzluvörur, t. d. verður sérstök áherzla lögð á kjötdeildina. I stjórn Kaupgarðs hf. eiga sæti: Torfi Torfason formaður, Gústaf Sófusson og Ingi Jónsson, með- stjórnendur. Framvkæmdastjóri er Ólafur Torfa- son, sem fyrr sagði. —J™- 158 VERZLUNARTIÐINDI

x

Verzlunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.