Verzlunartíðindi - 01.12.1979, Qupperneq 31
S. S. Glæsibæ
Guðjón Guðjónsson, verzlunarstjóri hjá S. S. í Glœsibce og tveir ungir viðskiptavmir.
Sláturfélag Suðurlands Glæsibæ
I haust hafði verzlun Sláturfélags
Suðurlands í Glæsibæ starfað þar
í fimm ár. Við gengum á fund
verzlunarstjórans þar, Guðjóns
Guðjónssonar, og tókum hann
tali:
— Nú ert þú, Guðjón, búinn að
vera hér verzlunarstjóri í 5 ár, en
hvað ertu búinn að vinna lengi
hjá Sláturfélaginu? —
— Því er fljótsvarað: þrjátíu og
tvö og hálft ár. Ég byrjaði sem
lærlingur í afgreiðslunni í matar-
deildinni í Hafnarstræti 5, en það
var fínasta búðin sem hægt var að
komast í læri í á þeim tíma, fín-
asta búð bæjarins — ekkert nema
höfðingjar.
I þau átta ár sem ég var þar réðu
þar ríkjum úrvalsmenn, sem
veittu manni þá beztu tilsögn
sem hægt var að fá. —
— Hefur ekki orðið mikil breyt-
ing á verzlunum á þeim tíma sem
þú ert búinn að vera í búð? —
— Jú, það má segja að það hafi
orðið bylting á öllum sviðum.
Það er ekki hægt að bera saman
pökkun, hreinlæti, geymslur og
alla vinnuaðstöðu.
Aður var t. d. allt kjöt skorið
jafnóðum og afgreitt var, en nú er
eiginlega allt tilbúið i hendurnar
á afgreiðslufólkinu. En á móti
þessu kemur aftur að vöruval
hefur stóraukizt, og verður æ
vandasamara að kaupa inn í
verzlun eins og hér, þar sem um
er að ræða þvílíkt vöruúrval. —
— Þú ert búinn að vinna í lang-
an tíma með fjöldamörgum
verzlunarmönnum, hjá sama
fyrirtækinu. Hefur afstaða þeirra
til verzlunarinnar breytzt? —
— Já, mér finnst að ungt fólk
hafi ekki eins mikinn áhuga á að
gera verzlunarstörf að ævistarfi
sínu, eins og áður var. Þar af leiðir
að meiri hreyfing er á fólki nú en
áður. Eg veit ekki af hverju þessi
breyting hefur orðið, þar sem
verzlunarstarfið er líflegt og já-
kvætt. —
— Hefur mikil breyting orðið á
heimsendingum? —
— Það má segja að þegar ég
byrjaði var sérstakur maður við
útkeyrslu alla daga vikunnar og
VERZLUNARTÍÐINDI
159