Verzlunartíðindi - 01.12.1979, Qupperneq 32
S. S. Glæsibæ
Úr kjötdeildinni.
geysilegur hluti af viðskiptunum
voru reikningsviðskipti. I dag er
það þannig að reikningsviðskipti
þekkjast ekki. Sama er að segja
um símapantanir, þær þekkj-
ast ekki heldur. Vörur sem við-
skiptavinirnir velja sjálfir í búð-
inni eru sendar heim ef óskað er,
gegn gjaldi, sem í dag er alltof
lágt. —
— Nú er þessi verzlun í verzl-
unarmiðstöð þar sem fjölmargar
ólíkar verzlanir eru saman-
komnar. Telur þú það heppilegt
fyrirkomulag? —
— Alveg tvímælalaust. Verzlan-
irnar byggja hverja aðra upp. En
stærsti kosturinn við verzlana-
miðstöðina hér er sá, að allar
búðirnar eru undir sama þaki.
Viðskiptavinirnir geta verið inn-
an dyra allan tímann sem þeir
eru að verzla. —
— Hve stór er verzlunin og
hvernig er henni skipt í deildir?
— Hún er um 1.500 m2 og skipt-
ist í nýlenduvörudeild, kjötdeild,
tóbaks- og sælgætisdeild, snyrti-
vörudeild og ís- og pylsusölu. —
— Ég segi nú eins og Páll Heiðar
í Morgunpóstinum, þykir þér
gaman að standa í þessu daglega
verzlunarþrasi? —
— Já, það má segja það. Ljósu
punktarnir eru langtum fleiri en
þeir dökku, sem er kannski vegna
þess að fyrirtækið sem á verzlun-
ina, er gamalt og gróið og getur
boðið það bezta af sinni eigin
framleiðslu og er einnig orðið
ákaflega vel þekkt hjá heildsölum
eftir 72ja ára starfsemi. —
— Nú líður að jólum og jólainn-
kaupum. Hvað hefur fólk haft
sem jólamat, þann tíma sem þú
þekkir til? —
— Þegar ég byrjaði var það
hangikjöt, rjúpur og nýtt svina-
kjöt. Það má segja að jólamatur-
inn sé sá sami í dag, að viðbætt-
um hamborgarahrygg, kalkún-
um, gæsum og öndum. —
— Myndir þú, sem verzlunar-
stjóri einnar stærstu matvöru-
verzlunar landsins, vera hlynnt-
ur því að taka til sölu, ef leyft
yrði, áfengan bjór og létt og sterk
vín. —
— Alveg skilyrðislaust. Mér
finnst víndeildirnar í þeim verzl-
unum sem við höfum heimsótt í
ferðum okkar til annarra landa, á
vegum Kaupmannasamtakanna,
setja sérstaklega skemmtilegan
blæ á verzlanirnar. —
— Hefur aldrei hvarflað að þér
að verða kaupmaður? —
— Nei, það hefur aldrei hvarflað
að mér. Það er altalað að við höf-
160
VERZLUNARTIÐINDI