Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Page 17

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Page 17
ÆVINTÝRI MÚMÍNÁLFANNA H. C. ANUtHSL'N - VkRDLAUNABOK IYHIR 5-12 ÁRA BftRN Þýdd skáldverk fyrir börn og unglinga síðu. Fjöldi teikninga er í bókinni og gerir hana lifandi og spennandi aflestrar. 108 blaðsíður. Skjaldborg hf. Verð: 990 kr. wmmmmmmmmmmmmmmmmmm r ANNE - CATH VESILV Ou Alexander. ^ EÍLIBOMM BOMM BOMM ÓLI ALEXANDER FÍLÍBOMM-BOMM-BOMM Anne-Cath. Vestly Öll íslensk börn þekktu skemmtilegu sögurnar um Óla Alexander. Nú er komin ný útgáfa af fyrstu sögunni um strákinn sem er bara fjögurra ára en vill fá að gera svo margt og lendir í alls konar ævintýrum. Iðunn. Verð: 1.298 kr. PABBI SEGIR SÖGUR íslenskur texti: Stefán Júlíusson Litprentuð bók í stóru broti með fjölda fallegra ævintýra, svo sem: Vinir Barða skip- stjóra, Riddarar, Gráúifurinn, Þyrsta músin, Dúfan hans Benna, Bangsi fiugmaður, Blómatunna og mörg önnur ævintýri og sögur. 24 blaðsíður. Setberg. Verð: 590 kr. PJAKKARí BESTABÆ Pjakkar í Bestabæ er nýr flokkur bóka með Kobba Kanínu og félögum. Fyrstu tvær bækurnar eru nú komnar út. Körfuboltinn ger- ist daginn sem Kobbi týnir boltanum sínum og freistar þess að eignast nýjan. Þá ríður á að eiga góða vini. Speglasalurinn segir frá því þegar vinirnir fara saman í speglasalinn í Bestabæjar- garði og lenda þar heldur betur í ævintýrum! Vaka-Helgafell. Verð: 295 kr. hvor bók. PRINS VALÍANT Harold R. Foster Tvö ný bindi koma út í þess- ari fornu hetjusögu. Það er 13. bindið, Sólgyðjan bjarta og 14. bindið, Galdrar og goðmögn. Þar er mjög fjall- að um siglingu Prins Valí- ants til Vínlands (eða Amer- SðlyijÓjdn bjjrtii íku) og er þar raunar tekið mið af siglingum Leifs heppna og fleiri íslendinga þangað. Aleta er með hon- um og elur þar son, líkt og í sögu Þorfinns karlsefnis. Innfæddir skrælingjar halda að hún sé gyðja sólarinnar og tigna hana. 48 blaðsíður hvort bindi. Fjölvi-Vasa. Verð: 780 kr. hvort bindi. SAGAN UM JESU Karl Sigurbjörnsson endursagði í þessari bók, sem er í bókaflokknum Viltu lesa með mér? eru sums staðar myndir í stað orða. Sá sem les fyrir barnið lætur það skoða myndirnar og segja hvað þær tákna. Þegar kemur að mynd í stað orðs er stansað og barnið látið benda á myndina og segja orðið sem hún táknar. 24 blaðsíður. Setberg. Verð: 590 kr. PÍPUHATTUR GALDRAKARLSINS 2. útgáfa Tove Jansson Þýðing: Steinunn S. Briem Hin heimsfræga saga Tove Jansson um Múmínálfana er aftur fáanleg á íslensku, sígildar barnabókmenntir sem börn á öllum aldri ættu að eiga. Múmínálfarnir hafa nú hlotið frægð um víða ver- öld, ekki síst vegna sjón- varpsþátta fyrir börn, m.a. hérlendis. 160 blaðsíður. Örn og Örlygur. Verð: 1.180 kr. t Pabbi veit hvað * hann syngnr SKJALDBORG /•*) , PABBI VEIT HVAÐ HANN SYNGUR H.C. Andersen Þýðing: Guðrún Þórarinsdóttir H.C. Andersen segir í upp- hafi bókarinnar þegar hann talar til sinna ungu lesenda: „Nú ætla ég að segja þér sögu sem ég heyrði þegar ég var lítill, en alltaf þegar ég hugsa um hana finnst mér hún verða fallegri og fallegri...” Þetta er ný útgáfa af einni af perlunum úr heimsfrægu safni þessa vin* sæla höfundar. 36 blaðsíður. Skjaldborg hf. Verð: 990 kr. 17

x

Íslensk bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.