Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Page 24
íslensk skáldverk
EGILS SAGA
SKALLA-GRÍMSSONAR
SIGURÐUR NORDAL
fiAi* i>r
HID ISLENZKA EORNK ITAI'ÉLAG
KEYKiAVlK - MCMXXXHI
EGILS SAGA
SKALLA-GRÍMSSONAR
Sigurður Nordal gaf út
Sagan gerist á tímabilinu
860-990 og greinir frá ævin-
týralegu lífi Egils á íslandi, í
Noregi og Englandi. Einnig
segir frá skáldskap hans, og
þar eru hin frægu kvæði
hans Höfuðlausn, Sonator-
rek og Arinbjarnarkviða.
319 blaðsíður.
Hið íslenzka fornritafélag.
Verð: 3.200 kr.
SAoruaídur SAorsíeinsson
Engill i
MEÐAL Hi
ÁHORFENDA
ENGILL MEÐAL
ÁHORFENDA
Þorvaldur Þorsteinsson
Það kemur á daginn að
Engill meðal áhorfenda er
ekki venjuleg sögubók. Les-
andi fær það skemmtilega
hlutverk að vera þátttakandi
og áhorfandi að sérkenni-
legu sjónarspili sem sviðsett
er á síðum bókarinnar. Þor-
valdur Þorsteinsson hefur
samið um fimmtíu stuttar
sögur þar sem hann snýr
upp á lögmál leiksviðs,
sögusviðs og veruleika
þannig að til verður ný og
óræð vídd. Hér er magnað-
ur seiður með galdri leik-
hússins og töfrum frásagn-
arinnar. Sögurnar eru bæði
ærslafullar og alvarlegar, fá-
ránlegar og hversdagslegar,
nýstárlegar og hefðbundnar.
Þetta er ögrandi skemmti-
lestur.
Bjartur.
Verð: 1.595 kr.
TRAUSTI STEINSSON
FJALL RÍS
virkjunarsaga
Trausti Steinsson
Þessi saga gerist mestan
part á fjöllum þar sem unnið
er að virkjunarframkvæmd-
um en sumpart í höfuðborg-
inni þar sem menn hvílast
aðra hverja helgi og safna
orku til að geta svo haldið
virkjunarframkvæmdunum
áfram.
Fjall rís er önnur bók höf-
undar. Áður er út kpmin eftir
hann reisubókin Á slitnum
skóm.
185 blaðsíður. Kilja.
Guðsteinn. Dreifing:
íslensk bókadreifing hf.
Verð: 2.180 kr.
FLUGFISKUR
Berglind Gunnarsdóttir
Þessi saga gerist í nútíman-
um og segir frá sambandi
móður og barns. Ung stúlka
eignast sitt fyrsta barn og
allt virðist leika í lyndi en
smám saman hvolfist yfir
hana sorg og örvilnun. Um
leið hefst örvæntingarfull leit
hennar að ást og von. Saga
hennar er örlagasaga nú-
tímastúlku.
Þetta er fyrsta skáldsaga
Berglindar Gunnarsdóttur
en hún hefur áður sent frá
sér þrjár Ijóðabækur.
130 blaðsíður.
Örlagið.
Verð: 1.950 kr.
gjaforðið í Vesturbænum og
því lýkur með hinum hrika-
lega Kýklópaþætti. Orð-
kynngi, málsnilld og mynd-
hvörf virðast takmarkalaus.
220 blaðsíður.
Fjölvi-Vasa.
Verð: 2.480 kr.
GRANDA CAFÉ
Baldur Gunnarsson
íslenskir farmenn (Kátir voru
karlar) hafa siglt um öll
heimsins höf, bíða skipbrot á
ströndum Bakkusar, snúa
heim og eiga hvergi höfði
sínu að halla. Þeir hafast við
í Vesturhöfninni, í fúafleytum
og ryðkláfum í Þanghafinu.
Þegar ekkert virðist framund-
an nema bardagi við skips-
rottur og delirium tremens
kemur þjóðhöfðingi á
snekkju sinni í heimsókn og
teningunum er kastað. Tveir
góðvinir rísa úr öskustó.
Annar gerist trúarleiðtogi en
hinn endurheimtir æskuást-
ina sína, sem er orðin fínasta
HAFIÐ
Ólafur Haukur
Símonarson
Fjölskylduátök og skarpleg
samfélagsgagnrýni fléttast
saman í þessu snjalla leikriti
sem sýnt er í Þjóðleikhús-
inu. Persónurnar eru dæmi-
gerðir íslenskir orðhákar, en
oftar en ekki er fyndnin og
orðheppnin sprottin af sárri
reynslu. Átakaverk úr amstri
dagsins, í senn meinfyndið
og dapurlegt, áleitið - og
satt.
80 blaðsíður.
Forlagið.
Verð: 990 kr.
ÍSLENZK FORNRIT
HARÐAR
SAGA
HIÐ (SLENZKA FORNRITAFÉLAG
24