Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 32
Þýdd skáldverk
STEPHEN KINGi
Wt
r ;
sagnanna. Hann kemur les-
endum sínum sífellt á óvart
og nær að magna upp slíka
spennu í sögum sínum að
erfitt er að leggja bækur
hans frá sér fyrr en lestri er
lokið. Boeing 767 leggur
upp frá Los Angeles áleiðis
til Boston. Meðal farþega er
flugmaðurinn Brian Engle.
Hann sofnar skömmu eftir
flugtak en þegar hann vakn-
ar skömmu síðar hafa furðu-
legir atburðir gerst um borð í
flugvélinni. Við tekur barátta
upp á líf og dauða. Lesend-
ur eru leiddir inn í ógnarlega
atburðarás og látnir taka
þátt í henni með þersónun-
um sem koma við sögu. Og
það er ekki fyrr en á síðustu
blaðsíðunum sem séð verð-
ur hver málalok verða. Það
er ósvikin Stephen King-
spenna í þessari bók.
247 blaðsíður.
Fróði hf.
Verð: 1.980 kr.
FYLGSNIÐ
Dean R. Koontz
Þýðing: Magnús
Kristinsson
Þetta er fyrsta bókin sem út
kemur á íslensku eftir þenn-
an víðfræga metsöluhöfund.
Gagnrýnendur voru sam-
mála um að Fylgsnið væri
ein allra besta spennusaga
sem komið hefur út á þessu
ári. Allar bækur höfundarins
hafa komist á metsölulista
New York Times.
335 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 1.990 kr.
HEITUR BLÆR
Kristin McCloy
Þýðing: Oddný Sen
Þessi vinsæla ástarsaga
hefur verið gefin út í átján
löndum og kemur nú út á ís-
landi. Bókin lýsir djarflega
og hispurslaust heitum ást-
arfundum þeirra Ellie og
Jesse, sem er að hálfu
Cherokee-indíáni með vafa-
sama fortíð. Hann stundar
dóþsölu og er viðriðinn Vít-
isenglana, en höfðar mjög
sterkt til tilfinninga og líkam-
legra væntinga ungu stúlk-
unnar. Létt og opinská ást-
arsaga með erótísku ívafi.
220 blaðsíður.
Bókaútgáfan Krydd í
tilveruna.
Verð: 1.980 kr.
HRINGADRÓTTINSSAGA
JRR Tolkien
Hér hefst loks útgáfa hins
mikla verks Tolkiens á ís-
lensku. Hér er við svo vold-
ugt viðfangsefni að glíma að
það hefur staðið yfir í heilan
áratug. Mörg hundruð blað-
síður af unaðskenndum
sögnum og mannviti. Fjallar
um baráttuna milli hins góða
og illa. Hér er því lýst hvern-
ig Bilbó komst yfir Hring
myrkvakonungsins Saurons
og hvernig Fróði leggur,
með hjálp Gandalfs hins
gráa, af stað í hina miklu
hættuför til að eyða hringn-
um. Þessi frásögn sem hef-
ur heillað þjóðirnar loksins á
íslensku. Það er stór stund.
350 blaðsíður.
Fjölvi-Vasa.
Verð: 2.980 kr.
HUNDSHJARTA
Mikhaíl Búlgakov
Þýðing: Ingibjörg
Haraldsdóttir
Fyndin og undirfurðuleg frá-
sögn eftir höfund bókarinnar
Méistarinn og Margaríta.
Heimsfrægur prófessor í
Moskvu tekur að sér flæk-
ingshund og græðir í hann
eistu og heiladingul úr ný-
látnum manni. En afleiðing-
arnar koma öllum á óvart,
undarlegt dýr, gætt mann-
legum eiginleikum, gerir
mikinn usla. Syrtla.
144 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 1.595 kr.
KOLSTAKKUR
Brian Moore
Þýðing: Pétur Hilmarsson
Bókin sem varð grundvöllur
að samnefndri bíómynd
undir stjórn Bruce Beres-
fords. Óvenjuleg spennu- og
ævintýrasaga sem gerist í
Kanada á tímum franska
kristniboðsins þar. - Átaka-
mikil saga sem sannarlega
kemur á óvart.
214 blaðsíður.
Frjáls fjölmiðlun hf.
- Úrvalsbækur.
Verð: 790 kr.
32