Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Qupperneq 47
ÍSLENZK FORNRIT
Skálholt
Skrúði og áhöld
Hörður Agústsson
Kristján Eldjárn
I þessu þriðja bindi um Skálholt, í ritröðinni Staðir og
kirkjur, er fjallað um skrúða, áhöld, minningarmörk og
bækur. Greint er annars vegar frá þeim hlutanum sem
horfinn er og hins vegar frá þeim, sem varðveist hefur.
Kristján Eldjárn ritar um varðveittan skrúða og áhöld, en
Hörður Ágústsson aðallega um þann hlutann sem glatast
hefur, einnig ágrip af skrúða- og áhaldasögu íslenskri.
Bókin er 369 blaðsíður í stóru broti, ríkulega myndskreytt
og einstæð heimild um Skálholtsstað. k
Rannsóknir eru eins vandaðar og kröfuharðasti frceði-
maður getur ætlast til. Skipulagið er rökrétt. Texti er skýr
og vandaður. Myndefni hreint fráhært. Hönnun bókar og
allur ytri frágangur er eins góður og best verður á kosið.
Sigurjón Björnsson, Mbl. 21/5 '92.
SAGA
ÍSLANDS
Umfangsmesta og fjölbreyttasta yfirlitsrit sem hingað til
hefur komið út um sögu lands og þjóðar og er þar tekið á
flestum þáttum þjóðarsögunnar. Rakin er saga stjórnmála
og stjórnskipunar, greint frá atvinnuvegum, stéttum, dag-
legu lífi manna, samskiptum við aðrar þjóðir, húsakosti
lýst, sagt frá bókmenntum og listum.
I fyrstu fimm bindunum er sagan sögð frá upphafi lands-
byggðar til siðbreytingar.
Hvert bindi er kjörin gjöf til vina og vandamanna.
I öskju er Saga Islands 1-5 glæsileg tækifœrisgjöf.
«
= HARÐAR
\ SAGA
HIÐ (SLENZKA FORNRITÁFÉLAG
HARÐAR SAGA, í
BÁRÐAR SAGA SNÆFELLSÁSS,
ÞORSKFIRÐINGA SAGA,
FLÓAMANNA SAGA
og níu þættir,
er efni þessa mikla rits, 756 bls.
Með þessu bindi (XIII) eru allar íslendingasögurnar
komnar út í öndvegisútgáfu íslenzkra fornrita á vegum
Fornritafélagsins. Þórhallur Vilmundarson ritar ítarlegan
formála (228 bls.) fyrir bindinu. Þar er og að finna
allmargar myndir, örnefnauppdrætti, ætta- og nafnaskrár.
Harðar sögu má engan vanta í safn sitt.
ÍSLENZK FORNRIT
Útgáfubækur Fornritafélagsins eru vandaðar að frágangi
og fræðilegum vinnubrögðum. Með texta fornritanna
fylgja rækilegar skýringar og ítarlegur formáli. Er þetta
eina safn íslenzkra fornrita, sem þannig er úr garði gert.
Við hvert bindi eru vandaðar nafnaskrár, ættartölur og
kort. Það er aukin ástæða til þess, að allir bókelskir
íslendingar hafi Islenzk fornrit tiltæk í hillum sínum.
GLÆÐUM ÁHUGA ÆSKUNNAR
Á ÍSLENZKUM FORNBÓKMENNTUM
GEFUM SÍGILD ÖNDVEGISRIT
Dreifingu annast Hið íslenzka bókmenntafélag.
HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG
SÍÐUMÚLI21 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI91-679060
HIÐ ÍSLENZKA FORNRITAFÉLAG
i SÍÐUMÚLI21 • 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI91-679060