Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Síða 55
Bcekur almenns efnis
þessari fegurstu gjafabók
ársins birtist ísland eins og
augað nemur það.
152 blaðsíður.
Forlagið.
Verð: 6.980 kr.
ÍSLENSK
BÓKMENNTASAGAI
Vésteinn Ólason, Sverrir
Tómasson og Guðrún
Nordal
Með þessu bindi er loks haf-
in útgáfa á ítarlegri, vand-
aðri íslenskri bókmennta-
sögu, sem skrifuð er af hæf-
ustu fræðimönnum á að-
gengilegan hátt, svo hún
nýtist öllum sem áhuga hafa
á bókmenntum okkar.
Fyrsta bindi spannar tfmann
frá íslands byggð og að
mestu fram undir aldamótin
1300, og er þar geysimikill
fróðleikur saman dreginn
um rætur bókmennta okkar,
íslenskt þjóðfélag og erlend-
an lærdóm. Bókin er ríku-
lega myndskreytt og frá-
gangur allur vandaður. Ann-
að bindið kemur út á næsta
ári og er áætlað að allt verk-
ið komi út á tveimur árum.
600 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 4.900 kr.
ÍSLENSKIR AUÐMENN
Jónas Sigurgeirsson
og Pálmi Jónasson
Hvaða íslendingar eiga
hreina eign yfir 200 milljónir
króna? Hér er þeirri spurn-
ingu svarað með ítarlegum
upplýsingum um nær 200
nafngreinda íslendinga.
Sagt er frá því hverjir hafa
skarað fram úr í viðskiptalíf-
inu og hvernig auður þeirra
hefur safnast upp.
Almenna bókafélagið hf.
Verð: 2.995 kr.
ICELANDIC
WATERFALLS
ÍSLENSKIR FOSSAR
Jón Kr. Gunnarsson
Fossarnjr eru gersemar í
náttúru íslands og með fjöl-
breytileika sínum, krafti og
tign glæða þeir landið lífi og
fegurð. ( þessari bók, sem
einnig er með enskum texta,
eru litmyndir af 270 íslensk-
um fossum og fjallað er um
hvern þeirra, m.a. getið
gönguleiða og greint frá
þjóðsögum eða sögnum,
sem tengjast fossinum. Bók-
inni er skipt niður eftir sýsl-
um með kortum sem sýna
staðsetningu fossanna.
Þetta er bæði falleg og fróð-
leg bók.
352 blaðsíður.
Skuggsjá.
Verð: 8.780 kr.
ÍSLENSKUR
SÖGUATLAS l-lll
Árni Daníel Júlíusson og
Jón Ólafur ísberg
Saga íslands frá landnámi til
nútíma er hér sett fram á
nýjan hátt. Vönduð kort,
stuttur og gagnorður texti og
fjöldi teikninga og Ijósmynda
gera verkið einstætt í sinni
röð: Yfirlitsverk, kortabók og
uppflettirit í senn. Nú er
hægt að fletta í gegnum alla
íslandssöguna í Islenskum
söguatlasi.
Iðunn.
Verð: 1. bindi: 9.980 kr.
2. bindi: 12.980 kr.
3. bindi: 12.980 kr.
KÓLUMBUSí KJÖLFAR
LEIFS
lan Wilson
Þýðing: Jón Þ. Þór
500 ár eru síðan Kólumbus
„fann” Ameríku og hefur
saga hans og hlutverk verið
tekið til endurskoðunar. Það
undarlega er að Kólumbus
fór fyrst að hyggja að vest-
ursiglingu eftir að hafa/
dvalist í borginni Bristol og
e.t.v. komið til íslands. Þar
gat hann fengið alla vit-
neskju um Vínland og
Grænland og þannig er nú
Ijóst að hann sigldi einfald-
lega í kjölfar Leifs, en upp-
götvaði ekkert nýtt. Hér lýsir
breskur fræðimaður sigl-
ingaborginni Bristol á 15.
öld, tengilið milli íslands og
Spánar. Fjöldi íslendinga
var þá búsettur í Bristol og
þaðan voru stundaðar sigl-
ingar til íslands, Grænlands,
Nýfundnalands og einmitt til
Palos á Spáni sem Kól-
umbus lagði upp frá. Nýr
hluti íslandssögunnar og
jafnframt stórskemmtileg
bók.
256 blaðsíður.
Fjölvi-Vasa.
Verð: 2.460 kr.
öll kvöld
(líka um
helgar)
í A
1 u
S |
A R
F s
O l
L Æ