Bókatíðindi - 01.12.1995, Side 34
Þydd skáldverk
þriðja tug tungumála.
Þýðandinn, Bríet Héðins-
dóttir, gerir grein fyrir
höfundinum og bókinni í
ítarlegum eftirmála.
304 blaðsíður.
Ormstunga
ISBN 9979-63-001-9
Verð: 2.990 kr.
MORÐ í HVERFINU
Jonnie Jacobs
Þýðing: Sólveig
Jónsdóttir
Afar vel skrifuð saga um
ástir, afbrýði og afbrot.
Kate er ólétt og ein með
unga dóttur sína því eigin-
maðurinn er farinn burtu
„til að finna sjálfan sig".
Frúin í næsta húsi finnst
vegin og Kate dregst inn í
ástarsamband við lög-
reglumanninn sem á að
leysa gátuna. Hún flækist
ósjálfrátt inn í það verkefni,
því hver getur gert svona
nokkuð í þessu kyrrláta
hverfi góðborgara?
256 blaðsíður.
Úrvalsbækur
Frjáls fjölmiðlun hf.
ISBN 9979-840-31-5
Verð: 895 kr.
3 ókksefLsf-
RíTfANGA OG 0ÖKAVERSLUN
Glæsibæ
Álfheimum 74
104 Reykjavík
568-4450
MORÐ I ÞREMUR
ÞÁTTUM
Agatha Christie
Þýðing: Ragnar
Jónasson
Mord í þremur þáttum er
sígild, fyrsta flokks leyni-
lögreglusaga með spenn-
andi söguþræði, óvæntum
atburðum, grunsamlegum
persónum og síðast en
ekki síst sögulokum sem
koma öllum á óvart...
nema Hercule Poirot.
192 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-270-1
Verð: 2.480 kr.
Mary
Higgins
Clark
Mundumig
MUNDU MIG
Mary Higgins Clark
Þýðing: Jón Daníelsson
Ellefta spennusaga höf-
undar sem allar hafa orðið
metsölubækur um gjör-
vallan heim. Mary Higgins
Clark bregst ekki lesendum
nú frekar en endranær og
heldur þeim í magnaðri
spennu allt til síðustu blað-
síðu bókarinnar.
264 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-263-9
Verð: 2.480 kr.
MYRKRANNA Á MILLI
Sidney Sheldon
Þýðing: Óskar
Ingimarsson
Harry Stanford, einn ríkasti
maður heims, drukknar
þegar hann fellur útbyrðis
af snekkju sinni með dular-
fullum hætti skammt frá
Korsíku. Þetta kemur af
stað atburðarás sem hefur
áhrif jafnt austan hafs og
vestan. í fjölskylduboði
eftir útförina í Boston
birtist Ijómandi falleg, ung
kona. Hún segist vera dótt-
ir Stanfords og krefst að fá
sinn skerf af eignum auð-
jöfursins.
Er hún sú rétta eða ekki?
Segir hún satt? Eða er hún
að leika snjallan og stór-
hættulegan leik?
Einn víðlesnasti og snjall-
asti spennusagnahöfundur
veraldar.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-291-4
Verð: 2.480 kr.
Eymundsson
MYRKRAVERK
Michael Ridpath
Þýðing: Geir Svansson
Michael Ridpath kom sem
sigurvegari inn á breskan
bókamarkað með þessari
fyrstu skáldsögu sinni og
hefur verið kallaður hinn
breski John Grisham.
Handritið var selt fyrir met-
fé og hafa forlög í þrjátíu
löndum tryggt sér útgáfu-
réttinn á henni. Ridpath
sótti ísland heim í tilefni af
útkomu bókarinnar.
Paul Murray er verðbréfa-
miðlari í bresku kauphöll-
inni og sýslar þar með
milljónir punda á degi
hverjum. Debbie, vinnu-
félagi hans, finnst drukkn-
uð í ánni Thames og fer
Paul að grafast fyrir um
orsakir þessa. Fyrr en varir
hefur hann dregist inn í
flókinn vef blekkinga, svika
og morðs. Spennusaga í
hæsta gæðaflokki!
303 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0290-4
Verð: 2.480 kr.
•iBOKAHORNIÐtb
Laugavegi 100
101 Reykjavík
551 -3939
NELL
Mary Ann Evans,
William Nicholson,
Mark Handley
Þýðing:
Ragnar Hauksson
Ógleymanleg saga um
konu sem borin er í leyn-
um og alin upp í ein-
angrun. Allt í einu er hún
hrifin úr þessu verndaða
umhverfi og þeytt inn i hóp
ókunnugra sem geta ekki
komið sér saman um hvort
hún sé dýr eða engill - eða
hvort tveggja. - Samnefnd
kvikmynd var sýnd í
Háskólabíói með Jodie
Foster í aðalhlutverki.
192 blaðsíður.
Úrvalsbækur
Frjáls fjölmiðlun hf.
ISBN 9979-840-23-4
Verð: 895 kr.
ÓGNARÁST
Linda Randall Wisdom
Þýð.: Ragnar Hauksson
34