Bókatíðindi - 01.12.1995, Side 42
Bœkur almenns efnis
vilja kynnast netinu sér til
gagns og gamans.
132 blaðsiður.
Lindin
ISBN 9979-9144-3-2
Verð: 2.850 kr.
Jr'
HARXA \&j
SÁLFIv/I3I)l|
BARNASÁLFRÆÐI
Álfheiður
Steinþórsdóttir og
Guðfinna Eydal
Handbók handa uppal-
endum og öðrum sem
sinna málefnum barna frá
fæðingu til unglingsára.
Lýst er eðlilegum þroska-
ferli á hverju æviskeiði fyrir
sig og fjallað um ýmsa
einstaka þætti sem geta
mótað líf barna.
285 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0896-6
Verð: 3.960 kr.
BLOSSINN
HÍRÓSÍMA - BORGIN
SEM HVARF
John Hershey
Þýðing: Bergþóra
Sigurðardóttir
Heimsfrétt fyrir 50 árum.
Heilli stórborg var tortímt á
augnabliki með einni lítilli
sprengju. Japanir gáfust
upp. Bandamenn hrósuðu
sigri en hirtu lítt um þján-
ingar og dauða hundruða
þúsunda. Frásögn byggð á
vitnisburðum þeirra sem
eftir lifðu.
160 blaðsíður.
Fjölvi
ISBN 9979-58-275-8
Verð: 2.280 kr.
7J\ \\
BOÐORÐIN TÍU
Bókin hefur að geyma boð-
orðin tíu ásamt greinar-
góðum skýringum á merk-
ingu hvers boðorðs fyrir
sig.
Boðorðin tíu er afar vönd-
uð í alla staði og að nokkru
leyti handunnin. Að auki er
hún minnsta bók sem fáan-
leg er hér á landi (meðf.
mynd er í fullri stærð).
96 blaðsíður.
Eggert og Hallsteinn.
Dreifing: Islensk
bókadreifing
ISBN 9979-60-161-2
Verð: 950 kr.
BÓKIN UM ENGLANA
Sr. Karl Sigurbjörnsson
Falleg bók um engla í
kristinni trú og tilbeiðslu
og í túlkun íslenskra og
BÓKINUM
ENGL4NA
efr-Rr.
Kk-í bful'N.i.uu
erlendra listamanna. Prýdd
fjölda litmynda.
90 blaðsíður.
Skálholtsútgáfan
ISBN 9979-826-42-8
Verð: 2.480 kr.
A R N I 3IQURJÓNSSON
BcSkmenntakenningar
síðari alda
BÓKMENNTAKENNING-
AR SÍÐARI ALDA
Árni Sigurjónsson
ítarleg og vönduð kynning
á vestrænum bókmennta-
kenningum á tímabilinu
1500-1900, sú fyrsta sinnar
tegundar á íslensku. Fjallað
er um fjölda erlendra höf-
unda en einnig skrif íslend-
inga á þessu sviði og
tengsl þeirra við alþjóðlega
strauma.
462 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0907-5
Verð: 4.480 kr.
CELESTINE
HANDRITIÐ
James Redfield
CELESTINE HANDRITIÐ
James Redfield
Þýðing: Anna María
Hilmarsdóttir
Þú hefur aldrei áður lesið
bók sem þessa...
Celestine handritið hefur
að geyma leyndardóma
sem eru að gjörbreyta
heiminum. Bókin er byggð
á fornri visku úr perúsku
handriti og okkur er kennt
að sjá samhengi atburð-
anna í lífi okkar... jafnframt
opinberar hún okkur hvað
gerist á komandi árum!
Bókin hefur gengið frá
manni til manns síðan hún
kom í litlar bókaverslanir
víða um Ameríku. Celest-
ine handritið kemur fram í
dagsljósið þegar mann-
kynið þarf verulega á því
að halda að lesa það sem
bókin hefur fram að færa.
Sagan er heillandi ævintýri
og uppgötvun en um leið
leiðsögn sem getur hjálpað
okkur að átta okkur á stöðu
okkar... og leiðbeint okkur
með nýrri orku og bjartsýni
þegar við höldum ferð
okkar áfram á vit morgun-
dagsins.
Bók sem kemur aðeins
fram einu sinni á manns-
ævi og skiptir sköpum í lífi
fólks.
233 blaðsfður.
Leiðarljós hf.
ISBN 9979-9090-1-3
Verð: 2.490 kr.
DAGAR ÍSLANDS
Atburðir úr sögu og
samtíð alla daga ársins
Jónas Ragnarsson tók
saman
Bókin sem vitnað er í nán-
ast daglega í útvarpsstöðv-
um landins. Hún seldist
upp eftir síðustu jól en
hefur nú verið endur-
prentuð. í Dögum íslands
er atburðum sem tengjast
lífinu í landinu og sögu
þjóðarinnar skipað niður
eftir dögum, alla 366 daga
ársins. Hvað skyldi hafa
gerst á íslandi þennan eða
hinn daginn í aldanna rás?
Hvaða tíðindi eru til dæmis
skráð á afmælisdeginum
þínum?
I Dögum Islands er greint
frá á þriðja þúsund atburð-
um, stórtíðindum jafnt sem
því skrýtna og skondna,
svo úr verður bók sem í
senn er fróðleg og
skemmtileg. Dagar íslands
höfðar til fólks á öllum
aldri og ertilvalin gjafabók.
265 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0253-X
Verð: 1.980 kr.
EINKALÍF PLANTNA
David Attenborough
Þýðing: Óskar
Ingimarsson
Án plantna yrði enginn
matur á jörðinni, engin dýr
af nokkru tagi, ekkert líf.
Þær lifa þó lengstum í
sínum eigin heimi, og við
42