Bókatíðindi - 01.12.1995, Side 60
Ævisögur og endurminningar
handa við að lýsa tilfinn-
ingum sínum og hugsun-
um um leið og hún segir
Paulu sögu fjölskyldunnar.
Undurfalleg bók um sár-
sauka, ást og hugrekki,
skrifuð af Ijóðrænni og
sterkri stílgáfu.
340 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-987-4
Verð: 3.880 kr.
mmmmmmmmmmmmmmm
PÉTUR SJÓMAÐUR
Ásgeir Jakobsson
Pétur sjómadur er ævisaga
Péturs Sigurðssonar, al-
þingismanns, sem um
þriggja áratuga skeið setti
mikinn svip á stjórnmála-
og verkalýðssögu landsins
og var alþjóð kunnur sem
„Pétur sjómaður"
Bókin segir frá uppvexti
Péturs í Kreppunni miklu;
nær tuttugu ára sjómanns-
ferli hans á bátum, tog-
urum og farskipum; af-
skiptum hans af verka-
Bókbæt* sf.
RfIÍ*NGA OG BÚKAVæSUW
Glæsibæ
Álfheimum 74
104 Reykjavík
568-4450
lýðsmálum innan Sjó-
mannafélags Reykjavíkur
og á A.S.Í. þingum, þegar
pólitíkin var hvað hörðust;
langri stjórnmálabaráttu en
Pétur sat 28 ár á þingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og var
m.a. formaður bankaráðs
Landsbanka íslands; og
hinu mikla uppbyggingar-
starfi Péturs í öldrunar-
þjónustu, en hann var í 30
ár formaður Sjómanna-
dagsráðs í Reykjavík og
Hafnarfirði og vann þar að
stækkun Hrafnistu í Reykja-
vík, hafði forystu um bygg-
ingu Hrafnistu í Hafnarfirði,
sem kölluð hefur verið
„kraftaverkið hans Péturs",
og stjórnaði uppbyggingu
sumardvalaraðstöðu sjó-
manna að Hraunborgum í
Grímsnesi.
Saga Péturs Sigurðssonar
er þannig sjómannssaga,
framkvæmdasaga og
verkalýðs- og stjórnmála-
saga - og er þá eftir mað-
urinn skrautlegur en Pétur
háði um tíma harða bar-
áttu við Bakkus. Bókina
prýða 100 myndir.
Pétur sjómaðurer 21. bók
Ásgeirs Jakobssonar en
meðal ævisagna hans má
nefna metsölubók síðasta
árs, Óskars sögu Halldórs-
sonar.
300 blaðsíður.
Setberg
ISBN 9979-52-136-8
Verð: 3.420 kr.
RAGNARI
SKAFTAFELLI
Endurminningar og
frásagnir
Helga K. Einarsdóttir
Ragnar Stefánsson bóndi
og þjóðgarðsvörður var
fæddur og uppalinn í
Skaftafelli í Öræfum. í
endurminningum sínum
lýsir hann lífinu í þessu
einstæða umhverfi og
þrotlausri baráttu við nátt-
úruöflin.
Hann lýsir búskaparhátt-
um á uppvaxtarárum sín-
um og síðar, og þó einkum
þeim þáttum sem sérstakir
eru fyrir þetta svæði, svo
sem selveiði á söndum og
hættuferðum með fólk og
farangur yfir stórfljót og
jökla, sem heita máttu dag-
legt brauð. Einnig segir
hann frá skipsströndum,
m.a. „Gullskipinu". Ragnar
segir frá uppvexti sínum
hjá ástríkum foreldrum,
ást, hjónabandi og mikilli
sorg, en einnig gleði og
farsæld í fjölskyldulífi.
Þá segir hann frá stofnun
þjóðgarðsins í Skaftafelli
og mörgum mönnum er
þar komu við sögu, m.a. dr.
Sigurði Þórarinssyni
Fjöldi mynda prýðir
bókina sem er ómetanleg
heimild um náttúruperluna
í Skaftafelli.
235 blaðsíður.
Hörpuútgáfan
ISBN 9979-50-068-9
Verð: 3.480 kr.
SATT AÐ SEGJA
Af verktöku og
stjórnmálabaráttu
Jóhanns G.
Bergþórssonar
Páll Pálsson
Á seinni árum hafa fáir
verið eins fyrirferðarmiklir
í íslensku atvinnulífi og
Hafnfirðingurinn Jóhann
G. Bergþórsson. Fyrir utan
að vera forstjóri og einn
eigenda stóru jarðvinnu-
og byggingafyrirtækjanna
Hraunvirkis, Hagvirkis og
Hagvirkis-Kletts, sem reistu
virkjanir, brýr, vegi, hafnir
og hús út um allt land og
veittu þúsundum manna
atvinnu, hefur hann verið
hluthafi og tekið þátt í að
stjórna fjölmörgum ólíkum
fyrirtækjum, s.s. Hvaleyri,
Arnarflugi, Smjörlíki-Sól,
Sjóvá-Almennum, Marel
og fleirum.
Uppbyggingin var hröð,
umsvifin ævintýraleg, en
skilyrðin einnig hörð og
erfiðleikarnir miklir er
leiddu til gjaldþrots Hag-
virkis-Kletts í október 1994.
Jóhann hefur lengi verið í
forystusveit Sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði og um
engan bæjarstjórnarmann
hefur staðið jafn mikill styr
að undanförnu - eins og
kunnugt er af fréttum.
Hér leggur Jóhann sín
spil á borðið í opinskárri og
skemmtilegri frásögn. Bók-
in geymir athyglisverðar
lýsingar á mönnum, at-
burðum og málefnum sem
koma munu mörgum ræki-
lega á óvart.
300 blaðsíður.
Framtíðarsýn hf.
ISBN 9979-845-29-5
Verð: 3.400 kr.
Eymundsson
SILFURMAÐURINN
Vilhjálmur Einarsson,
Örn Eiðsson og Ólafur
Unnsteinsson
I bókinni segir Vilhjálmur
frá uppruna sínum og
umhverfi á Austurlandi á
4.-6.áratug aldarinnar. Af
opinskárri einlægni greinir
hann frá aðstæðum tengd-
um sigrum og vonbrigðum
á íþróttaferli sínum árin
1952-1962. Hæst ber frá-
sögnina af „silfrinu" í Mel-
bourne 1956.
Örn Eiðsson ritar um um-
fjöllun fjölmiðla um Vil-
hjálm og afrek hans en
Ólafur Unnsteinsson tók
saman nákvæma mótaskrá
og árangur Vilhjálms og
fleiri frjálsíþróttamanna
þessi ár. í bókinni eru 90
myndir.
176 blaðsíður.
Námshringjaskólinn
ISBN 9979-9215-1-X
Verð: 3.900 kr.
STEINN STEINARR
ÆVI OG SKOOANIR
Ingi Bogi Bogason
Ingi Bogi Bogason bók-
menntafræðingur rekur hér
æviferil Steins á ýtarlegan
hátt og varpar þar Ijósi á líf
hans og skáldskap. Hann
byggir þar á ýmsum heim-
ildum og viðtölum við
samferðamenn skáldsins. I
bókinni eru birt viðtöl sem
tekin voru við Stein auk
greina sem hann ritaði.
Sumar greinanna hafa ekki
60