Bókatíðindi - 01.12.2004, Side 142
Fræði og bælcur almenns efnis
Vesturlöndum undanfarin
ár og magnast í réttu hlut-
falli við vöxt einsleitn-
innar, sem fylgir hnatt-
væðingu og sívaxandi
kröfum um rekstrarlega
hagræðingu. Á íslandi
hefur þessi umræða náð
sér á strik síðustu misser-
in, en hefur nær eingöngu
miðast við rekstur fjöl-
miðla á landsvísu. Þar til
nú hefur ekkert verið fjall-
að um þann fjölbreytileika
sem felst í fjölmiðlum sem
einbeita sér að nærsamfé-
laginu og binda sig við til-
tekin landsvæði eða hér-
uð. í þessu riti opnar höf-
undur hins vegar umræðu
um mikilvægi slíkra fjöl-
miðla fyrir þau samfélög
sem þeir starfa í, kortlegg-
ur þessa flóru og birtir
rannsóknarniðurstöður.
Hann spyr sérstaklega um
mikilvægi héraðsfrétta-
blaða og næríjölmiðla fyr-
ir samheldni og uppbygg-
ingu staðbundinna samfó-
laga eða byggðalaga. Slík-
ar spurningar eru vel
þekktar í jafnt fræðilegri
sem almennri umræðu
erlendis, þó lítið hafi bor-
ið á þeim í íslenskri
byggðaumræðu.
93 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-585-2
Leiðb.verð: 1.990 kr.
Kilja
MIG MUN EKKERT
BRESTA
Bók um sorg og von
Jónína Elísabet
Þorsteinsdóttir
50 hugleiðingar eftir Jón-
ínu Elísabetu Þorsteins-
dóttur prest við Akureyr-
arkirkju.
Á gleðilegum tímamót-
um í lífi höfundar knúði
sorgin skyndilega dyra.
Lesendur skyggnast inn í
huga hennar og fylgjast
með því hvernig hún
glímir við söknuð og sig
sjálfa í óvæntum aðstæð-
um. Lífið birtist henni í
nýju ljósi, hún leyfir sorg-
inni að tala og voninni að
svara. Minningarnar
hrannast upp og lesendur
spyrja með höfundi um
tilgang lífsins og vonina.
Bók sem styrkir öll þau
sem missa sína nánustu
og hjálpa þeim að takast á
við sorgina af raunsæi og
æðruleysi. Hughreystandi
frásögn, ljóðræn og vonar-
rík, þar sem horfst er í
augu við sorgina sem
heimsækir okkur öll, ein-
hvern tíma.
64 bls.
Skálholtsútgáfan
ISBN 9979-765-85-2
Leiðb.verð: 2.490 kr.
MUNKURINN SEM
SELDI SPORTBÍLINN
SINN
Robin Sharma
Þýð.: Þóra Sigríður
Ingólfsdóttir
Eftir lífshættulegt hjarta-
áfall neyðist lögfræðingur-
inn Julien Mantle til að
horfast í augu við það að
tilvera hans hefur ein-
kennst af allt of mikilli
streitu og álagi. Til að
finna lífi sínu nýjan farveg
leitar hann í rætur fornrar
menningar og meðal
munka í afskekktu þorpi í
Tíbet lærir hann áhrifarík-
ar aðferðir til að leggja
rækt við sál og líkama,
íylla líf sitt tilgangi og öðl-
ast hugarró. Hér renna
viska austurs og vesturs
saman á nýstárlegan hátt
og sýnt er hvernig bæta
má líðan sína og öðlast
kjark, jafnvægi og ham-
ingju.
199 bls.
JPV útgáfa
ISBN 9979-781-14-9
Leiðb.verð: 3.980 kr.
MÚRINN í KÍNA
Huldar Breiðfjörð
Ungur Reykvíkingur fær
þá flugu í höfuðið að
ganga eftir endilöngum
Kínamúrnum. Hann sæk-
ir einkatíma í kínversku,
kaupir sér viðlegubúnað
og leggur af stað. En það
eru ekki liðnir margir dag-
ar í nýju landi þegar það
fara að renna á hann tvær
grímur. Framundan er
tæplega 3000 kílómetra
krefjandi ferðalag. Huldar
Breiðfjörð sló rækilega í
gegn árið 1998 með ferða-
sögunni Góðir Islending-
ar. Hann fylgir nú þeirri
bráðskemmtilegu bók eft-
ir með magnaðri frásögn
af glímu óreynds ferða-
langs við framandi tungu-
mál, endalausar eyði-
merkur, torkennileg
skordýr, lamandi vatns-
skort og sína heimatil-
búnu fordóma.
230 bls.
Bjartur
ISBN 9979774509
Leiðb.verð: 4.250 kr.
Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar
Garðarsbraut 9 • 640 Húsavík
S. 464 1234 • husavik@husavik.com
140