Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 43
gæta að uppfæra námskeiðaskipan í Hlöðunni af
vandvirkni við upphaf hverrar annar, þannig að
auðveldast sé fyrir nemendur að finna þau gögn er þá
vanhagar um.
Ávinningurinn
Ljóst er að kostnaður vegna Hlöðu-verkefnisins er
töluverður, bæði hvað snertir vélbúnað, hugbúnað og
vinnu við að koma efninu inn, svo og viðhald og
skipulagningu á gagnagrunninum sjálfum. Ætla má
að í náinni framtíð fylgi aðrir háskólar í kjölfar Há-
skólans á Akureyri en þá ættu menn ef til vill að
íhuga þá leið sem breskir háskólar fóru með HERON
verkefninu.
HERON (http://www.heron.ac.uk/qanda.htm) eru
samtök breskra háskóla sem stofnuð voru að frum-
kvæði University of Stirling, Napier University í Edin-
borg og South Bank University í London. Þau bjóða há-
skólum þar í landi að gerast áskrifendur að þjónustu
sem fólgin er í því að HERON annast samninga við
höfundarrétthafa og aflar heimilda frá þeim auk þess
að skanna efnið og varðveita eintak af því í gagna-
grunnum sínum til síðari nota. Mikill vinnusparnaður
felst í því að skanna hvert verk aðeins einu sinni og
hafa það til reiðu fyrir næsta notanda að því gefnu að
sjálfsögðu að samið sé um afnotin í hvert skipti. Einnig
má sjá fyrir sér að það spari vinnu að einn aðili annist
það tímafreka og oft flókna verk að semja við höfund-
arrétthafana um afnotin og heimildirnar.
Hver hefur verið ávinningurinn fyrir Háskólann á
Akureyri við að setja Hlöðuna upp?
• Þjónustan við nemendur er aukin og bætt
• Aðstaða fjarnema og staðarnema er jöfnuð
• Vinna bókavarða við skammtímalán og Ijósritun
minnkar
• Þjónusta við kennara er aukin og bætt, þar sem
kennsluefni er komið fram á auðveldan og að-
gengilegan hátt. Þess má geta að hægt er að setja
Sitebuilder tengla úr Proquest beint inn í Hlöð-
una og einnig að tengja námskeiðin í Hlöðunni
beint inn í WebCT sem er það námsumhverfi á
vef sem notað er við Háskólann á Akureyri.
• Það er von bókavarða að með tímanum hverfi
möppur með ljósrituðum tímaritsgreinum og
bókarköflum úr hillum bókasafnsins og Hlaðan
taki alfarið við enda er erfitt að halda utan um
slík söfn, eins og þekkt er.
• Síðast en ekki síst er höfundaréttur virtur og
greitt er lögum samkvæmt fyrir afnot efnis sem
tryggir að fræðimenn, sem í mörgum tilfellum
eru háskólakennarar, fái greiðslu fyrir afnot hug-
verka sinna.
Tilvitnanir:
1 Heimasíða Fjölís, http://www.fjolis.is
2 Samningur um ljósritun og hliðstæða eftirgerð í skólum,
2001
Summary
Electronic reserve collection in the University of
Akureyri
Electronic reserve collections are becoming the preferred
method for improving access to class and instructional
material in academic libraries, especially in Britain and the
US.The demand for equal service for all students, including
distance learning students, encouraged the University of
Akureyri Library to offer electronic reserves in the beginning
of 2002, first of all libraries in Iceland. Before scanning an
article or a book chapter, it is necessary to obtain per-
mission from the copyright holder. Through the Copyright
Clearance Center it is possible to obtain permission for
material published abroad. Fjölis, on the other hand,
handles permissions for Icelandic material according to a
trial agreement signed in June 2002. The Docutek software is
used for the reserves, as recommended by numerous uni-
versities.The software is user-friendly both for students and
librarians. Course examinations covering the past three
years are also stored in the Docutek system and are there-
fore easily accessible by all students. The advantages of
electronic reserves are substantial, it results in better ser-
vice for students and teachers alike, and staff burden by
circulation and photocopy duties is reduced. However, the
cost of obtaining permissions may prevent further develop-
ment of the project.
BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
41