Heima er bezt - 01.03.2003, Blaðsíða 14
Ólafur Ishólm Jónsson:
Eftirleit á
Gnúpverja-
afrétti
1958
Nú eru liðin rösk 43 ár síðan ég fór í mína fyrstu
eftirleit á Gnúpverjaafrétt. Þetta var nokkuð
sérstœð ferð að mörgu leyti, líklega tekið einna
lengstan tíma, þeirra ferða sem farnar höfðu verið, margt
fé fannst en ekki tókst að hreinsmala afréttinn. Utigengn-
ar kindur heimtust af fjalli nœsta haust.
Gnúpverjaafréttur er svæðið sem liggur innan afréttar-
girðingar, sem liggur frá Háafossi í vestri, austur um
Stangarfell, Hafið og endar í Bláskógum við Þjórsá.
Vesturmörk afréttarins eru með Fossá í Fossárdrög, um
Flóamannaöldu og þaðan sjónhendingu í Arnarfell hið
mikla, sunnan í Hofsjökli. Að austan skiptir Þjórsá afrétt-
armörkum. Bein lína frá Hólaskógi að Bólstað, náttstað
við Sóleyjarhöfðavað á Þjórsá, eru 80 km. Þaðan eru svo
um 20 km í Arnarfell hið litla, sem er norðurendi afrétt-
arins.
Sandleit
Á þessum tíma var, og hafði lengi verið, farið þrisvar á
hausti í smalamennsku, eða eins og sagt, var fara á fjall, á
afréttinn. Fyrst var farið í fjallsafn og allur afrétturinn
smalaður, frá afréttargirðingu inn í Þjórsárver. Segja má
að fyrsta leitin sé þriskipt. Fjallmenn fóru í þremur hóp-
um. Fyrsti hópurinn fór í Sandleit, sem einnig var kölluð
„langaleit“. 9 daga ferð úr Gnúpverjahreppi. Fóru þeir af
stað á þriðjudegi í 37. viku og riðu inn í Flólaskóg fyrsta
daginn, þann næsta í Kjálkaver, þar næst í Nauthaga og
þaðan að Bólstað. Fimmta daginn smöluðu þeir svæðið
milli Þjórsár og Kerlingarfjalla og í Kjálkaver. Var það
raunar dagurinn sem segja má að hafi verið sá fyrsti
áleiðis til byggða.
A hlaðinu í Skaftholti í Gnúpverjahreppi, ferðbúinn í
fallferð, árið 1963. Ólafur situr á Sörla með Skeggja í
taumi.
Norðurleit
var næsta leit kölluð. Norðuleitarar fóru á fostudeginum
og á öðrum degi að Dalsá, en riðu til móts við Sandleitara
í Kjálkaveri og smöluðu með þeim Norðurleit og gistu
aðra nótt við Dalsá.
Þriðji hópur íjallmanna voru svokallaðir
Dalsármenn
Þeir fóru í Flólaskóg á laugardegi en þann næsta í Gljúf-
urleit. Árla morguns á mánudeginum að Dalsá þar sem
þeir hittu Sandleitara og Norðuleitara. Var leitum skipt í
Skiptibrík, litlu gili, rétt við Dalsá. Smöluðu allir saman
þann dag og gistu í Gljúfurleit, næsta dag smalað í Hóla-
skóg. Um margra ára bil, bættist við hóp fjallmanna svo
kallaðir
Kistuversmenn
Þeirra hlutverk var að ríða inn í Kistuver snemma á
þriðjudeginum úr náttstað sínum, sem var s.a. í Fossheiði,
vera þar í fyrirstöðu til að koma í veg fyrir rennsli tjárins
yfir Fossá vestur á Flóamannaafrétt.
Síðasta daginn voru tjöllin framan afréttargirðingarinn-
ar og Þjórsárdalurinn svo smöluð og safnið rekið fram í
byggð að Fossnesi. Safnið var fyrr á árum geymt á Haga-
flötum. Þangað kom fólk úr byggð til móts við fjallmenn
og vakti yfir safninu, en vegna mikils gleðskapar og jafn-
vel óreglu, sem þessu fylgdi og eftir því sem sagnir
herma, mun sýslumaður þess tíma hafa bannað samkont-
ur, sem yfirsetan á Hagaflötum var talin vera. Safnið hef-
ur nú um árabil verið geymt nóttina fyrir Skaftholtsréttir,
í Fossnesi.
110 Heima er bezt