Heima er bezt - 01.03.2003, Qupperneq 35
Guðmundur
Sœmundsson
Þarna er Súðin á fullum
dampi, lögð af stað í
Austurlandaferðina. •
Dagurinn er 27. september
1951. Yfir Rauðahafinu ríkir
yfirþyrmandi hiti. Dögum
saman hefur ekki einn einasti ský-
hnoðri sést bera við þennan daufbláa
himin. Miskunnarlaust sendir hita-
beltissólin brennandi geisla sína nið-
ur á þilfar og mannskap þessa ein-
manalega flutningaskips, sem siglir
með 6-8 sjómílna hraða suður logn-
slétt Rauðahafið. Á stjórnpalli skips-
ins, sem þó er varinn sólskýli, gerast
menn slappir í hitanum, að maður
minnist ekki á kyndarana, sem strita
við að moka kolum undir katlana í
iðrum skipsins. bví voru ráðnir fimm
þeldökkir kyndarar í Súes, sem taldir
voru vanir hitanum en fljótlega kom í
ljós að íslensku sjómennirnir reynd-
ust þeim erlendu síst lakari við kynd-
inguna.
betta skip kemur alla leið norðan
frá íslandi og er á leið til Austur-
landa fjær. Óhagganlegur stendur ís-
lenski hásetinn við stýishjólið. Hann
rennir augunum öðru hverju að átta-
vitanum og út yfir hafið. bað eru
hendur hans sem stjórna því hvaða
stefnu þetta skip siglir. Annars staöar
unt borð ríkir órofa kyrrð, utan vélar-
hljóðið, snúningur skrúfunnar og
ymur sjávarins við stálsúð skipsins,
meðan þeir á frívaktinni hafa hreiðr-
Skipverjar á Súðinni á leið til lands í björgunaf■
bátnum. I baksýn sést Súðin liggja við festar í
Calambo-höfn á Ceylon (Shri Lanka), 1951.