Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2003, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.03.2003, Blaðsíða 27
beisli, lyijaskrín, hattaöskjur og (erðakoffbrt. Þetta líktist meira inn- rásinni í Rússland eða herleiðingu eins og sagt er frá í Gamla testa- mentinu hjá Móse frá Egyptalandi eða Esekiel til Babylon, erillinn var svo mikill. Að morgni fyrsta dags voru allir að ganga af göflunum og þá var notalegt að hafa Jón Magnús- son með sína góðu nærveru. Hófaskellirnir á götum Reykjavík- ur þennan dag komu öllum í ferða- ham og góðhestarnir sem bændur sunnanlands og norðan höfðu lánað af þessu tilefni, voru ekki af verri endanum. Flestar sýslur landsins lögðu til 18 hesta hver, landssjóði að kostnaðarlausu, en einnig var fjöld- inn allur af leiguhestum. Af lista yfir íslenska alþingismenn, sem varðveist hefur, er svo að sjá að flestir þeirra hafi fengið tvo hesta til afnota. Númer 13 á listanum er Hannes Hafstein, 1. þingmaður Ey- firðinga, Tjarnargötu. Hann fékk bara einn hest enda lagði hann sjálfur til Ráðherra-Skjóna. Björn M. Olsen, 3. konungskjörinn þingmaður, Lækj- argötu 8, fékk 3 hesta. Tryggvi Gunnarsson 1. þingmaður Reykvík- inga fékk 2 hesta og sömuleiðis Þór- hallur Bjarnarson þingmaður Borg- firðinga síðar biskup yfir íslandi. Guðmundur Björnsson 2. þingmaður Reykvíkinga, Amtmannsstíg 1, fékk engan hest, enda hefur hann sjálfsagt verið með sína eigin hesta í ferðinni. í bréfi dagsettu 7. febrúar 1907 býður Daníel Daníelsson hinni hátt- virtu Heimboðsnefnd vagnhesta til kaups á kr. 160 stykkið. Hann segir í bréfinu að hann treysti sér ekki til að fara neðar, þar sem hann telji að verð á hestum á sumri komandi verði mjög hátt. Þetta var svo sannarlega uppgripstími fyrir hestaspekúlanta. Þar sem riðið var upp Hverfisgötu blakti danski fáninn við hún. Farið var upp hjá Rauðavatni og Geithálsi og síðan Hafravatnsveg í Djúpadal á Mosfellsheiði, en þar byrjar hinn eig- inlegi gamli Þingvallavegur. Svipu- smellir fylltu loftið og öllum mátti vera ljóst að þetta var enginn venju- legur reiðtúr. Á leiðinni bættust í hópinn bændur sem höfðu hlaupið Hannes Hafstein, þingmaður og ráðherra. Axel Tulinius, sýslumaður. frá búum sínum til að skoða kóng- inn. Þegar til kom gátu þeir ekki stillt sig um að slást í för á Þingvöll. Sum- ir voru ekki einir á ferð heldur með allt sitt hyski, konu og krakka. í Djúpadal var framreiddur hádeg- isverður. Eins og allir vita þá eru Danir fyrst í essinu sínu þegar matur er annars vegar. Þeir borða ekki ein- göngu til að lafa á fótunum. Matar- gerð er í þeirra augum listgrein og að skeggræða um mat er umræðuefni sem stendur jafnfætis heimspekitali á gangstéttarkaffihúsum stórborganna. Virkilega siðaður Dani getur rifjað upp matseðla áratugi aftur í tímann af jafn mikilli nákvæmni og veður- glöggur íslendingur lýsir skýjafari. Danir eru heimsmenn. Nema hvað í Djúpadal hafði Franz Hákansson, bakari og conditori, Austurstræti 17, látið senda 150 rún- stykki, 7 rúgbrauð og 12 fransk- brauð. Pagh veitingastjóri var stað- ráðinn í því, að hvað sem öðru liði, þá myndi Friðrik 8. Danakonungur ekki verða hungurmorða í ferðinni og þyrstur yrði hann ekki, enda sést í skjölum að Thomsens Magasin lét senda 4000 flöskur vestur að Rauða- mel. Þar var tappað ölkelduvatni á flöskumar. Þetta ölkelduvatn var haft til hressingar í heimsókn konungs. Að loknum málsverði þumlungað- ist hersingin áfram fyrir norðan Borgarhóla í áttina að Þrívörðum og sunnan við Vilborgarkeldu á Mos- fellsheiði, sem er forn áningarstaður. Þaðan var ekki langt í Ferðamanna- hom, en það heitir svo vegna þess að þar sést fýrst til langferðamanna að koma á Þingvöll. Svo lá leiðin um Kárastaðastíg og niður í Almannagjá. Þegar konungur reið niður gjána hrópaði fólkið, sem hafði raðað sér þar upp, nífalt húrra, ég endurtek nífalt, minna mátti ekki gagn gera. En hver var þessi konungur sem verið var að hrópa húrra fyrir? Frið- rik 8. var fæddur árið 1843 og dó árið 1912. Hann ríkti frá árinu 1906 til 1912. Faðir hans var Kristján 9. Þann stutta tíma sem Friðrik var við völd, ferðaðist hann mikið um ríki sitt og komst í nána snertingu við þjóð sína. Hann beitti sér m.a. fyrir bættum samskiptum við íslendinga. Árið 1869 gekk hann að eiga sænska prinsessu Louise að nafni. Og þjóðin, sem hann var að heim- sækja, hvernig var hún? Af því að maður er svolítið blindur á sitt eigið fólk þá gerði ég það að gamni mínu að fletta upp í Nordisk Kon- versasions Leksikon, 5. bindi, bls. 183. Þar stendur: „Islendingar tilheyra hinum hvíta kynstofni, flestir eru háir, ljósir yfir- litum og langhöfðar. Þeir eru með blá augu og grannvaxnir.“ Þetta fannst mér áhugaverð lesning, Heima er bezt 123

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.