Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2003, Qupperneq 34

Heima er bezt - 01.03.2003, Qupperneq 34
þau hús stóöu lítið eitt nær fjallinu. Skriöan stöðvaöist aö mestu viö aö rekast á húsin en sunnan þeirra fór hún tölu- vert lengra og þar voru miklar dræsur úr túngirðingunni, sem að sjálfsögöu brotnaði öll niður. Öllum, sem þekkja til á Ánastöðum, fannst meö ólík- indum hve þetta flóð féll langt niöur og eyöileggingar- máttur þess var mikill. Engum hefði komið til hugar að þetta gæti gerst. Ekki síst vegna þess aö engar sagnir eru um slíkt áöur og þessi miklu öskulög í nágrenni bæjarins sem benda til þess að bærinn hafi verið byggöur upp aft- ur og aftur á sama staö. Ef svona mikið flóö heföi áður falliö á bæinn heföi hann árciðanlcga verið færöur úr staö. Niöurundan Ánastaðabænum er dálítill hvammur í sjávarbakkana. Noröantil í hvamminum er bakkinn mjög brattur en þó vaxinn grasi upp á brún. Mikill snjóhcngja myndast oft efst í hvamminum þegar snjóar i norðaustan- átt. Þegar mikill snjór hefur safnast í bakkabrúnina springur hengjan stundum fram og verður þá dálítið snjó- flóð, sem oft fer fram í sjó. Fyrrihluta vetrarins 1948 til 1949, var farskólinn í hreppnum á Ánastöðum. Snemma í desember gerði svo norðan hríðarveður, sem mun hafa staðið í nokkra daga og setti þá niður töluverðan snjó. Eftir hádegi einn daginn birti svo snögglega upp og var þá krökkunum orðið mál á að komast út. Fóru þau að leika sér í snjónum sunnan við bæinn. Eftir nokkra stund leit svo einhver út og sá þá að krakkarnir voru horfnir. Datt mér þá í hug að þau hefðu farið niður að sjónum. Ég dreif mig þá í yfirhöfn og snar- aðist út. Sá ég þá að krakkamir komu neðan af bökkun- um og flýttu sér mikið. Flaug mér þá í hug að eitthvað hefði komið fyrir og greip með mér skóflu sem var í bæj- ardyrunum. Ég mætti svo krökkunum og sögðu þau að strákarnir hefðu farið að renna sér fram af hengjunni í hvamminum og hefði þá allur snjórinn sprungið fram og tveir lent í skriðunni. Þau sáu á höfuð og herðar á Gunn- laugi, en svo hét annar drengurinn, og tókst að ná honum upp en Steinar sáu þau hvergi. Ég flýtti mér svo niður eft- ir og fór að pjakka niður í snjóinn en það bar ekki árang- ur. Pabbi kom svo rétt strax og leist honum ekki á blik- una. Mikill snjór hafði lent fram í sjóinn svo hann var þykk- ur af krapi sem hafaldan hrærði stöðugt í. Okkur var strax ljóst að hefði drengurinn lent þar voru lífslíkur hans næstum engar. Við vorum enn dálitla stund að reyna að kanna skriðuna með skóflunum en sáum brátt að þær voru ekki hentug leitartæki. Ég hljóp þá út í Skipavík sem er um 100 metrum norðar. Þar var bátur í nausti og í honunt svo sem þriggja metra löng tréspíra. Ég flýtti mér nú sem mest ég mátti aftur á slysstaðinn. Þar var pabbi að moka út frá þeim stað sem Gunnlaugur hafði verið í skriðunni. Þar fór ég að leita með stönginni og hafði ég ekki stungið henni oft niður þegar ég fann eitthvað hart veröa fyrir. Hafði ég rekið stöngina í stígvél sem hann hafði á fótunum. Við flýttum okkur nú að grafa sem mest við máttum og þarna var drengurinn í fönninni og stóð næstum á höfði. Var hann tvo eða þrjá metra frá brúninni þar sem sjórinn var stöðugt aö brjóta framan úr skriðunni. Við fundum fljótt að drengurinn var lifandi en ákaflega dasaður og máttfarinn. Og eftir að við höfðum hrist hann dálítið til fór hann að anda nokkuð eðlilega. Svo bárum viö hann upp á bakkana sem var nokkuð erfitt í þessum mikla snjó og leiddum hann svo á milli okkar heim. Hann var svo háttaður ofan í rúm og hresstist furöu fljótt og daginn eftir virtist hann hafa náð sér að mestu. Þetta fór allt vel að lokum þó ekki liti vel út á tímabili. Þetta atvik hefur orðið mér mjög minnisstætt, enda eina skiptið á lífsleiðinni sem mér hefur auðnast að bjarga manni frá bráöum lífsháska. Þess skal líka getið að drengurinn, sem við feðgarnir björguðum úr flóðinu, var bróðir minn, Ingileifur Steinar. $3® 130 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.