Heima er bezt - 01.03.2003, Side 40
seld til Austurlanda, þar sem hún lá í
Colombo-höfn á Ceylon, hinni miklu
þjóðbraut austurs og vesturs. Með
þessari sölu er endanlega lokið all-
merkilegum kafla í samgöngumálum
Islendinga. Hér setjum við sem sagt
punkt yfir lokakaflann í sögu Súðar-
innar. Ýmsar hugleiðingar vakna
með manni við þessa fregn, því að
Súðin var einhvern veginn orðin svo
samgróin íslenskum strandferðum,
að maður á erfitt með að hugsa sér
hana við Indlandsstrendur, undir
miskunnarlausri hitabeltissólinni.
Súðin var góðvinur margra. I
vonskuveðrum hafði hún öslað sína
braut umhverfis landið, í blíðu og
stríðu, í svarta byl og særoki eða
glampandi stillum á lygnum ijörðum
austanlands eða vestan. I stað gamal-
kunnra, íslenskra sjómanna, príla þar
nú um alla stiga þeldökkir Asíu-
menn, og hver veit nema Súðin eigi
eftir að afla sér vinsælda og trausts
þar ekki síður en hér norður við Is-
haf.
Nokkur styrr stóð um Súðina fyrst
eftir að hún var keypt hingað til
lands, og oft var stormasamt um
hana í blöðum íyrri ára. Súðin var að
vísu gömul en mönnum fannst ein-
hvern veginn hún bera aldurinn
virðulega og hún virtist vinna á við
frekari viðkynningu. Svo fór um síð-
ir að mönnum varð Súðin hjartfólgið
fyrirbæri, enda þótt öllum hafi verið
ljóst að með nýjum tímum þyrfti nýj-
an farkost. Súðin gat ekki lengur
annað því hlutverki, sem henni var í
upphafi ætlað. Kvörn tím-
ans malar hljóðlega en örugglega og
miskunnarlaust. „Járnbraut smáhafn-
anna“ (en svo var Súðin oft kölluð)
mun ekki lengur verða til samgöngu-
bóta við vogskornar, klettóttar
strendur þessa lands, og aldrei fram-
ar mun heyrast hást hljóð í eimpípu
Súðarinnar í draugaheimi þokunnar á
Húnaflóa eða á Vopnafirði. Aldrei
framar leggst Súðin að bryggju á
Búðareyri eða Patreksfirði. Leið
hennar liggur nú um suðlægar og
mildari slóðir, en vafalaust mun
margur hugsa til þessa gamla skips
með vinsemd og hlýhug.
Sumir segja að skip hafi sál. Ætli
Súðin hafi ekki haft góða sál?“
Thorolf Smith fór ungur til starfa á
skipum Björgvinjarfélagsins norska.
Árin 1936-38 var hann um borð í
skemmtiferðaskipinu Stellu Polaris,
og sagði greinarhöfundi að hann
elskaði það skip. En líklega hefur
Thorolf haft dálæti á fleiri skipum,
eins og þankabrotin um Súðina í Vísi
frá árinu 1952, bera með sér.
Skipverjar Súðarinnar
áttu völ á ýmsum far-
kostum í Austurlöndum,
eins og sést á meðfylgj-
andi myndum, sem allar
eru frá ferðalagi Súðar-
innar.
Þó ofangreind mynd sé nokkur óskýr,
má sjá á henni hin frumstœðu
stýristœki Súðarinnar. Myndin er
tekin í 40° hita á Rauðahaji.
136 Heima er bezt