Heima er bezt - 02.01.2007, Síða 8
og tekið þátt í framrás nýrra tíma.
Ég fór í bamaskóla 9 ára. Þá var skóli í
hálfan mánuð en annan hálfan mánuð var ég
heima. Kennt var í Sólheimagerði og kenn-
ari sá mæti maður, Gísli Gottskálksson, sem
jafcframt var bóndi þar.
Það var um 40 - 50 mínútna gangur í skól-
ann og það þótti ekki umtalsvert að stauta
þetta í hvaða veðri sem var, auðvitað í fyrstu
með eldri systkinum.
Nesti hafði maður með sér, mjólk á flösku
og nokkrar brauðsneiðar, borið í ullarsokki.
Það var ergilegt ef maður datt á svellum á
leiðinni og braut mjólkurflöskuna, að þurfa
að stauta til baka eftir mjólk, en nær helm-
ingur leiðarinnar lá um holt og mýrar.
Skólinn byrjaði í október og var lokið fyrir
sumarmál, skólavist því ca. 9 - 11 vikur.
Okkur var sett fyrir að læra heima þann tíma
sem við vorum ekki í skóla.
Tveir burstabœir inni á smíðaverk-
stœði Arna. Geymsluhólf merkt
með stórum bókstöfum eru upp-
haflega úr sviðsmynd á Stöð 2.
vornætur í Skagafirði
Sem fýrr segir vorum við 7 systkinin og auð-
vitað látin taka þátt í öllum bústörfum svo
sem þurfa þótti. Einnig vorum við bræður
allnokkuð í vegavinnu er til féll.
Ég var t. d. „kúskur,“ teymdi hesta með
malarkerrum, og í annan tíma handmokaði
ég möl á bíla heilt sumar.
A þessum árum, milli 1930 og 1950, vor-
aði oftast þegar vorið átti að koma. Þannig
erþað í minningunni. Sauðgróður kominn
í úthaga um sumarmál. Þá var fénu beitt
seinnipart vetrar er fært var og gjaman sleppt
í fjallið upp úr sumarmálum.
Sauðburður hófst 18,- 20. mai og þá var
farið að líta eftir ánum.
Vomm við bræður til skiptis lungann úr
sólarhringnum að snúast við það. Við þekkt-
um hverja kind með nafni og vissum nokkuð
hvar þær héldu sig.
Sumar bám á sama stað í ijallinu ár eftir
ár. Þá lærði ég líka á ömefni til að geta stað-
sett kindur betur fyrir þann er næstur fór á
vakt. Lambær vom ekki reknar heim nema
eitthvað væri að. Reynt var að verja túnið
sem mest.
Það var einstök tilfinning að vera í „fjall-
inu“ milda vomótt, hlusta á fuglasönginn
er sólin kom upp, roðaði fyrst Mælifells-
hnjúkinn og vesturfjöllin, breiddi sig síðan
yfir héraðið. Sjá reykinn liðast upp frá bæj-
unum er húsmæðumar kveiktu upp í eldavél-
unum, þetta var löngu fyrir rafurmagn.
Svona liðu árin þar til ég fór 18 ára í Héraðs-
Arni við hliðina á smíðisgrip
sínum, burstabæ.
Karlakórinn Heimir á konsert, líklega í Lang-
holtskirkju.
Foreldrar Arna, hjónin á Uppsölum, Sig-
urlaug Jónasdóttir og Bjarni Halldórs-
son.
skólann að Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu
1949 og er þar í fjóra vetur. Þar vom þá þrír
vetur í bóknámi, sem nefndust yngri deild,
eldri deild og gagnfræðadeild. Verknám fór
ffam í svokallaðri smíðadeild og þar lauk þess-
ari skólagöngu minni veturinn 1952-53.
Ég átti góð ár á Laugum, kynntist mörgum góðum
8 Heima er bezt