Heima er bezt - 02.01.2007, Side 22
þeirra. Ef engin spil eru uppi, sem sam-
tals eru ellefu, né þrjú mannspil, má
gefa eitt spil ofan á spilið í miðjunni,
ef ekki rætist þá úr, hefur kapallinn
mistekist.
Colf kapall
Þessi kapall er góður fyrir þá, sem langar
til að hnekkja ákveðnum metum.
Hvert spil er níu holur (eða hendur)
og hvert spil, sem eftir er í borði, táknar
hve mörg högg hefur þurft við þá holu.
Lágmarkið („Bogey,,), sem miðað er
við í spilinu, er förutíu, og er erfitt að
komast niður fyrir það.
Fimm raðir með sjö spil í hverri röð
eru lagðar upp í loft á borðið. Afgangur
spilanna er hafður í hendinni.
Efsta spilinu í hendinni er flett upp
og hvert spil, sem er næst við það að
gildi, hvort heldur hærra eða lægra og í
hvaða lit sem er, má taka af hinum neðstu
sjö spilum. Ef áttu er t. d. flett upp, má
leggja á hana níu, síðan tíu, gosa, tíu
aftur eða drottningu o. s. frv.
Þegar kóngur er tekinn, stöðvast
röðin, drottningu má ekki leggja á
kóng. Avallt þegar röðin stöðvast, er
nýju spili flett upp og síðan haldið áfram
eins og áður.
Þegar öll spilin í hendinni eru búin,
eru talin spilin, sem eftir eru í borði og
þau tákna hve mörg högg þurft hefur
við fyrstu holuna.
Síðan eru spilin stokkuð og næsta hola
spiluð á sama hátt, þar til allar níu hol-
umar eru búnar, þá er lagt saman hve
mörg högg hefur þurft samanlagt.
Ef spil em eftir í hendinni, þegar allt
er búið úr borði, koma þau til frádrátt-
ar. Ef maður lýkur t. d. 3. holu og á
þá eftir fjögur spil í hendi, en hefúr
þurft ellefu til að ljúka tveim fyrstu
holunum, er útkoman úr þrem fyrstu
holunum því sjö.
Alexander mikli
Allur stokkurinn er lagður út. Lagt er
í seytján staði, þrjú spil í hvem stað.
Spilin snúa öll upp og eru lögð þannig
að neðri spilin standi út undan þeim,
sem ofar em, svo öll séu sýnileg. Spil-
ið, sem afgangs verður, er lagt eitt sér.
Aðeins efsta spilið af þessum þremur
má færa og aðeins eitt spil í einu. Þegar
ásarnir koma, leggur spilarinn þá fyrir
framan sig.
A ásana em spilin rakin eftir hækk-
andi gildi í sama lit, en á efsta spilið í
hverjum stokki í borðinu eftir lækkandi
gildi í sama lit.
Það er ráðlegt að reyna að ná út ásun-
um sem fyrst, síðan tvistunum o. s. frv.
Þegar kóngur er efstur í stokki, lokar
hann inni öll spilin fyrir neðan, nema
hægt sé að fá autt pláss til að leggja
kónginn í. Spilinu er haldið áfram þar
til ekki er hægt að ná fleiri spilum til
að leggja ofan á ásana.
En Alexander lagði ekki undir sig
heiminn í færri en þremur orrustum
og eins fer hér. Spilarinn fær annað og
þriðja tækifærið; hann stokkar spilin og
leggur þau aftur öll, sem ekki er búið
að rekja ofan á ásana.
Spilið er unnið þegar allir litimir hafa
verið raktir. Ef það tekst ekki í þess-
um þrem atrennum, er það tapað, en
spilarinn getur sem bezt haldið áfram
að stokka og leggja spilin á ný til að
sjá, hve margar orrustur hann þurfti
að vinna.
Klondike
Þetta er sennilega þekktasti kapall,
sem til er.
Þegar búið er að stokka er lagt þann-
ig í borð:
Sjö spil eru lögð í fyrstu röðina. Fyrsta
spilið - lengst til vinstri - snýr upp,
hin á grúfu. Síðan eru lögð sex spil
ofan á, það fyrsta snýr upp og er lagt
á fyrsta spil á grúfu vinstra megin af
þeim neðri, hin eru lögð á grúfu. Síðan
koma á sama hátt 5,4, 3, 2 og 1 spil. í
borði em því 28 spil í hverjum stokki
frá vinstri til hægri, 1, 2, 3, 4, 5, 6 og
7; efsta spilið snýr upp á öllum stöð-
unum. Stokkinn, sem afgangs er, hefur
spilarinn í hendinni.
Asamir eru lagðir út um leið og þeir
nást. A spilin, sem upp snúa, er lagt
eftir lækkandi gildi og til skiptis rautt
spil og svart. í auð sæti, sem myndast
í röðinni, má aðeins láta kóngana, eða
spilaröð með kóng neðstan. Kóngana
má taka bæði úr hinum spilahlöðunum
og stokknum, þegar honum er flett.
Ef eitt spil af spilaröð á að færast í
annan hlaða, verður að færa þau öll.
Sumir hafa þetta að vísu ekki þannig,
heldur færa hvaða hluta af spilaröðinni
sem er, ef neðsta spilið af þeim, sem
flutt em til, er í öðrum lit og einum
lægra en spilið, sem það er lagt á. Þegar
búið er að skipa spilunum, sem uppi
em, eins og hægt er, er stokknum flett
upp, einu spili í senn, og þau þá ann-
aðhvort rakin ofan á ásana eða lögð
við spilin á borðinu. Ef ekki er neinn
staður fyrir spil em þau lögð í hlaða,
efsta spilið af hlaðanum má ávallt taka,
og sé það gert, þá næsta spil þar fyrir
neðan o. s. frv. Þegar búið er að færa
einu sinni gegnum stokkinn, er spilið
búið. Ef spilað er um eitthvað, borgar
spilarinn venjulega 52 einingar í borð
fyrir fram. Hann fær 5 til baka fyrir
hvert spil, sem hann kemur út (ofan á
ásana). Ef kapallinn gengur upp, fær
spilarinn framlag sitt 5-falt.
Kínverski múrinn
Þessi kapall gengur ekki oft upp og
hann krefst töluverðrar umhugsunar og
athygli, ef nota á öll tækifæri á besta
hátt. Fyrst em gefin sex spil í röð á
grúfu. Þá sex spil þar fyrir neðan upp
í loft, þá önnur röð á grúfu o. s. frv.,
alls sex raðir, þrjár á grúfu og þrjár upp.
Sextán spilunum, sem af ganga, vara-
sjóð, er raðað upp í loft til hliðar við
hin. Sex spilunum í neðstu röðinni má
raða hverju ofan á annað, þannig að þau
fari lækkandi til hægri, og rautt og svart
séu til skiptis, og spil úr varasjóðnum
má nota á sama hátt. Asar em teknir úr
neðstu röð eða varaspilum og lagðir út,
síðan þegar tvistar nást em þeir látnir
ofan á ás sama litar o. s. frv.
Þegar spil, sem snýr upp, er fært til,
er spilinu, sem er á grúfu næst fyrir
ofan, flett upp. Ef autt pláss verður í
efstu röð, má flytja þangað hvaða spil
eða spilaröð, sem vera skal.
Hér er dæmi, sem sýnir hvemig spilin
em lögð, x táknar spil á grúfu:
x x x x x x
10H 4L 7S 2T ÁH 9T
X X X X x x
2H 5L 8S DS 5T 9L
X X X X X X
ÁL KS 10T 3L 9S 4A
Laufásinn er tekinn úr borði og tíg-
ulásinn úr varaspilunum og þeir lagðir
fyrir ofan hin spilin eða hægra megin
KH DT AT 21
KL 5H DH GS
GL 10S 9H 81
7T 7H 6L DL
Varasjóöur
22 Heima er bezt