Heima er bezt


Heima er bezt - 02.01.2007, Qupperneq 42

Heima er bezt - 02.01.2007, Qupperneq 42
Cæsar gekk inn í sal öldungaráðsins og tók sér sæti á gyllt- um embættisstól við hliðina á styttu Pompeiusar. Jafnskjótt söfnuðust samsærismennimir umhverfis hann og duldi hver þeirra rýting undir skikkjunni. Einn þessara mann kraup fyrir honum og rétti fram bænaskjal um leið og hann greip í skikkjufald hans. Var þetta umsamið merki um að þá skyldu samsærismenn heijast handa. Og í sömu andrá rak einn þeirra, Casca að nafni, rýting í bak honum. „Þetta er ofbeldi,“ mælti Cæsar og greip um leið um hönd Casca. En meira ráðrúm fékk hann ekki, því að þá réðust morðingjamir að honum allir í senn og stungu hann ákaft með rýtingunum. I hópi morðingjanna var Brútus, sem Cæsar hafði reynst sérstakur velgerðamaður. Þegar hann sá þennan skjólstæð- ing sinn þama á hann að hafa hrópað: „Og þú líka, barnið mitt Brútus.“ Síðan sveipaði hann skikkjunni að höfði sér, féll á gólfíð við fótstallinn á styttu Pompeiusar, þar sem líf hans Ijaraði út. Þannig lauk ævi þessa merkilega manns. Hann hafði byrjað feril sinn sem eyðsluseggur og glaumgosi, en síðar unnið sér sess sem einn snjallasti herforingi og gagnmerkasti stjóm- málaskörungur sem uppi hefur verið. En þótt Cæsari væri rutt úr vegi, þá rættist ekki draumur lýðveldissinna um að endurreisa fyrra þjóðskipulag. Morðingjamir höfðu gert ráð fyrir að verða hylltir sem þjóðhetjur, en þær vonir brugð- ust gersamlega. Brátt hófst ný borgarastyrjöld sem sópaði draumórum þeirra sem og þeim sjálfum út í ystu myrkur. En á þeim grunni sem Cæsar hafði lagt reis nokkmm ámm síðar rómverska keisaradæmið með Octavíanusi (Agústus keisara), en hann var systurdóttursonur og erfíngi Cæsars og af þeim atburðum er mikil saga. © MarkChurms.com 2004. All Rights Reserved BOKAKYNNING Aldrei aftur meðvirkni METSÖLIBÓK # 1 VÍÐA UM HEIM Aldrei aftur meðvirkni Að hœtm að stjórna öðrum og bera umhyggjufyrir sjálfum sér MELODY BEATTIE eftir Melody Beattie I þessari bók sinni fjallar Melody Beattie um það hvernig tilfinningasambönd og tengsl taka á sig skrumskælda mynd (hvernig við „kóum“ með fólki) í skugga fíknar. En í raun þarf ekki fíknimyndun til að sambönd brenglist og taki á sig óbærilega skrípamynd þess sem þeim var ætlað að vera. Þetta ferli á ekki bara við þá sem eru í samböndum við fíknisjúklinga af einhverri gerð, heldur meðvirknin lætt öngum sínum inn í nánast hvaða samband sem er. Einkenni meðvirkni eru mörg og meðal þeirra eru afneitun, feluleikir, kvíði, skortur á einlægni, sársauki, vonbrigði, ótti vanmetakennd, magnleysi... Listinn er afar langur, en því miður sannur. Það hafa fjölmargir einstaklingar reynt í eigin lífi. Aldrei aftur meðvirkni tekur á hispurslausan hátt á flestum þeirra þátta sem skaða sambönd okkar við ástvini og aðra sem eru okkur kærir. í bókinni er að finna ýmis einföld próf sem gera lesandanum kleift að átta sig á eigin meðvirkni og bregðast við henni á raunsæjan máta. Þá er einnig bent á sjálfshjálparhópa sem starfa á fjölmörgum sviðum og grein gerð fyrir starfsemi þeirra. Áfengisfíkn og eiturlyfja, ofát, spilafíkn - lausnir og leiðir fyrir vandamenn og ástvini. Allt er þetta að finna í Aldrei aftur meðvirkni - og fjöldann allan af góðum, handhægum leiðbeiningum fyrir alla sem láta sig einlæg og heiðarleg samskipti varða. Aldrei aftur meðvirkni - er skrifuð í Ijósi reynslu og menntunar á því sviði sem hún fjallar um, en höfundurinn er menntaður félagsráðgjafi með mikla persónulega og starfslega reynslu af meðvirkni í öllum myndum. Útgefandi: Sala og Dreifing, sími 892 3334 42 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.