Heima er bezt


Heima er bezt - 02.01.2007, Síða 43

Heima er bezt - 02.01.2007, Síða 43
Haukur er einn. Hann lítur á úrið sitt. Það er að vísu kom- inn háttatími, en hann getur ekki farið að sofa strax; fyrsta kvöldið hans á Sólvangi er svo brosfagurt og heillandi. Hann gengur út á svalirnar. Hinn sætljúfi blómailmur neðan úr garðinum blandast kristalstæru kvöldloftinu, og vorsólin hjúpar sveitina hinstu geislum hins kveðjandi dags. Ungi læknirinn horfir hugfanginn út í fegurðina og veitir enga eftirtekt læknisdótturinni, sem kemur á hjóli heinr að hús- inu. Agnes sér Hauk. Hún stígur af hjólinu og leiðir það hljóðlega heim að hliðinu á blómagarðinum. Þar nemur hún staðar. Augu hennar hvíla á lækninum. Hann er hár og grannur, fallega vaxinn, svarthærður, brúneygur, fölur í andliti. Ennið er hátt og nefíð beint, aðeins hærra að framan, varimar þykkar, munnurinn nettur. Svipurinn bjartur og góðlegur. Læknirinn er ungur, vel menntaður og ættaður úr Reykjavík. Hann hlýtur að hafa gaman af að skemmta sér. Bros líður yfir andlit hinnar ungu stúlku. Hún hlakkar til að kynnast honum. Agnes snýr sér frá hliðinu og ætlar að ganga burt án þess að láta hann verða sín varann. En Haukur veitir henni eftirtekt og býður henni gott kvöld. Unga læknisdóttirin lítur við og stendur kyrr. - Gott kvöld. - Mikil vorfegurð er hér á Sólvangi, staðurinn ber það nafn með réttu, segir Haukur læknir. - Já, hér eru vorkvöldin rómantísk. - Eruð þér ekki fæddar og uppaldar hér? - Jú, en ég hef verið í Reykjavík á hverjum vetri síðan ég var um fermingu. - Hvemig líkar yður að vera þar? - Eg gæti ekki hugsað mér að vera annarsstaðar, nema aðeins yfir blásumarið. - Svo þér eruð svona hrifnar af borgarlífmu. - Þar em möguleikarnir til að njóta lífsins. - Já, að vísu hefur borgarlifið upp á margt ákjósanlegt að bjóða, en ég álít að dýpstu fegurð og fyllsta samræmi lífsins sé að finna í gróandi sveit. Þar held ég, að maðurinn komist í nánast samband við tign og mikilleik hins skap- andi máttar. Það getur vel verið, sveitin er ágætur hvíldarstaður yfir sumarið. Haukur brosir. - Þetta er skoðun yðar, sveitastúlkunnar? - Já, ef sveitastúlku skyldi kalla. - Er mikið félags og skemmtanalíf héma? - A sumrin eru oft dansleikir. Ungmennafélagið á stórt og rúmgott samkomuhús, eftir því sem um er að gera í sveit. - Em sveitaböllin ekki hárómantísk? Haukur brosir á ný. - Hafíð þér aldrei komið á ball í sveit? - Nei aldrei. - Eg ætla ekki að svara spumingu yðar nú, Haukur læknir. Sumarið gefur yður nóg tækifæri til að kynnast og njóta róm- antíkur sveitalífsins. Bros hennar leiftrar bjart og heillandi eins og vorkvöldið, og ungi læknirinn brosir í móti. Sólin hefur boðið sveitinni góða nótt með hlýjum geisla- kossi. Blómin hneigja höfuð sín. Unga læknisdóttirin býður Hauki góða nótt og hverfúr inn í húsið. Hann stendur kyrr og horfir á eftir henni. Hún er ung og falleg, en... Læknirinn gengur hljóðlega inn í herbergi sitt og leggst til hvíldar. Nóttin ríkir. Nýr dagur rís. Unga læknisdóttirin losar svefninn við hlýja snertingu hins fyrsta morgungeisla, sem fellur yfír frítt andlit hennar á hvítum svæflinum, og glaðvaknar um leið. Nýr þróttur streymir um endumærðan líkama hennar eftir djúpa draumværa hvíld næturinnar. Hún liggur kyrr á legubekknum og nýtur um stund hinnar helgu morgunkyrrðar. Mynd unga læknisins á svölunum frá síðastliðnu kvöldi líður fram í vitund hennar. Hann birtist henni þar eins og prins í fögm, heillandi ævintýri, umvafínn töfraljóma vorkvölds- ins, og hún varð djúpt snortin af glæsileik hans. Dásamleg tilhögun örlaganna að senda hann hingað í sumar. Agnes veit það vel, að hún býr yfír þeim kvenlegu töfmrn, sem enginn piltur hefur getað staðist til þessa, af öllum þeim hópi, sem hún hefur kynnst við, hún hefur reyndar aldrei beitt þeim töfrum í neinni alvöru fram á þennan dag, aðeins til að njóta líðandi stundar, en nú hefur örlagagyðjan svo óvænt ofið nýjum þræði inn í líf hennar. Hún varð í fullri alvöru hrifín af Hauki lækni við fyrstu kynni þeirra, og sigurvissa hennar er líka örugg, hún skal vinna ástir unga læknisins, í sumar. Heima er bezt 43

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.