Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1953, Blaðsíða 44
Almannatryggingar
A. Yfirlit.
1. Fjöldi hinna tryggðu.
Allir íslenzkir ríkisborgarar, sem dveljast hér á landi, eru tryggðir samkvæmt
almannatryggingalögunum frá 1946. Tryggingastofnunin hefur ekki vitneskju um
fjölda þeirra, sem almannatryggingar ná þannig til, en í töflu 1 er yfirlit um fjölda
landsmanna samkvæmt manntali í árslok 1946—1953. Skipting í aldursflokka er
gerð á þann hátt, að fjöldi barna og gamalmenna er reiknaður á grundvelli aðal-
manntalsins 1950, og er stuðzt við fjölda fæddra barna og dánarlíkur, en ekki tekið
tillit til flutninga til landsins eða frá því. Fjöldi íbua á aldrinum 16—66 ára er
síðan fundinn sem afgangsstærð. Gera má ráð fyrir, að tölur þessar séu nærri réttu
lagi, og þær sýna ljóslega þróunina á þessu tímabili.
Skipting sú í aldursflokka, sem hér er gerð, er í samræmi við ákvæði laganna,
en samkvæmt þeim er barnalífeyrir og fjölskyldubætur greidd, þar til er barn verður
16 ára. Réttur til ellilífeyris hefst við 67 ára aldur, en gjaldskylt til almannatrygg-
inga er fólk á aldrinum 16—66 ára.
í árslok 1953 voru börn á aldrinum 0—15 ára 33.6% af íbúum, en 31.5% 1946,
og hafði þeim fjölgað um 22.6% á þessum 7 árum. Fólk á aldrinum 16—66 ára
var 60.0% íbúa 1953, en 61.8% 1946, og fjölgun nam 11.4%. Fólk 67 ára og eldra
var 6.4% íbúa 1953, en 6.7% 1946, og nam fjölgun 10.2%. Næstu árin eftir 1953
færast fámennir árgangar upp í flokk fólks á starfsaldri, og verður því að gera ráð
fyrir lilutfallslega minnstri fjölgun fólks á aldrinum 16—66 ára, en örri fjölgun
barna 0—15 ára á næstu árum.
Tafla 1. íbúar á íslandi 1946—1953 samkvœmt útreikningi studdum við manntal.
íbúar i árslok samkvæmt manntali1
0—15 óra 16—66 ára 67 óra og eldri Alls
Ár Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi %
1946 41 835 31,5 82 059 61,8 8 856 6,7 132 750 100,0
1947 42 779 31,5 84 196 61,9 8 960 6,6 135 935 100,0
1948 43 926 31,7 85 584 61,8 8 992 6,5 138 502 100,0
1949 45 275 32,1 86 736 61,5 9 031 6,4 141 042 100,0
1950 46 757 32,5 88 103 61,2 9 101 6,3 143 961 100,0
1951 48 204 32,9 88 985 60,7 9 351 6,4 146 540 100,0
1952 49 477 33,2 89 881 60,3 9 580 6,4 148 938 99,9
1953 51 296 33,6 91 450 60,0 9 760 6,4 152 506 100,0
1) Skv. aðalmanntali 1950, skv. spjaldskrá 1953, en hin órin skv. órsmanntali.