Heimili og skóli - 01.08.1961, Qupperneq 10

Heimili og skóli - 01.08.1961, Qupperneq 10
54 HEIMILI OG SKÓLI háttur hér að raða í bekki að talsverðu leyti eftir leikni í reikningi og þó einkum lestri, strax fyrstu skólaárin. Nú er það vitað má'l, að lestrarkunn- átta við upphaf skólagöngu og raunar fyrstu skólaárin, er alls ekki einhliða háð almennri greind og segir ekki nema á mjög ótryggan hátt til um síð- ari námsárangur barnsins. Hér kemur þó annað til og miklu alvarlegra. Notkun hraðaprófa í lestri með þeim hætti, sem hér tíðkast, eyk- ur vafalaust hættuna á lestrarörðug- leikum, eru beinlínis líkleg til að skapa þá hjá börnum, sem standa tæpt með þroska. í»ótt ég geti ekki bein- línis sannað þessa staðhæfingu, hníga að henni ýmsar líkur, einkum, að því er varðar drengi. Hefi ég áður vikið að þessu hér í ritinu. Ástæðan til þess, að lestrarprófin sérstaklega 1. og 2. skólaár, eru svo viðsjárverð, liggur í augum uppi. Án tillits til aðferðar skiptir það höfuð- máli, að traustur, öruggur grundvöll- ur sé lagður að lestrarhæfni barnsins, undirstöðuatriði æfð vel, framburður bættur og orðaskilningur aukinn. Lestrarhraðapróf vinna fremur gegn tilraunum í þessa átt, stilla hugi allra aðila, kennara, foreldra og barnanna sjálfra í leshraða, tvímælalaust til tjóns fyrir nokkurn hluta barnanna, en til lítils eða einskis ávinnings fyrir þorra þeirra. Því er haldið fram, að kennarar, foreldrar og nemendur þurfi að vita jafnt og þétt, hvernig miðar. Nokkuð er hæft í þessu. En á fyrsta ári lestrar- náms tel ég, að kennari verði, hvað mikinn hluta barnanna snertir, að meta framför þeirra á annan mæli- kvarða en hraðapróf. Tel ég, að kenn- ari sé nokkuð jafnnær um lestrarfram- för nemanda, þótt hann fái 1.8 í stað l. 5 fyrir tveim mánuðum, ef ekki kem- ur önnur vitneskja til. Því er haldið fram, að prófin styrki samband heimilis og skóla og megi sízt úr því draga. Sammála er ég um það, að stórefla þurfi samband kenn- ara við foreldra, en ekki held ég, að núverandi próffargan styrki það sam- band. Þvert á móti má telja líklegt, að prófin skapi spennu og kvíða hjá þeim hluta barnanna, sem standa höll- um fæti við lestrarnámið. Sama má segja um kennarann og foreldrana. Þeir verða oftast óánægðir og kvíðnir líka. Ef ti'l vill kenna þessir aðilar hvor öðrum um hve illa gengur, án þess þó að fá sig til að ræða saman. Jafnvel þótt saman sé rætt, er grund- völlurinn óheppilegur. Hinar köldu tölur fæla frá sér. Líklegt má telja, að stutt orðsending til foreldra um fram- farir barnsins væri mun líklegri til að skapa manneskjuleg og persónu'leg samskipti kennara og foreldra og drægi úr þeirri hættu, að barnið lenti á milli steins og sleggju, liggi undir ávítum og ásökunum aðila, sem tor- tryggja hvorir aðra og láta áhyggjur sínar óbeint bitna á barninu. Loks er talað um að próf, jafnvel á fyrstu árunum, séu nauðsynleg til að skapa börnunum markmið, vekja metnað þeirra og kapp. Víst þarf að glæða starfslöngun og eðilegan metnað barnsins. En á fyrstu skólaárunum a. m. k. tel ég þetta betur gert með öðr- um hætti en prófum. Heilbrigðasta leiðin, hvað snertir lestrarnámið, er að vekja áhuga barnsins á að geta lesið

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.