Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 18

Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 18
62 HEIMILI OG SKÓLI þegn, starffús og starfsglaður, góður stjórnari og félagi í senn. Og það er hverju orði sannara, að Barnaskóli Akureyrar á honum margt að þakka, og raunar bærinn í heild. Svo mjög hefur hann komið þar við sögu. Og enn mun hann eiga drjúgan þátt í heilsusamlegu uppeldi æskunn- ar og Ijá mörgu góðu máli þar sína traustu og hlýju hönd. Færi ég honum einlæga þökk fyrir frábært starf og ágæta samvinnu frá skólastjóraárum mínum á Akureyri, og óska honum heilla og heiðurs á komandi tíð. Ágætri konu hans og heimili öllu, sendi ég beztu kveðjur. JÓNAS JÓNSSON frá Brekknakoti sextugur! Því á ég bágt með að trúa, enda kom það mér á óvart. Mér finnst hann enn ungur maður. Og raunar er hann það, þótt fallega, dökka hárið hans hafi skipt um fit. Því að, — „fögur sál er ávallt ung undir silfurhærum.“ Og víst mun sú fegurð hin eina óforgengilega, þegar öll kurlin eru til grafar komin. Jónas Jónsson frá Brekknakoti er fæddur þar 1. júní 1901, og ólst þar upp við jarðhita Reykjahverfis, hjartayl góðra for-eldra og vaknandi menningarþrá nýrrar aldar. Hófst skólaganga hans í átthögunum og síð- an framhaldið í skólum utanlands og innan. Sótti hann einkum lýðháskóla og fimleikaskóla meðal Svía og drakk í sig hið heilbrigða lífsviðhorf slíkra úrvalsstofnana. Og heim kom hann hlaðinn áhug- ans eldi og fórnfúsri orku, til þess að 'haf-a holl áhrif á uppvaxandi æsku ættlands síns. Hann hefur alls staðar, þar sem hann hefur slegið tjöldum sínum, verið öflugur hvatamaaður að drengilegu starfi, stutt félagslega menningarviðleitni, verið í farar- broddi ungra manna á sviði íþrótta og hollra lifnaðarhátta, eflt söngmennt með þátttöku í söngsveitum, og alls staðar heill og höllur hverju góðu mál- efni. Og heima hjá sér kann hann svo að grípa til fiðlunnar eða orgelsins, sér og öðrum til skemmtunar. Jónas frá Brekknakoti lauk kenn- araprófi tæplega fertugur að aldri. Þá hafði hann kennt langa stund við vax- andi hylli og traust. Hann er lí-ka kennari með afbrigðum, — prýðilega greindur og vel fróður og lesinn, og o O O 7 O hefur frábært lag á því, að vekja for- vitni og seðja hana, án þess að mikið gangi á. Og þáttur uppeldisins er jafnan sterkur í öllu kennslustarfi Jónasar. Hann er hinn lífsholli fræð- ari, sem horfir til himins, siglir báti sínum út úr skerjaklungri villu og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.