Heimili og skóli - 01.08.1961, Síða 21

Heimili og skóli - 01.08.1961, Síða 21
HEIMILI OG SKÓLI 65 verri en nokkur ilánardrottinn, því að hann sendir fyrst gjöf, sem bann grobbar af, en sendir síðan reikning á eftir.“ Það er hægt að gefa á marg- víslega óskynsamlegan hátt. Menn eiga að gefa af gnægð sinni, en ekki af ör- byrgð. Og það er ekki út í bláinn sagt, að tala um að menn gefi með annarri hendinni, en taki það svo aftur með hinni. En það gerum við hverju sinni, þegar látið er í veðri vaka að þetta eigi viðtakandi nú eiginlega ekki skilið, og látum þá kröfu fylgja með, að hann eða hún verði nú að vera þæg og góð í staðinn. Hann megi nú ekki gera þetta eða hitt o. s. frv. Já, jafnvel kraf- an um þakklæti getur orðið til þess, að ganga af þakklætinu dauðu. Að gefa og h'ljóta þakklæti — það eru eng- in verzlunarviðskipti. Það drepur alla þakklætiskennd og gleði, ef gjöfin hefur verið þvinguð fram. Allar gjafir, sem bera keim af því, að börnin hafi beðið um þær eða krafizt þeirra, eru beint skaðlegar fyr- ir heilbrigða þróun þakklætistilfinn- ingarinnar. Þá skyldum við heldur aldrei, er við gefum börnum okkar -eða öðrum gjaf- ir, láta í það skína á einn eða annan hátt, að raunar hefðum við ekki ráð á að gefa þessa gjöf. Ef við gefum góða gjöf, höfum við alltaf ráð á því, hversu miklu, sem við kunnum að fórna. En ef við gefum dýrmæta gjöf, sem okkur finnst í raun og veru við ekki hafa ráð á, höfum við annaðhvort gert okkur sek um heimskulegan verknað, eða að minnsta kosti sýnt viðtakanda ónær- gætni. Með öðrum orðum: Þegar pen- ingasjónarmið tekur að leika þarna sérstakt hlutverk, er það ætíð merki þess, að við gefum af fátækt okkar, hversu auðug sem við erum. AHt of oft gefum við gjafir með skilyrði: Heimtum ævarandi þakklæti, væntum aMtaf áhuga fyrir gjöfinni, verðum óánægð ef hún vekur ekki þá geði, sem við væntum, skömmumst ef gjöfin skemmist eða týnist, nöldrum, ef gjöfin er ekki notuð eins og við ætluðumst til, og svo mætti lengi telja. Allt verður þetta til þess, að ganga af þeim spírum dauðum, sem á sínum tíma gátu orðið að heilbrigðri þakk- lætiskennd. Margir menn gefa með ólund og án þess að hafa nokkra ánægju af því. Slíkir menn gefa venjulega gjafir, sem viðtakandi kærir sig álls ekki um, en þakklætis er þó krafizt af þeim — það vantaði nú ekki annað! Dekur og kjass er líka af iMum upp- runa. Ef foreldrar ofhlaða börn sín með gjöfum, verða aMar gjafir lítils virði í augum þeirra, og þær eru taldar sjálfsagðar og ekkert þakkarverðar. Engar gjafir verða þá góðar gjafir. Innri ósk verður meira virði, ef henni er gefinn tími til að bíða dálítið, þroskast og gróa. Hún verður að fá tíma til að verða að verulegri ósk. Til þess að geta glaðzt einlæglega yfir ein- hverju, þarf maður að hafa hlakkað til þess um ilengri eða skemmri tíma. Ræktun þakklætistilfinningar er ekki eitthvað, sem hægt er að setja á sinn stað einhverntima á seinna ald- ursskeiði. þegar henta þykir. Þama verðum við, eins og á öðrum sviðum uppeldisins, að byrja snemma — byrja á ungbarninu. Vitanlega verður að skipta um uppeldisform, eftir því sem

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.