Heimili og skóli - 01.08.1961, Síða 31
HEIMILI OG SKÓLI
75
með sína peningaveltu og engum þótti
ástæða til að spara.
I hörmungum síðustu stríðsáranna
og síðan eftir stríðið, gekkst Barna-
skóli Akureyrar fyrir verulegri fjár-
söfnun til barna á Norðurlöndum.
Munu þá alls hafa safnazt um 50 þús.
kr. í peningum og geysilega mikið af
fatnaði. Þetta var allt sent til Noregs,
Finnlands og Danmerkur og var upp-
haf mikilla bréfaskipta og vináttu
milli barna í þessum löndum og barna
á Akureyri.
Þá má geta þess, að snemma á þess-
um árum voru teknar upp fastar morg-
unbænir í skólanum alla mánudaga.
Þá var unnið skipulega að því á
þessum árum að treysta og auka sam-
vinnuna milli heimilanna og skólans
og fleiri og færri foreldrafundir haldn-
ir á hverju ári. Einnig gefið út lítið
blað við og við, sem nefndist Boðber-
inn.
Haustið 1936 er gerð sú breyting á
fræðslulögunum að skólaskylda er
færð niður í 7 ár. Þetta veldur veru-
legri fjölgun í skólanum og eru skóla-
börn þá orðin 542. Árið 1946 verður
aftur sú breyting á sömu lögum, að
þá er skólaskyldan lengd um 1 ár. Og
tveir efstu bekkirnir færðir á ffagn-
fræðaskólastigið.
Þegar Snorri Sigfússon hverfur frá
skólanum haustið 1947, hafði hann áð-
ur undirbúið viðbyggingu við skól-
ann, sem svo var tekin í notkun haust-
ið 1949, en á þessum árum var skólinn
að springa af þrengslum. í hinni nýju
byggingu voru 4 stórar kennslustofur
og á neðstu hæð fékkst gott húsnæði
fyrir heilsugæzluna, tannlækningar,
ljósböð og stofa fyrir skólalækni og
hjúkrunarkonu. Laust eftir 1930 var
ráðin skólahjúkrunarkona. í fyrstu var
skólinn þar í samvinnu við Rauða-
krossdeildina hér, en litlu síðar var
ráðin föst hjúkrunarkona að skólan-
um.
Þegar hin nýja bygging var tilbúin,
bætti hún úr húsnæðisvandanum í eitt
eða tvö ár, en þá urðu sömu eða enn
meiri vandræði og þurfti að leigja hús
næði á mörgum stöðum utan skólans.
Haustið 1947 hverfur Snorri Sigfús-
Skrúðganga skóla-
barna vorið 1961.
Lúðrasveit drengja
gengur á undan.