Heimili og skóli - 01.08.1961, Side 33

Heimili og skóli - 01.08.1961, Side 33
HEIMILI OG SKÓLI 77 ingarsjóður Unu Hjaltadóttur, sem verðlaunar nokkur börn í 6. bekk fyrir prúðmennsku og háttvísi á ári hverju. Laugardaginn 13. maí hafði skólinn boð inni í hátíðasal skólans fyrir kenn- ara, bæjarráð, fræðsluráð og fleiri vini og velunnara skólans. iÞar rakti skóla- stjóri sögu stofnunarinnar í stórum dráttum. Skólakórinn söng og Lúðra- sveit drengja lék. Ræður fluttu: Fræðslumálastjóri, Snorri Sigfússon, fyrrv. námsstjóri, Stefán Jónsson, námsstjóri, Magnús E. Guðjónsson, bæjarstjóri, Brynjólfur Sveinsson, for- maður fræðsluráðs, Þórarinn Björns- son, skólameistari, Jóhann Frímann, skólastjóri, Eiríkur Sigurðsson, skóla- stjóri, séra Pétur Sigurgeirsson, séra Birgir Snæbjörnsson, Magnús Péturs- son, kennari og Ólafur Magnússon, sundkennari. Um 100 manns sóttu háfið. Nú á 90 ára afmæli skólans eru 766 nemendur og 23 fastráðnir kennarar. Til gamans Svo árum skiptir hef ég reynt að gera þeim blaðamönnum erfitt fyrir, sem hafa viljað eiga viðtöl við mig. Einhverju sinni er ég var á fyrirlestraferð bar svo við, að ungur sláni, sem þóttist vera blaðamaður, drap á dyr á hótelherbergi mínu. Eg var búinn að ákveða, að henda stólnum mínum í hausinn á hon- um, en áður en ég vissi af, var hann seztur á hann. Eg ákvað þá heldur en ekki neitt að stríða honum dálítið. Svo byrjaði hann: „Eigið þér systkini, herra Twain?“ „Æ-já. Það var nú það. Já, þér spyrjið um systkini. Eg átti bróður, sem hét William. Við nefndum hann alltaf Bill. Vesalings, vesalings Bill.“ „Hvað eigið þér við? Er hann dáinn?“ „Það veit, sannast að segja, enginn. Það hefur alltaf verið óráðandi leyndardómur." „Þé reigið þá við, að hann hafi horfið?“ „Ja, það má gjarnan komast svo að orði. Við grófum hann.“ „Grófuð hann? Án þess að vita hvort hanti var látinn?" „O-nei-nei. — Hann var dáinn. En skiljið þér — við vorum tvíburar — hann og ég. Við vorum baðaðir í sama baðkerinu, þegar við vorum nokkurra vikna gamlir. Annar okkar drukknaði, en við vitum ekki hvor þeirra það var. Sumir halda því fram, að það hafi verið Bill, en aðrir, að það hafi verið ég.“ „Og hvað haldið þér sjálfur?" „Eg vildi gefa aleigu mína til að fá að vita það. Þessi hræðilegi leyndardómur hefur hvílt eins og skuggi yfir öllu mínu lífi. En nú skal ég segja yður leyndarmál, sem ég hef ekki trúað nokkrum öðrum fyrir: Annar hafði sem sé glöggt einkenni. Hann hafði stóran fæðing- arblett á vinstri hönd — og það var ég. — Og það var þetta barn, sem drukknaði." Mark Twain. Þegar við hjónin fluttum í nýja húsið okk- ar, kom sonur nágrannans, sem hafði séð, þegar flutningavagninn okkar kom, og spurði hvar börnin okkar væru. Eg varð því miður að hryggja hann með því, að við ættum engin börn. Nokkrum dögum seinna kom hann aftur og hringdi dyrabjöllunni. „Eg er hérna með dálítið handa y$ur,“ sagði hann íbygginn, én feimnislegur um leið og hann rétti mér litla bók. „Nú eignast ég bráðum litla systur, og mamma hefur gefið mér þessa litlu bók, en hún segir frá því, hvaðan litlu börnin koma. Mér dettur í hug, að þér og maðurinn yðar vilduð kannske lesa hana.“ (Þýtt.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.