Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 44

Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 44
88 HEIMILI OG SKÓLI margan hátt, áttu erfiðara með að bjarga sér. Þegar Jón óx upp úr bernsku sinni og fór að spyrja: „Hvemig verkar þetta?“ svaraði ég honum alltaf með annarri spurningu: „Hvernig heldur þú, að það verki?“ Jón varð auðvitað himinlifandi glaður, og meðan ég horfði á og lærði einnig, skrúfaði hann kannske sundur garðsláttuvélina, allskonar heimilistæki innanhúss o. fl. Og nú kann hann að gera við allt mögulegt á heimilinu, t. d. bílinn okkar. Hann skrúfar stundum smærri hluti frá og athugar nákvæmlega hvert hlutverk þeirra er hvers um sig og í heild, vegna þessarar æfingar frá blautu barns- beini, er hann ekki ánægður fyrr en hann veit orsakir til hinna margbreytilegu fyr- irbæra daglegs lífs. Áður en Jón hafði lært að tala, var hann farinn að hamra á ritvélina mína. í margar vikur fyllti hann hverja örkina á fætur annarri með bókstöfum, sem stóðu á víð og dreif um blaðsíðurnar án noktkurs sam- hengis. En dag nokkurn tók ég eftir því, að hann hafði skrifað orðið „heitt“ marg- sinnis. í leit sinni að orðum, sem hann gat skrifað, hafði hann einu sinni numið stað- ar við vatnskranann í baðherberginu og fann þá einn og einn bókstaf á ritvélinni og samdi þannig sitt fyrsta bókmennta- verk. Með hjálp ritvélarinnar lærði hann fljótt að stafa. Við foreldrar hans hvöttum hann alltaf til að reyna af fremsta megni að finna svar við spurningunni: Hvers vegna? — Fyrst spurðum við hvað honum sýndist, og ef hvorki hann né við gátum gefið við- unandi svar, leituðum við þess í handbók- um eða hjá sérfræðingum. Einhverju sinni tók ég hann með mér á bifreiða- vinnustofu, til þess að hann gæti fengið svör við ýmsum spurningum varðandi bif- reiðir. Frá því að Jón var lítill drengur, hef ég reynt að gera ýmsar reglur og kenning- ar svo lifandi, að hann gerði sér eins kon- ar mynd af þeim í huganum. Einu sinni spurði hann mig hvers vegna stálskip sykkju ekki, þegar stálbútur gerði það. Eg reyndi að skýra þetta fyrir honum, en hann sá það ekki fyrir sér. Þegar Jón lét smáskipin sín sigla í baðkerinu nokkrum dögum síðar, sótti ég bréfapressu og skál og sýndi honum að bréfapressan sökk, en skálin, sem var mun þyngri, flaut á vatn- inu. Þá gat Jón allt í einu séð lögmálið og litlu síðar heyrði ég hann útskýra þetta fyrir fullorðnum manni, sem aldrei hafði gert sér grein fyrir þessu fyrirbrigði. Þegar Jón kom heim með fyrstu landa- fræðina sína, ákvað ég að sýna honum heiminn í heild. Við keyptum því hnatt- líkan og komum því fyrir í herbergi hans. Þarna fylgdumst við með ferðum Kólum- busar og Marko Pólusar og fundum löndin, sem Jón átti að lesa um í landafræði sinni. Litlu síðar fór hann að bjóða skóla- félögum sínum heim með sér, svo að þeir gætu einnig ferðazt með honum um allan hnöttinn. En um leið og Jón gaf af sinni ungu vizku, jók hann við þekkingu sína og félaga sinna. En nú datt mér í hug að hin nýja þekking Jóns þyrfti að tengjast við það, sem var nær og miklu smærra. Mér þótti sem slík leið myndi auka hug- myndaflug hans og ímyndunarafl. Ég náði því í gamla smásjá. Síðan settum við smá- bjöllur, jurtablöð, smásteina, blóm o. fl., sem Jón kom heim með, undir smásjána, og nú opnaðist nýr og furðulegur heimur fyrir drengnum og okkur öllum. „En kostar allt þetta þá ekki geysilega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.